Morgunblaðið - 07.06.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ásókn í háskólanám virðist enn vera að aukast,
miðað við tölur sem fengust frá nokkrum háskól-
um. Um 10% aukning umsókna er hjá Háskól-
anum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri og
tvöföldun í þær brautir sem Landbúnaðarháskóli
Íslands tekur inn á næsta hausti.
Frestur til að skila inn umsóknum um nám
næsta vetur rann út hjá flestum háskólanna í
fyrrakvöld. Verið er að fara yfir umsóknir. Lang-
stærsti háskólinn, Háskóli Íslands, var ekki tilbú-
inn með tölur um fjölda umsækjenda í gær.
Að þessu sinni sóttu liðlega 2.300 um skólavist í
Háskólanum í Reykjavík. Það er tæplega 10%
aukning frá síðasta ári en þá var metár í fjölda um-
sókna, samkvæmt upplýsingum sem Jóhanna Vig-
dís Guðmundsdóttir, forstöðumaður samskipta-
sviðs, veitir. Langmesta aukningin er í
tölvunarfræði, eins og í fyrra. Verkfræðin er einn-
ig vinsæl, þannig er eftirtektarverð aukning í heil-
brigðisverkfræði. Þá sækja umtalsvert fleiri um
að komast í viðskiptafræði.
Um 1.000 umsóknir höfðu í gær skilað sér til
Háskólans á Akureyri. Á sama degi í fyrra höfðu
um 900 umsóknir borist og segir Dagmar Ýr Stef-
ánsdóttir, forstöðumaður markaðs- og kynningar-
sviðs, að aldrei áður hafi jafn margir óskað eftir
skólavist. Hún segir þetta athyglisvert í ljósi þess
fjölda sem farið hefur í nám síðustu ár vegna erf-
iðleika á vinnumarkaði. Mikil aukning er í um-
sóknum um nám í viðskiptafræði hjá HA og hún er
að ná fyrri styrk. Hjúkrunarfræði er einnig vinsæl
og sálfræðin kemur þar á eftir.
270 nemar sækja um nám við Landbúnaðar-
háskóla Íslands í haust. Samsvarar það því að þrír
séu um hvert laust pláss í skólanum því 90 nemar
útskrifuðust frá skólanum á dögunum. Ekki er
tekið inn í allar deildir en Ágúst Sigurðsson rektor
segir að tvöfalt fleiri umsóknir séu um nám á þeim
brautum sem nú er tekið inn á, miðað við síðast.
Ágúst segir að jöfn sókn sé í greinarnar. Flestar
umsóknir séu um BS-nám í búvísindum. Þá sækja
um sjötíu um starfsmenntanám í búfræði.
Enn fleiri vilja í háskóla
2.300 nemendur sækja um skólavist í HR sem er 10% aukning og heldur meiri
aukning er hjá HA Stefnir í enn meiri fjölgun hjá Landbúnaðarháskólanum
Morgunblaðið/Eyþór
Útskrift Margir stúdentar hyggja á háskólanám.
Uppboð á reiðhjólum, sem ratað hafa í óskilamunadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, verður haldið á
morgun, laugardag. Þetta er árviss viðburður sem jafn-
an hefur verið vel sóttur. Að þessu sinni verða boðin upp
105 reiðhjól og sjö barnavagnar og eru gripirnir seldir
hæstbjóðanda. „Fjöldi reiðhjóla sem fara á uppboðið hef-
ur haldist nokkuð jafn undanfarin ár og er yfirleitt á
bilinu 100 til 115,“ segir Telma Jónsdóttir, starfsmaður
óskilamunadeildar lögreglunnar. „Í ár verða einnig
nokkrir barnavagnar og kerrur á uppboðinu.“ Þessi við-
burður er jafnan vel sóttur og ljóst er að þar er hægt að
gera góð kaup. „Á síðasta ári var ódýrasta hjólið selt á
litlar tvö þúsund krónur en var nokkuð laskað en
dýrustu hjólin fóru á tæpar 50 þúsund krónur,“ segir
Telma. Áhugasömum er þó bent á að hafa það hugfast að
ástand reiðhjólanna er mjög misjafnt.
