Morgunblaðið - 31.05.2013, Page 12
BAKSVIÐ
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Reykjavíkurflugvöllur verður óstarfhæfur til
atvinnuflugs ef norður-suður-flugbrautinni
verður lokað árið 2016 líkt og stefnt er að í
drögum að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur-
borgar, að sögn Þorkels Ásgeirs Jóhannsson-
ar, flugstjóra hjá Mýflugi. „Þá verður ekki
hægt að stóla neitt á hann lengur því að veð-
urfar er einfaldlega þannig að tvær flugbrautir
eru algjört lágmark,“ segir Þorkell.
Hann bendir jafnframt á að einnig sé mjög
bagalegt fyrir tiltekinn flugrekstur, eins og t.d.
áætlunarflug, að missa gömlu norðaustur-suð-
vestur-flugbrautina sem áætlað er að leggja af
síðar á þessu ári. Þá segir hann sjúkraflugið
ekki geta lifað við að norðaustur-suðvestur-
brautinni verði lokað, lokun flugbrautarinnar
sé áfall fyrir sjúkraflugsþjónustuna. „Í bók-
staflegri merkingu er ekki víst að allir kúnn-
arnir okkar hreinlega lifi það af að hafa hana
ekki,“ segir Þorkell og bætir við að stundum
hafi komið þeir dagar þar sem sjúkraflug Mý-
flugs hafi, sökum slæms veðurs, eingöngu get-
að notast við þessa flugbraut.
Aðspurður hvaða áhrif það hefði á sjúkra-
flugið ef lenda yrði á Keflavíkurflugvelli í stað
Reykjavíkurflugvallar segir Þorkell: „Þá erum
við að tala um minnst þrjú korter í aukinn
flutningstíma, bæði aukinn aksturstíma eftir
endilöngu Reykjanesi og lengri flugtíma líka,
og það miðast við bestu skilyrði.“ Hann bendir
á að Mýflug fljúgi um fimm hundruð útköll á
ári og að liðlega helmingur þeirra flokkist sem
bráðaútköll.
Vill samráð við flugmálayfirvöld
„Við höfum svosem ekkert beint að gera með
flugrekstur á landinu. Við erum náttúrlega að
leggja fram aðalskipulag sem við teljum til
mestra hagsbóta fyrir Reykjavík og höfuð-
borgarsvæðið og teljum að þetta sé það sem við
þurfum að gera til að búa til góða og skilvirka
borg, en það er auðvitað samræða sem þarf að
taka við flugmálayfirvöld nákvæmlega hvernig
þetta gerist,“ segir Páll Hjalti Hjaltason, for-
maður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavík-
ur, spurður út í þær áhyggjur flugrekstrar-
aðila að starfsemi Reykjavíkurflugvallar
leggist niður ef norður-suður-brautinni verður
lokað árið 2016.
„Samningurinn var gerður í fullu samræmi
við gildandi aðalskipulag sem og þau drög sem
nú liggja fyrir. Það var og er gert ráð fyrir að
flugvöllurinn starfi til ársins 2024 og það er
ansi langur tími,“ segir Elsa Hrafnhildur
Yeoman, forseti borgarstjórnar, aðspurð um
samning um byggingu nýrrar flugstöðvar í
Vatnsmýrinni, sem Jón Gnarr borgarstjóri
undirritaði ásamt Ögmundi Jónassyni, þáver-
andi innanríkisráðherra, hinn 19. apríl síðast-
liðinn, og hvort nýju skipulagsdrögin kalli á
endurskoðun hans. Hún tekur fram að skýrt sé
tekið fram í samningnum að flugstöðin sé
hönnuð og byggð þannig að hægt sé að fjar-
læga hana með einföldum hætti. „Einnig er
tekið fram að borgin er ekki á neinn hátt
skaðabótaskyld þegar flugstarfsemi leggst af.
Það var metið sem svo að það væri hagkvæmt
að byggja nýja flugstöð þrátt fyrir að hún væri
bara tímabundin,“ bætir Elsa við.
Áfall fyrir sjúkraflugið
Segir einfalt að fjarlægja flugstöð sem á að byggja
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013
Atvinnuvegir landsins treysta á
víðfeðma þjónustu N1, allt frá
fyrirtækjum með heildarsamninga
um rekstrarvörur til bóndans sem
vantar nýtt dekk undir hjólbörurnar.
