Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 35
sníðingum, sótti námskeið í leik-
myndagerð og starfaði við hirð
Karls Gústafs Svíakonungs á ár-
unum 1979 til 1984, sem vakti
mikla lukku. „Barnabarnið mitt
var að metast við annan strák,
hvort pabbi hins átti svo flottan
bíl eða hvað, þá sagði dóttursonur
minn; en ég á ömmu sem vinnur í
konungshöll!“ segir Björg.
Í konungshöllinni sá hún um
viðhald á veggteppum, gardínum
og húsgögnum, saumaði utan um
vöggur kóngabarnanna, og var
send á námskeið í Vatíkaninu.
Árið 1984 fluttist Björg til New
York, þar sem hún starfaði sem
búningahönnuður hjá Ivan
Brooks, sem sá meðal annars um
leikbúninga fyrir Broadway. Eftir
tvö ár þar flutti hún aftur heim til
Íslands, þar sem við tóku ýmis
verslunarstörf og námskeiðahald.
Hún lagði áfram stund á mynd-
listina, opnaði glerlistarvinnustofu
á Laugaveginum og hefur verið
með myndlistarsýningar víða.
Fjölskylda
Björg giftist tvisvar. Fyrri mað-
ur hennar var Jóhann Einarsson,
f. 15.9. 1927 , d. 15.5. 1992, blikk-
smíðameistari. Seinni maður henn-
ar var Vilhjálmur Helgi Jónasson
frá Norðfirði, f. 13.4. 1938, d. 12.8.
2008, skrifstofumaður.
Börn Bjargar og Jóhanns eru:
Helga Sigríður, f. 4.3. 1946, hár-
greiðslumeistari og læknaritari,
gift Guðjóni Helgasyni. Guðfinna,
f. 18.10. 1948, hárgreiðslumeistari,
gift Henk Hoogland. Jóhanna, f.
6.11. 1950, kennari, gift Ingmar
Furuvik. Einar Ingvar, f. 23.9.
1955, blikksmiður, giftur Nang Jó-
hannsson. Ísak, f. 29.10. 1958,
fasteignasali, giftur Ingu Sig-
urjónsdóttur.
Barnabörn Bjargar eru fjórtán
talsins en átjánda langömmubarn-
ið er væntanlegt.
Systkini Bjargar: Arnfríður, f.
8.7. 1930, d. 21.5. 2003, hár-
greiðslumeistari. Sigrún, f. 3.10.
1932, d. 6.6. 1978, húsmóðir og rit-
ari. Helga Valgerður, f. 13.8. 1934,
bókasafnsvörður. Runólfur Helgi,
f. 18.1. 1937, rafvirki.
Foreldrar Bjargar: Helga Sig-
ríður Runólfsdóttir, f. 13.8. 1904,
d. 29.7. 1938, húsfreyja og Ísak
Kjartan Vilhjálmsson, f.
14.11.1894, d. 26.10. 1954, verk-
stjóri og bóndi. Stjúpa Jóhanna
Björnsdóttir, f. 28.11. 1906, d. 7.8.
1981.
Börn Bjargar á góðri stund Frá vinstri: Guðfinna, Einar Ingvar, Helga Sig-
ríður, Ísak Vilhjálmur og Jóhanna Jóhannsbörn.
Úr frændgarði Bjargar Ísaksdóttur
Björg
Ísaksdóttir
Ísak Ingimundarson
landpóstur
Margrét
Þorvarðardóttir
Björg Ísaksdóttir
húsfreyja í Knobsborg
Vilhjálmur Guðmundsson
sjómaður
Guðmundur Guðmundsson
bóndi í Traðarholti
í Stokkseyrarhreppi
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja í Traðarholti
Finnbogi Árnason
frá Galtalæk
Helga Jónsdóttir
húsfreyja á Eystri-Geldingalæk
Arnfríður Finnbogadóttir
hannyrðakona og húsfreyja
Runólfur Pétursson
lögregluþjónn
Helga Sigríður Runólfsdóttir
húsfreyja að Bjargi á Seltjarnarnesi
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja á Smiðjuhóli
Pétur Þórðarson
bóndi á Smiðjuhóli á Mýrum
Ísak Kjartan Vilhjálmsson
verkstjóri og bóndi
Jóhanna Björnsdóttir
húsfreyja
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013
Jón M. Guðjónsson, prófastur,fæddist á Efri-Brunnastöðumá Vatnsleysuströnd hinn 31.5.
1905. Foreldrar hans voru Guðjón
Pétursson, útvegsbóndi, og kona
hans Margrét Jónsdóttir, ljósmóðir.
Eiginkona Jóns var Lilja Pálsdóttir
og áttu þau ellefu börn en elsta
barnið misstu þau nýfætt.
Séra Jón lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1929 og guðfræðiprófi frá Háskóla
Íslands 1933. Hann þjónaði sem að-
stoðarprestur á Akranesi í eitt ár ár-
ið 1933 áður en hann hlaut veitingu
fyrir Holtsprestakalli undir Eyja-
fjöllum árið 1934. Þar þjónaði hann í
tólf ár áður en hann var kosinn sókn-
arprestur á Akranesi árið 1946. Þar
þjónaði hann Garðaprestakalli uns
hann lét af störfum fyrir aldurssakir
árið 1974. Jón var einnig stunda-
kennari við Gagnfræðaskólann á
Akranesi frá 1946, prófdómari við
Barnaskólann á Akranesi á árunum
1946-1974 og við Gagnfræðaskólann
frá 1950-1975. Eftir það var hann
skipaður trúnaðarmaður við próf,
síðast við Fjölbrautaskólann á Akra-
nesi. Hann var formaður fræðslu-
ráðs Akraness frá 1949.