„Hjólin sem hér um ræðir eru sum hver illa farin og
fólk verður að hafa það í huga áður en það festir kaup á
hjóli. Við ástandsskoðum ekki hjólin þó svo að við pöss-
um upp á að selja ekki eitthvað sem er ónýtt. Það er
hægt að gera þessi hjól upp, en sum hafa til dæmis legið
úti á túni í margar vikur og þurfa því á einhvers konar
viðhaldi að halda.“ Uppboðið verður til húsa í Skútuvogi
8, Reykjavík, í húsnæði Vöku og hefst það stundvíslega
klukkan 11 á laugardag. Einungis er tekið við debetkort-
um eða peningum. mariamargret@mbl.is
Hjól leita nýrra eigenda
Reiðhjólauppboð lögreglunnar vel sóttur viðburður
Í fyrra seldist ódýrasta hjólið á tvö þúsund krónur
Morgunblaðið/RAX
Reiðhjól Björk Jónsdóttir, starfsmaður óskilamunadeildar lögreglunnar, skoðar þau hjól sem boðin verða upp.
Erling Blöndal Bengts-
son, sellóleikari, lést í
gærmorgun í Michigan
í Bandaríkjunum, 82
ára að aldri.
Erling Blöndal
Bengtsson var einn
fremsti konsertsellisti
sinnar kynslóðar og lék
með flestum helstu sin-
fóníuhljómsveitum
heims. Hann fæddist í
Kaupmannahöfn 8.
mars árið 1932, sonur
hjónanna Sigríðar Niel-
sen frá Ísafirði og
danska fiðluleikarans
Valdemars Bengtssons. Hann vakti
snemma athygli fyrir tónlistarhæfi-
leika og faðir hans gaf honum litla
fiðlu þegar hann var þriggja ára. Er-
ling sagði síðar frá því að þegar hann
ætlaði að spila á fiðluna vildi hann
alltaf hafa hana á milli fóta sér eins
og selló. Þá ákváðu foreldrar hans að
láta smíða fyrir hann selló. Þetta
selló gaf Erling Tónlistarsafni Ís-
lands árið 2011 ásamt fleiri munum.
Erling kom fyrst fram opinberlega
á tónleikum í Kaupmannahöfn þegar
hann var fjögurra ára. Hann hélt tón-
leika á Ísafirði árið 1946 og tveimur
árum síðar styrkti Tónlistarfélagið á
Íslandi hann til náms í Curtis-
tónlistarháskólanum í
Philadelphiu í Banda-
ríkjunum í tvö ár. Eftir
það var Erling ráðinn
kennari við skólann og
árið 1953 var hann ráð-
inn prófessor í sellóleik
við Konunglega tón-
listarháskólann í
Kaupmannahöfn.
Hann flutti síðan til
Bandaríkjanna árið
1989 og tók við pró-
fessorsstöðu við tón-
listardeild Michi-
ganháskóla.
Erling heimsótti Ís-
land oft og sagði í viðtali við Morg-
unblaðið árið 2011, að tónlistarlíf sitt
hefði ekki verið eins án Íslands. Síð-
ustu tónleikana hér á landi hélt hann
árið 2007 í Laugarborg í Eyjafjarð-
arsveit. Hann var m.a. sæmdur stór-
riddarakrossi fálkaorðunnar og fyrr
á þessu ári veitti Ásta R. Jóhann-
esdóttir, þáverandi forseti Alþingis,
Erling verðlaun Jóns Sigurðssonar
forseta. Stytta af Erling, eftir Ólöfu
Pálsdóttur, myndhöggvara, stendur
á Hagatorgi í Reykjavík.
Eftirlifandi eiginkona Erlings er
Merete Blöndal Bengtsson. Þau
eignuðust tvo syni, Henrik og Stef-
án.
Andlát
Erling Blöndal
Bengtsson, sellóleikari
„Veðrið hefur verið alveg svakalega
fínt; logn og sól. Margir hafa
brunnið, en fjöldi fólks hefur komið
í sund í dag,“ sagði Hafsteinn Óla-
son, sundlaugarvörður á Egils-
stöðum, en þar mældist 20 stiga hiti
í gær og var það hæsti hiti sem
mældist á landinu. Grípa þurfti til
þess ráðs að opna aukabúningsklefa
til að taka á móti sundlaug-
argestum.
