Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 DEKKJA- HÓTEL N1 Frelsaðu plássið í geymsl- unni eða bílskúrnum og bókaðu hótel fyrir vetrar- dekkin í sumarfríinu. Gegn vægu gjaldi sjáum við til þess að vel fari um þau, þrífum þau, yfirförum og pössum að þau endi ekki á felgunni á barnum. GAT NÚ VERIÐ Auðvitað springur alltaf á versta tíma en þú getur notað punktana þína til að borga viðgerðina á næsta hjólbarðaverkstæði N1. N1 kortið – meira í leiðinni manngert verði að taka tilliti til að- stæðna. „Þó að fólk verði sárt við okkur, þá er umferðin svo mikil að þetta veðst allt upp.“ Vilja fá salerni í dalinn Framkvæmdasjóður ferða- mannastaða hefur veitt átta millj- ónir til hönnunar og framkvæmda í Reykjahlíð og einnig hafa Hvera- gerðisbær, Ölfus og Eldhestar styrkt verkefnið. Í fyrra var göngustígur frá Klambragili, efst í Reykjadal, lag- færður og byrjað á hestagerði í gilinu. Ekki var þó borið efni í stíg- ana því leyfi til efnistöku verður að byggja á deiliskipulagi. Sigurður segir að nauðsynlegt hafi verið að útbúa hestagerði því brögð hafi verið að því að hestar væru hafðir lausir við lækinn. Gerðið muni falla vel inn í umhverfið. Staur- ar og slár verði sett upp snemmsum- ars en tekin niður að hausti þegar mesta ferðamannatímanum lýkur. Hægt er að komast í snyrtingu áð- ur en lagt er af stað frá Hveragerði. Heilbrigðiseftirlitið hefur óskað eftir að salerni verði reist í dalnum sjálf- um en Sigurður segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun í málinu. „Þú getur séð staðina sem fólk er búið að finna sér, með tilheyrandi pappír og óþrifnaði. Þú hleypur ekkert dalinn á enda bara til að fara á klósettið,“ segir Sigurður. Borin von að sækja um fjárveitingu Guðríður Helgadóttir, staðarhald- ari Landbúnaðarháskólans á Reykj- um í Ölfusi, segir löngu tímabært að grípa til aðgerða í Reykjadal. Dal- urinn komi skelfilega illa undan vetri. Með því að bæta gönguleiðir og setja upp skilti með gönguleiða- kortum sé vonast til að ferðafólk haldi sig við þá stíga og leiðir sem best þoli álagið. Aðspurð segir hún að í bili verði ekki lagður stígur í brekkuna upp í Dalaskarð en það er hún sem sést á myndinni fyrir ofan. Leiðin verði á hinn bóginn ekki merkt inn á kort sem gönguleið og því sé vonast til að umferð um hana minnki. Hún segir að auknar vin- sældir Reykjadals hafi komið skóla- yfirvöldum nokkuð að óvörum en umferð um hann hafi aukist hratt. Ástandið sé þó ekkert einsdæmi. „Það má segja að Ísland hafi sofið á verðinum gagnvart þessu,“ segir hún. Aðspurð hvort skólinn hefði ekki átt að grípa til aðgerða mun fyrr segir hún að undanfarin ár hafi rekstrarfé til skólans verið skorið mjög við nögl. Engar umsóknir um aukafjárveitingu vegna dalsins hafi verið sendar stjórnvöldum. „Það hefði verið borin von að reyna að sækja um aukafjármagn,“ segir hún. Morgunblaðið/Rúnar Pálmason ndan álagi i baðstaðurinn í nágrenni höfuðborgarinnar kað  Tillaga um trépall til fataskipta Álag Göngu- og reiðleiðir eru víða illa leiknar eftir annasaman vetur. Andrés Úlfarsson, formaður nýrra Ferðamálasamtaka Hveragerðis, þekkir Reykjadal út og inn en hann rekur fyrirtækið Iceland Ac- tivities sem m.a. býður upp á hjóla- og gönguferðir um Reykjadal. „Við getum sagt að árið 2010 hafi verið notalegt ástand þarna upp frá. Árið 2011 varð gríðarleg sprenging og meiri en ég átti von á. Og árið 2012 varð aukningin meiri en mann hefði getað órað fyrir,“ segir Andrés. Í mars og apríl á þessu ári hafi síðan verið meiri umferð ferða- manna um dalinn en var sumarið 2010. Hann segir dæmi um stóra hópa, m.a. skólahópa, sem komi að gönguleiðinni upp í dalinn á stórum rútum að vetrarlagi og snemma á vorin þegar svörðurinn er hvað viðkvæmastur og far- arstjórar hafi oft litla stjórn á. „Ég er þeirrar skoðunar að þetta eigi frekar að vera fyrir fámennari hópa,“ segir hann. Þá sé mikilvægt að