Á LANDI
Þéttriðið þjónustunet N1 um allt
land tryggir að sjávarútvegurinn
haldi dampi, að togarinn komist
milli hafna og nægur glussi sé
á lyftaranum í salthúsinu.
Á SJÓ
KLETTAGARÐAR • AKRANES • GRINDAVÍK • HÖFN • ÓLAFSVÍK • PATREKSFJÖRÐUR
REYÐARFJÖRÐUR • REYKJANESBÆR • AKUREYRI • VESTMANNAEYJAR
Atvinnurekendur á Íslandi treysta á fjölbreytt
vöruúrval verslana N1og þjónustu um allt land:
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Áætlanir gera ráð fyrir að seld
verði hátt í fimm þúsund tonn af
skyri á Norðurlöndunum í ár.
Ekkert lát virðist vera á eft-
irspurninni og gæti þessi mark-
aður verið orðinn um tíu þúsund
tonn eftir ekki ýkja mörg ár.
Heildsöluverðmæti vörunnar yrði
þá níu til tíu milljarðar á árs-
grundvelli. Á Íslandi er áætlað að
seld verði um tvö þúsund tonn og
enn sem komið er er neysla á
hvern íbúa miklu meiri hér en
annars staðar.
Til Finnlands er skyr flutt beint
frá Íslandi og tollheimildir þar í
landi eru langt undir eftirspurn.
Endanleg svör hafa nú borist frá
Evrópusambandinu um að heim-
ildir verði ekki auknar. Ráðgert er
að í Finnlandi verði seld um 650
tonn af skyri í ár, en tollþakið
miðar við 390 tonn. Því er reiknað
með að framleiða um 160 tonn í
Danmörku til að anna eftirspurn í
Finnlandi.
Í Danmörku hefur skyr verið
framleitt samkvæmt sérleyfi í sex
ár og fór salan rólega af stað.
„Þetta byrjaði rólega, en síðustu
mánuði hafa Danirnir heldur bet-
ur tekið við sér,“ segir Jón Axel
Pétursson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssvið MS. „Þar er
söluaukningin fyrstu fjóra mánuði
ársins um 130% og það eingöngu í
hvítu skyri sem ekki er bragð-
bætt, eins og í hinum löndunum.“
Íslenskt skyr eða
gríska jógúrt?
Noregur tók
strax vel við sér í
byrjun árs 2010 og
Norðmenn borða um
helming þess skyrs
sem selt er á Norður-
löndunum. Þar í landi er
markaðs- og kynning-
arherferð leyfishafa
margverðlaunuð af sam-
Ekkert lát á spurn eftir íslensku skyri
Markaðurinn á Norðurlöndum gæti orðið um 10 þúsund tonn eftir nokkur ár Salan í Danmörku hefur
tekið mikinn kipp Kynningar- og söluherferð í Noregi margverðlaunuð Tollmúrar hamla í Finnlandi
tökum kaupmanna, viðskipta-
tímaritum og fleirum. Að minnsta
kosti hálfur milljarður hefur verið
settur í auglýsingar og kynning-
arstarf af ýmsum toga þar í landi.
Svíþjóð er yngst á þessum mark-
aði, en þar eins og annars staðar
hefur skyrið átt velgengni að
fagna.
Í byrjun vikunnar
var haldinn á
Hótel Rangá
fundur sam-
starfsaðila
Mjólkursamsöl-
unnar á Norð-
urlöndum og var
þetta í annað skiptið
sem slíkur fundur er
haldinn. Verkefnið var
meðal annars að skipu-
Söluþróun skyrs á Norðurlöndum 2009 - 2013
Sala í tonnum 2009 2010 2011 2012 2013 áætlun
Danmörk 1 163 220 311 760 1.160
Noregur1 284 1.210 1.900 2.000 2.320
Svíþjóð1 0 0 0 400 450
Finnland2 0 0 265 410 650
Heildarsala í t. 447 1.430 2.476 3.570 4.580
1Sérleyfi frá MS. 2Útflutt skyr frá Íslandi.