Hitinn hefur verið í kringum tutt-
ugu stig, heiðskírt og lítill vindur
síðustu þrjá daga á Austur- og
Norðurlandi. Þó að spáð sé að dragi
aðeins fyrir sólu á Egilsstöðum í
dag og á morgun er reiknað með 18
stigum og léttskýjuðu á laugardag.
Mikil veðurblíða var einnig á
Akureyri í gær, annan daginn í röð;
logn, heiðskírt og hlýtt í veðri. Hita-
stigið fer þó lækkandi á landinu.
„Undanfarna þrjá daga hefur hiti
náð 20 stigum víða á Norðaustur-
landi og meira að segja víðar. Hlýj-
asta loftið er nú farið hjá (til norð-
austurs) og ívið kaldara loft fylgir í
kjölfarið,“ segir Trausti Jónsson
veðurfræðingur í bloggfærslu sinni.
Hitinn næstu daga verður á
bilinu átta til tuttugu stig. Undir
kvöld í dag verður vætusamt sunn-
an- og vestanlands, en þurrt á
Norðurlandi. thorunn@mbl.is
Sólríkt á Norðausturlandi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmunds
Kólnar lítillega
í veðri á næstunni
„Þetta eru allt gripir sem hafa verið
að koma inn til okkar í nokkurn tíma.
Við höldum alltaf fínustu hlutunum
til haga. Það hefur alltaf verið
draumurinn að halda sérstæð upp-
boð líka eins og þetta, þar sem um
sérstakt listmunauppboð var að
ræða. Það eru alltaf tvö uppboð á ári
af blönduðum hlutum,“ segir Sigrún
Vikingur, aðstoðarverslunarstjóri
Góða hirðisins, en sérstakt listmuna-
uppboð var haldið þar í gær og söfn-
uðust 465 þúsund krónur. Boðnir
voru upp ýmsir fágætir listmunir,
þeirra á meðal voru átta munir eftir
Guðmund frá Miðdal og aðrir gripir
honum tengdir eins og skál sem
barnabarn hans, Guðmundur Ein-
arsson, bjó til.
Dýrasti hluturinn sem boðinn var
upp var stytta af fíl ásamt afkvæmi
sínu eftir Guðmund og seldist hún á
100 þúsund krónur. Tveir silfurpen-
ingar ásamt einum gullpeningi seld-
ust á 67 þúsund krónur.
Lárus Blöndal, sálfræðingur hjá
SÁÁ, tók á móti peningaupphæðinni
en allur ágóði rann til styrktar
Barnahjálp SÁÁ. Næsta uppboð
verður í haust og eins og venjan er
mun allur ágóði renna til góðgerð-
armálefnis. Hæsta upphæð sem hef-
ur safnast í einu uppboði er yfir
700.000 krónur og það var haldið árið
2008. thorunn@mbl.is
Fíll Guðmundar frá
Miðdal seldist dýrt
465.000 krónur söfnuðust á uppboði
Uppboð Fíllinn eftir Guðmund frá
Miðdal seldist á 100 þúsund krónur.
„Aðsókn hefur vaxið jafnt og
þétt hjá okkur undanfarin ár en
núna eykst hún meira,“ segir
Ágúst Sigurðsson, rektor Land-
búnaðarháskóla Íslands, sem
starfar á Hvanneyri en einnig á
Reykjum í Ölfusi.
Hann telur að aukin aðsókn
stafi ekki síst af vaxandi áhuga
á náttúrutengdum greinum sem
skólinn grundvallast á. En skýr-
ingarnar eru fleiri að hans mati:
„Þá held ég að orðspor okkar sé
ágætt. Það staðfestist í mikilli
gæðaúttekt sem gerð var. Þar
er lýst yfir miklu trausti á skóla-
starfinu. Það hlýtur að segja
sína sögu. Námið er gott og get-
ur nýst nemendum vel. Þess
vegna sækja þeir um.“
Áhugi á
náttúrunni
VAXANDI AÐSÓKN