Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013
ÁTJÁN HJÓLA TRUKKURLyktarspjaldið sveiflast þegar hann ekur yfir
ójöfnu í veginum. Löngu hætt að ilma en hann
tímir ekki að henda því. Voða sæt mynd af kettlingi.*
*Þjónustustöðvar N1 eru drifásinn í landflutningum á Íslandi
Á STÍMINU
Þeir verða búnir að splæ
sa vírinn og gera trollið
klárt áður en kokknum t
ekst að brenna steikina.
*
*Þjónusta N1 við sjófare
ndur er meðfram allri st
randlengjunni
Samstarf Velgengni í skyrsölunni var meðal verkefna á fundi í vikunni.
leggja með hvaða hætti best er
hægt að fylgja eftir hinum mikla
vexti sem verið hefur í sölu skyrs.
Jón Axel segir að nýlega hafi
borist niðurstöður í bandarískri
neytendarannsókn þar sem borin
var saman grísk jógúrt, sem hefur
átt auknum vinsældum að fagna
vestra undanfarin ár, og íslenskt
skyr. Niðurstaðan hafi verið
yfirburðir skyrsins meðal þessara
neytenda.
Gunnar Bragi Sveins-
son utanríkis-
ráðherra, Sigurður
Ingi Jóhannsson, um-
hverfis- og auðlinda-
ráðherra, og Eygló
Harðardóttir félags-
málaráðherra hafa
ráðið til sín aðstoð-
armenn.
Ingveldur Sæ-
mundsdóttir hefur
verið ráðin aðstoðarmaður Sig-
urðar Inga. Ingveldur var kosn-
ingastjóri Framsóknarflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður og
suður fyrir alþingiskosningarnar í
vor. Áður starfaði hún m.a. sem
vörustjóri hjá Hátækni ehf. og
verslunarstjóri hjá Pennanum.
Margrét Gísladóttir verður
Gunnari Braga til aðstoðar. Hún er
26 ára og með diplómu í almanna-
tengslum og markaðssamskiptum
frá Opna háskólanum í Háskóla
Reykjavíkur. Margrét hefur und-
anfarin ár sinnt verkefnum og ver-
ið ráðgjafi fyrirtækja og samtaka á
sviði markaðsmála og almanna-
tengsla.
Matthías Imsland verður að-
stoðamaður Eyglóar. Hann var
kosningarstjóri Framsóknarflokks-
ins í Suðvesturkjördæmi fyrir síð-
ustu kosningar. Áður var hann m.a.
framkvæmdastjóri Iceland Express
og seinna framkvæmdastjóri flug-
rekstrarsviðs WOW-air.
Ingveldur
Sæmundsdóttir
Margrét
Gísladóttir
Matthías
Imsland
Ráðin aðstoðarmenn
þriggja ráðherra
Nýfæddi drengurinn, sem bjargað
var úr skólpröri í Jinhua í Kína á
laugardag, hefur verið útskrifaður
af sjúkrahúsi. „Drengurinn var sótt-
ur í gær,“ sagði Wu Xinhong, for-
stjóri sjúkrahússins þar sem barnið
hlaut aðhlynningu, á fimmtudag.
Hann tiltók ekki hverjir sóttu
drenginn en fram kom að þeir hefðu
verið í fylgd lögreglu.
Ríkisfjölmiðillinn Xinhua greindi
frá því í gær að drengurinn yrði í
umsjá móður sinnar, afa og ömmu
og mannsins sem talinn er vera faðir
barnsins, en sá hefur farið fram á
faðernispróf. Staðreyndir málsins
virðast þó eitthvað vera á reiki þar
sem dagblaðið Jinhua Daily sagði
frá því í gær að lögregla leitaði enn
föður drengsins.
Þá sagði í blaðinu að móðirin væri
enn á spítala vegna fylgikvilla í kjöl-
far fæðingarinnar og hefði drenginn
ekki hjá sér eins og er.
„Barn nr. 59“ farið heim
AFP
Bjargað Móðirin segist hafa reynt
að ná taki á barninu í salerninu án
árangurs.
Sérfræðingar telja að færri en 7.000
kakadúar af tegundinni Cacatua
sulphurea séu til í heiminum og fer
þeim fækkandi. Fuglinn á heimkynni
sín í Austur-Tímor og á Indónesíu en
fullorðnir einstaklingar af báðum kynj-
um eru snjóhvítir á lit með fagurgulan
fjaðraskúf. Fækkun fuglanna má rekja
til þess hve vinsælir þeir eru sem stof-
ustáss en þessi rytjulegi þriggja mán-
aða gamli ungi skreið úr eggi í fugla-
garðinum í Marlow í Þýskalandi. AFP
Færri en
7.000 gul-
skúfaðir ka-
kadúar eftir
Erlent