Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Qupperneq 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2013 H alló rauðir“ syngja áhangendur Man- chester United fjörlega við leikvanginn Old Trafford. Heimavöllurinn er smám saman að fyllast og yfir 76 þúsund manns að koma sér fyrir. Stemningin er engu lík þegar liðin mætast, enda er þetta ekki aðeins innanborgarslagur í Manchester held- ur bera þau höfuð og herðar yfir önnur lið í ensku úr- valsdeildinni. Í einu horninu eru nokkrar þúsundir stuðningsmanna City og fara mikinn. Missti gleraugun En þeir mega sín þó lítils þenji tugir þúsunda United- aðdáenda raddböndin. Hörðustu stuðningsmennirnir fyr- ir öðrum enda vallarins. Og að því marki vill Ferguson sækja í seinni hálfleik. Brostið er á með söng, nema hvað. Eitt meginstefið er endurtekið þrisvar og kunn- uglegt úr sjónvörpum landsmanna: We love United! We do! Og klykkt út með innblásnu: Oh, United, we love you! Áður en leikurinn hefst er hvíslað að mér af ókunnug- um en glaðhlakkalegum manni í næsta sæti: „Eins og vinur minn sagði: Þessi leikur er nú þegar peninganna virði.“ Elskuleg eldri kona af írskum uppruna sem heitir Mary og er Íslandsvinur rifjar upp leik aldarinnar á Nou Camp þegar United vann Bayern München í úr- slitaleik meistaradeildar Evrópu með því að skora tvö mörk í uppbótartíma. „Það var engu líkt,“ segir hún. „Fagnaðarlætin voru svo mikil þegar United jafnaði að ókunnugir föðmuðust. Ég missti gleraugun í hamaganginum og gat mig hvergi hrært. Ég varð að bíða og sá því ekki seinna markið. En ég fann gleraugun þegar fólk var farið af pöllunum og þau voru óbrotin.“ Stjórnmál og fótbolti Leikurinn er hafinn. Eftir því var tekið að áður en hann hófst var ekki einnar mínútu þögn vegna fráfalls Mar- grétar Thatcher fyrrverandi forsætisráðherra Breta. Ástæðan sú að menn treystu sér ekki til að tryggja að áhorfendur myndu virða það. Það var umdeilt meðal knattspyrnuáhangenda þegar gerð var krafa um að þeir bæru skilríki vottuð af stjórnvöldum á leikjum, en það var liður í baráttunni gegn óspektum og ofbeldi. Og síðar þótti hún taka harða afstöðu gegn áhangend- um Liverpool eftir Hillsborough-slysið, en David Came- ron baðst á dögunum afsökunar á framkomu stjórnvalda í þeirra garð þegar skýrsla byggð á nýjum gögnum hreinsaði þá af ásökunum lögreglu. En Margréti má virða til vorkunnar að hún hafði eng- an sérstakan áhuga á knattspyrnu. Nú er annað hljóð komið í strokkinn hjá stjórnmálaleiðtogum. Cameron styður til dæmis Aston Villa og sækir leiki eða fylgist með þeim í sjónvarpi. Þegar Chelsea bar sigurorð af Bayern München í úr- slitum meistaradeildarinnar í fyrra, þá var dreift mynd- um af skrifstofu forsætisráðherrans sem sýndu hann baða út öllum öngum af fögnuði yfir vítaspyrnukeppn- inni, en þá var hann í Camp David með öðrum leiðtog- um. Barack Obama var til hliðar við Cameron og Ang- ela Merkel var einnig á myndinni, en öllu þungbrýndari þegar Didier Drogba skoraði hjá samlanda hennar, Manuel Neuer. Ekki á hverjum degi sem breskt lið vinnur þýskt í vítaspyrnukeppni. Undramark Aguero „Drullaðu þér út af Giggs!“ hrópar aðdáandi United þegar hann tekur hælspyrnu með hægri fæti á eigin vallarhelmingi beint á liðsmann City. Það endar með marki. Vinur er sá er til vamms segir. Og víst er að áhangendur United hika ekki við að gagnrýna sína menn. Þegar Rooney mistekst að lyfta fyrirgjöf yfir varnarmenn City á Robin Van Persie, sem er alveg frír á fjærstöng, er hrópað: „Við viljum fá Scholes!“ Það er kalt þennan dag. Svo kalt að þegar áhorfandi hleypur inn á völlinn er hann ekki nakinn heldur full- klæddur. Áhangendur United syngja: „Við erum United, við gerum það sem við viljum.“ Þennan dag sýnir Phil Jones að hann sómir sér vel í miðverðinum og verður fullfær um að fylla skarð Ferd- inands, sem yngist víst ekki með árunum. Jones bjargar tvisvar með tæklingum á elleftu stundu og skorar mark, að vísu með viðkomu í varnarmanni Chelsea. Gríð- arlegur fögnuður brýst út og það er sungið: The City is yours! Í lauslegri þýðingu: Borgin er ykkar – eða eru það mótherjarnir? En viljinn er sterkari hjá City. Kannski verða leikmenn United værukærir, enda 15 stigum yfir fyrir leikinn. Eða skrifast sigur City alfarið á hæfileika Kun Aguero, sem skorar glæsilegt mark eftir að hafa smogið leikandi létt í gegnum hóp liðsmanna United? Markið minnir svolítið á einleiksmark George Best gegn Sheffield United árið 1971. Hvort skyldi vera fallegra? Það er þungt yfir áhangendum United eftir leikinn, rétt að þeir hreyti ónotum hver í annan, en áhangend- um City er ekki hleypt strax út af öryggisástæðum. Frekar en vant er. Þannig hefði Thatcher viljað hafa það. Þeir standa áfram í sínum bás og syngja. Í kvöld er borgin þeirra. Titillinn er sagður í höfn hjá United. En spilað var um heiðurinn á Old Trafford. Ensku meistararnir létu finna fyrir sér. Eru það kaflaskil? Morgunblaðið/Pétur Blöndal Phil Jones skallar í markið. Nani fylgist með af hliðarlínunni. Innanborgarrígur í Manchester TEKIST VAR Á UM HEIÐURINN Á OLD TRAFFORD ÞEGAR STÓRVELDIN Í MANCHESTER ÁTTUST VIÐ. AGUERO SKORAÐI DRAUMAMARK DAGINN SEM THATCHER FÉLL FRÁ. Ferguson flýtir sér af velli með föruneyti sínu eftir tapið. Zabaleta tæklar Persie á viðkvæmum stað. * „Ef horft er til sögu félagsins, þá höfum við alltaf gert okkur erfiðarafyrir og dregið áhangendurna með okkur; þeir hafa fylgst með ínagandi óvissu úr sætum sínum á hverju ári.“ Alex Ferguson eftir leikinn á mánudag Boltinn PÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.