Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 8
Lýður Guðmunds- son var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot á hluta- félagalögum með því að greiða Exista hf. of lágt verð fyrir hlutafjáraukningu í félaginu. Lýður og Bjarnfreður Ólafs- son lögmaður voru hins vegar sýknaðir af ákæru um ranga upplýsingagjöf um hlutafjár- aukninguna. Í ákæru sérstaks saksóknara var Lýði gefið að sök að hafa brotið hluta- félagalög með því að greiða Exista hf. minna en nafnverð fyrir 50 milljarða nýrra hluta í félaginu í lok árs 2008. Í niðurstöðu héraðsdómara kemur fram að Lýði hafi hlotið að vera ljóst að ekki mætti greiða lægra verð en nafnverð. Í síðari kafla ákæru var Lýði og Bjarnferði gefið að sök að hafa skýrt vísvitandi rangt og villandi frá hækkun á hlutafé í Exista með því að Bjarnfreður sendi, að undirlagi Lýðs, tilkynningu til hlutafélaga- skrár. Dómarinn taldi engin gögn styðja fullyrðingu um aðkomu Lýðs. Þá komst dómarinn að þeirri niður- stöðu að í tilkynningunni sem Bjarn- freður sendi til Fyrirtækjaskrár fyrir hönd félagsins kæmi ekki annað fram en gerst hefði á stjórnarfundi. Ekki væri hægt að fallast á það með ákæruvaldinu að Bjarnfreður hefði skýrt rangt og villandi frá hækk- uninni. Við ákvörðun refsingar var til þess litið að það verðmæti sem félag Lýðs greiddi fyrir hlutinn var sann- virði, samkvæmt skýrslu endurskoð- anda, og að engar bótakröfur hefðu verið hafðar uppi í málinu. Refsing Lýðs var ákveðin tveggja milljóna króna sekt. Lýði var gert að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, 10,9 milljónir kr., að hálfu á móti rík- issjóði. Dæmdur fyrir að greiða of lágt verð Lýður Guðmundsson 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 Vikudagur ræðir í gær viðSteingrím J. Sigfússon al- þingismann og eins og í mörgum viðtölum á liðnum misserum er þreyta og vinnuálag helsta hugð- arefni viðmælandans. Af lestri viðtalsins er augljóst að Stein- grímur er sá mað- ur í gervallri sögu landsins sem hefur lagt mest af mörk- um, unnið harðast og dregið minnst af sér í þágu lands og þjóðar.    Fórnfýsin er slík að ekki að-eins andvökunætur gerðu vart við sig heldur fór mataræðið alveg úr skorðum, eða eins og hann lýsir sjálfur: „Ég gleymdi að borða heilu dagana og það var um tíma sérstök nefnd í því máli, sem passaði upp á að ég borðaði eitthvað. Það var oftast unnið alla matartíma og undir hælinn lagt hvort matur var á boðstólum eða ekki.“    Já, þær komu víða við nefnd-irnar í tíð fyrri ríkisstjórnar og gott til þess að vita að ein hafi séð um mataræði ráðherrans sem annars hafði misst tökin.    Gleðilegt er einnig að sjá aðSteingrímur er búinn að ná áttum og hefur tekist að leggja hlutlaust mat á afrek sín síðustu árin.    Síðasta ríkisstjórn verður aðhans mati „ein merkasta rík- isstjórn lýðveldissögunnar“ og dómur sögunnar verður að rík- isstjórnin hafi unnið „gríð- armikið“.    Skelfilegt er hins vegar að lesahvað þjóðin lagði á Steingrím og ekki síður allt það vanþakk- læti sem hann fékk að launum. En hvenær ætli hann jafni sig á allri þessari ofurmannlegu vinnu? Steingrímur J. Sigfússon Mataræði STAKSTEINAR Veður víða um heim 30.5., kl. 18.00 Reykjavík 8 súld Bolungarvík 8 rigning Akureyri 13 léttskýjað Nuuk 2 alskýjað Þórshöfn 10 skýjað Ósló 22 heiðskírt Kaupmannahöfn 21 léttskýjað Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 18 léttskýjað Lúxemborg 12 léttskýjað Brussel 12 skýjað Dublin 18 léttskýjað Glasgow 20 léttskýjað London 12 skýjað París 13 þrumuveður Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 18 léttskýjað Berlín 20 skúrir Vín 10 skúrir Moskva 22 léttskýjað Algarve 18 heiðskírt Madríd 20 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 20 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 15 skúrir M l kýj ð Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 31. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:24 23:28 ÍSAFJÖRÐUR 2:44 24:18 SIGLUFJÖRÐUR 2:25 24:03 DJÚPIVOGUR 2:44 23:07 „Miðjan er sá punktur sjónsviðsins sem þú fókuserar á. Þegar þú horf- ir á andlit beinirðu miðjusjóninni að andlitinu, það er sá hluti sjónsviðs- ins sem við sjáum best með,“ segir Einar Stefánsson prófessor og yf- irlæknir augndeildar Landspítala, en ungur drengur missti í vikunni miðjusjón á öðru auga og skaðaðist á báðum eftir leik með leysibendi. „Leysibendir sem er eitt millivatt er hættulaus, en ef þú ert kominn í sterkari geisla getur þetta brennt augnbotninn og þar af leiðandi valdið varanlegum skaða,“ segir Einar, en afl leysibendilsins sem drengurinn hafði undir höndum reyndist vera 90 MW. „Það fer eftir atvikum hversu miklum skaða geisl- inn getur valdið, en það ræðst bæði af því hversu lengi geisla er beint að auga og hversu sterkur hann er, en skaðinn getur orðið á sekúndu- broti. Þetta getur valdið mjög al- varlegum sjónskaða sem hefur þá eðli máls samkvæmt áhrif á líf fólks. Vanalega er hægt að verja augun með því að loka þeim, en leysigeislinn er svo snöggur, að menn munu ekki alltaf ná að loka augunum í tæka tíð,“ segir Einar og bætir að brýna megi fyrir for- eldrum að gæta þess að börn séu ekki að leika sér með leysibenda. sunnasaem@mbl.is Leysibendir olli sjónskaða  Drengur varð fyrir sjónskaða  Getur brennt augnbotn Leysibendar Geta verið hættulegir. „Stopp strax, ég vona bara að það verði ekki of seint! Það yrði aldrei aftur tekið,“ skrifar Elín Pálma- dóttir blaðamaður og fyrrverandi formaður umhverfismálaráðs Reykjavíkurborgar, í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Hún varar sterklega við flutningi olíu að Þrí- hnjúkagíg. Leggur Elín áherslu á að ekki þurfi mikið spilliefni til að eyði- leggja drykkjarvatn borgarbúa. Vonast hún til að nýskipaður um- hverfisráðherra stöðvi þessar at- hafnir. Fundað var um olíuslysið í Blá- fjöllum í umhverfisráðuneytinu fyrr í vikunni. Stefán Thors ráðuneyt- isstjóri segir að fram hafi komið vilji til þess að horfa fram á veginn og athuga hvernig mætti standa betur að þessum málum. Ráðu- neytið myndi, í samvinnu við Um- hverfisstofnun, m.a. skoða frekari kynningu á gildandi lögum og reglum. »11 Stöðva verður flutning olíu á Bláfjallasvæði  Skoða frekari kynningu á reglum Morgunblaðið/Styrmir Kári Mengun Olía fór niður á bílastæði. Hæstiréttur staðfesti í gær 18 mán- aða fangelsisdóm fyrir fjárdrátt yfir Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbank- anum. Hinn 8. október 2008, daginn eftir fall bankans, lét Haukur millifæra rúmar 118 milljónir króna af inn- lendum gjaldeyrisreikningi í eigu fé- lags á vegum bankans yfir á eigin bankareikning. Haukur hélt því fram að hann hefði ekki ætlað að slá eign sinni á féð, heldur koma því í öruggt skjól. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fékk 18 mán- aða fangels- isdóm fyrir fjárdrátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.