Jón kynntist sjómennsku og kjör-
um sjómanna strax í bernsku og bar
hann velferð og hag sjómanna mjög
fyrir brjósti alla ævi. Hug sinn til
sjómanna sýndi hann með því að
beita sér fyrir stofnun fjölmargra
slysavarnadeilda vítt og breitt um
landið.
Öll þjónustuár sín á Akranesi
starfaði séra Jón í Hallgrímsdeild
Prestafélags Íslands. Hann var rit-
ari deildarinnar í tíu ár og varð síðar
heiðursfélagi deildarinnar.
Vegna mikilla listrænna hæfileika
og brennandi áhuga á þjóðlegri
menningu og menningararfi vann
séra Jón að því um langt skeið að
koma upp einu merkasta og smekk-
legasta byggðasafni hér á landi,
byggðasafninu í Görðum á Akranesi.
Þann 31. maí árið 2005, til að marka
hundrað ára afmælisdag Jóns, var
afhjúpaður minnisvarði um Jón við
gamla húsið í Görðum.
Jón lést 18.2. 1994. bmo@mbl.is
Merkir Íslendingar
Jón M.
Guðjónsson
90 ára
Olena Magnúsdóttir
85 ára
Aðalsteinn Þórólfsson
Brynhildur Sæmundsdóttir
Fjóla Magnúsdóttir
Oddný Þorsteinsdóttir
Sveinn Sigurðsson
Þórunn Kristjánsdóttir
80 ára
Kristján Guðmundsson
Unnur Ásmundsdóttir
Þórhildur Bjarnadóttir
75 ára
Oddur Ragnarsson
70 ára
Halla L. Loftsdóttir
Helga Skúladóttir
Kristján Magnússon
60 ára
Ásdís Þorsteinsdóttir
Brynja Sigurðardóttir
Dóra Axelsdóttir
Eggert Kristinsson
Geir Þórðarson
Guðbjörg Sigmundsdóttir
Guðný Jóna Gunnarsdóttir
Guðrún Guðnadóttir
Ingi Hans Sigurðsson
Jóhanna Sigmundsdóttir
Marie Muller
Pétur Jónsson
Sigrún Harðardóttir
Þorsteinn Guðmundsson
Þórey Jóhanna Pétursdóttir
Þór Kristjánsson
50 ára
Aldís Stefánsdóttir
Anna Sif Zoëga
Axel Rúnar Guðmundsson
Björg Baldursdóttir
Bylgja Sjöfn Ríkarðsdóttir
Fjóla Breiðfjörð Ægisdóttir
Freyr Hreiðarsson
Hafdís Reynisdóttir
Jón Stefán Þórðarson
María Anna Garðarsdóttir
Pétur Kolbeinsson
Sigríður Magnúsdóttir
Stefán S. Kristófersson
Þórður Þorsteinsson
40 ára
Agnes Sif Andrésdóttir
Ásta Birna Jónsdóttir
Björn Óskar Einarsson
Gissur Örn Gunnarsson
Hafþór Helgason
Ingunn Þóra Hallsdóttir
Jóhanna Óskarsdóttir
Mariusz P. Swierczewski
Milagros Valencia Palmero
Natalía Blómey Valdimars-
dóttir
Ragnar Svanur Þórðarson
Sigríður Helga Sigurð-
ardóttir
Tómas Pálmi Pétursson
Veigar Freyr Jökulsson
Vigdís Hrönn Viggósdóttir
30 ára
Andrea K. Gunnarsdóttir
Birkir Freyr Hrafnsson
Elísabet Ýr Kristjánsdóttir
Eva Björk Sigurðardóttir
Guðrún H. Sigurðardóttir
Heiðar Kristján Grétarsson
Hermann Albertsson
Jón Ómar Jóhannesson
Jón Valberg Sigurjónsson
Katarzyna H. Szczepanska
Pálína G. Sigurðardóttir
Reynir Hólm Gunnarsson
Richard Wendel
Sumarliði G. Halldórsson
Vala Ösp Bryndísardóttir
Þóra Ólafsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Jón ólst upp í
Grafarvogi og starfar hjá
Umslagi ehf.
Maki: Klara Stein-
arsdóttir, f. 1986, starfs-
maður Landsbankans.
Dóttir: Ragnhildur Eik, f.
2010.
Foreldrar: Jóhannes
Bárðarson, f. 1952, starfs-
maður Reiknistofu bank-
anna, og Agnethe J. Að-
alsteinsdóttir, starfs-
maður Reiknistofu
bankanna.
Jón Ómar
Jóhannesson
30 ára Þóra ólst upp í
Hafnarfirði en býr nú í
Hveragerði þar sem hún
starfar hjá Kjörís.
Sonur: Anton Óli Hart-
mannsson, f. 2000
Foreldrar: Ólafur Þór
Ólafsson, f. 1957, fisk-
verkandi og Hjördís Jóns-
dóttir, f. 1960, kennari.
Þóra
Ólafsdóttir
30 ára Reynir ólst upp í
Kópavogi en er nú búsett-
ur í Reykjavík. Hann
stundar meistaranám á
sálfræðilínu með áherslu
á áhættuhegðun ung-
linga.
Maki: Elín Adda Stein-
arsdóttir, f. 1987, véla-
verkfræðingur.
Foreldrar: Gunnar Hólm
Hjálmarsson, f. 1950, vél-
iðnfræðingur og Sigrún
Ásgeirsdóttir, f. 1951, leik-
skólakennari.
Reynir Hólm
Gunnarsson
CRÉPES
Lífið er eins og pönnukaka. Hver og einn hefur sína uppskrift
að lífsfyllingu en hið æðsta stig tilverunnar köllum við crépes.
Fæst á Ártúnshöfða og Hringbraut.