ferðaþjónustufyrirtæki fari ekki með stóra hópa í dalinn þegar aðstæður eru slæmar, s.s. eftir rigningar á vorin. Það geti þó ver- ið erfitt að tilkynna viðskiptavini sem hafi bókað ferðir í dalinn að ekki sé hægt að fara í hann vegna bleytu. Andrés hefur sett sér stífar reglur um umgengni við dalinn. „Ég fer ekki með stóra hjólahópa þarna inn eftir og ég er örugglega búinn að hafna 10-15 hjólaferð- um þarna upp eftir í vor því landið er ekki í stakk búið til að taka á móti ferðamönnum,“ segir hann. Mik- ilvægt sé að stýra umferðinni í takt við ástand landsins. Hestar eigi ekkert erindi í dalinn í bleytut- íð frekar en reiðhjól og sömuleiðis skilji göngufólk eftir sig meiri för þegar landið er blautt. Hægt sé að hjóla, ganga eða ríða um dalinn án þess að valda skemmdum, svo lengi sem fólk tekur tillit til að- stæðna og heldur sig á stígunum. Hann er sammála því að laga þurfi göngustíga í dalnum en er beggja blands um hvað eigi að gera til að hlífa lækjarbökkunum, þar sem fólk býr sig til baðs. Hug- myndin um pall til fataskipta sé ekki sérlega aðlaðandi en hann er er þó ekki viss um hvað eigi að gera í staðinn. „En skemmdir eftir umferð göngufólks, hjólafólks og hesta- manna á Hellisheiði eru bara dropi í hafið miðað við þær skemmdir sem Orkuveitan hefur unnið á heiðinni,“ bætir hann við. Landið geti jafnað sig eftir skemmdir af völdum ferðafólks en fram- kvæmdir OR séu óafturkræfar. Hugmyndir um virkjanir í Innst- adal, Bitru og Grændal séu í raun fáránlegar ef litið sé til þess tjóns sem þær myndu valda á nátt- úrunni. Sprenging í umferð um dalinn 2010  Dropi í hafið miðað við skemmd- ir af völdum OR Andrés Úlfarsson Rigning og rok. Þannig var veðrið í Reykjadal á sunnudagsmorgun þegar blaðamaður fór þar um. Það var þó hlýtt, a.m.k. ef miðað var við vorveðrið til þessa og í dalnum var töluvert um ferðamenn. Fjórir voru í ferð á vegum Íslenskra fjallaleið- sögumanna sem fól í sér ferð í Reykjadal og á Sól- heimajökul. Tankred Becker og Sarah Schneiders frá Þýskalandi og Bandaríkjamennirnir Joe Carlyle og Adam Prestegord. Þau voru nýkomin úr baði í læknum þegar rætt var við þau. „Dalurinn er mjög fallegur. Náttúran er svo fjöl- breytt. Grænt gras og síðan svartir klettar,“ sagði Sarah. „Lækurinn var mjög heitur en nú er mér reyndar orðið kalt á fótunum,“ bætti hún við. Sara kvaðst hafa leitað að ferðum á hverasvæði á netinu áður en hún kom til Íslands og þannig fundið upplýs- ingar um ferðina með Fjallaleiðsögumönnum. Hún myndi örugglega mæla með ferð í dalinn við vini sína í Þýskalandi. Adam og Joe voru líka hrifnir. „Við bókuðum í gegnum Icelandair og þetta var ein af ferðunum sem flugfélagið mælti með. Þetta er fallegur og frábær staður,“ sagði Joe og Adam tók undir með honum. „Okkur líkar þetta betur en Bláa lónið. Þetta er nátt- úrulegt. Þetta er ekki affall úr orkuveri,“ sagði hann. Ekkert þeirra kvaðst hafa veitt því athygli að nátt- úra dalsins væri farin að láta á sjá vegna umferðar ferðafólks. Hugmyndir eru uppi um að reisa pall úr timbri fyrir baðgesti, loka gönguleið austan við lækinn og lagfæra göngustíga og fleira. Adam sagði að sér lit- ist ágætlega á það í sjálfu sér. „En hluti af þokkanum við þennan stað er að hann er ósnortinn,“ sagði hann. Austurrísku hjónin Walther og Margit Sturm fóru í dalinn á eigin vegum og voru að svipast um eftir góðum stað til að baða sig þegar blaðamaður tók þau tali. „Ég á margar bækur um Ísland – fimm eða sex – og dalsins er getið í næstum því öllum,“ sagði Walt- her. Hann var hrifinn af því hversu ósnortinn dal- urinn væri en skildi vel að lagfæra þyrfti gönguleiðir til að hann þyldi umferðina. Náttúra Adam, Joe, Sarah og Tankred hófu daginn á ferð í Reykjadal. Þaðan ætluðu þau á Sólheimajökul. Baðgestir Walther og Margit Sturm frá Austurríki. Getið í flestum ferðabókum um Ísland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.