Morgunblaðið - 07.06.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
Ný verslun verður
opnuð laugardaginn
8. júní í Hlíðasmára 3. Frábæropnunar-
tilboð.
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
Ég neita því alltaf að égsafni frímerkjum, égfleygi þeim hins vegarekki. Minn áhugi kvikn-
aði í barnæsku. Þá söfnuðu krakkar
frímerkjum, klipptu þau út, leystu
límið upp og röðuðu merkjunum í
bækur. Þetta voru frímerki hvaðan-
æva úr heiminum. Í þessu var falin
landafræði, saga og náttúrufræði,“
segir Hrafn Hallgrímsson, einn af
aðstandendum frímerkjasýning-
arinnar NORDIA 2013 sem haldin
er í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ
nú um helgina.
Í tengslum við sýninguna var
haldin teiknimyndasamkeppni með-
al grunnskólabarna í Garðabæ í 5. og
8. bekk. Í keppnina bárust 150
myndir frá Álftanesskóla, Hofs-
staðaskóla, Flataskóla, Garðaskóla
og Sjálandsskóla. Á morgun mun
dómnefnd tilkynna þrjá vinnings-
hafa í flokki yngri barna og þrjá í
flokki eldri. Verðlaunin verða örk af
viðkomandi verðlaunamyndum á
svonefndum einkafrímerkjum sem
Íslandspóstur gerir. Einnig fær hver
þátttakandi viðurkenningarskjal frá
landssambandinu.
Mörg börn sem vita ekki
hvað frímerki er
„Samskonar samkeppni hefur
fylgt þessum sýningum langflestum.
Þetta er líka kærkomið fyrir kenn-
arana að geta boðið krökkunum upp
á svona einbeitt starf eins og í þessu
tilfelli. Hér eru íþróttir gefnar sem
viðfangsefni. Það er dálítið gaman að
sjá fjölbreytnina. Á einni mynd má
sjá skylmingar og öðrum hesta-
íþróttir, ballett, fimleika og svo er
náttúrlega mikið af fótboltamynd-
um,“ segir Hrafn sem ítrekar að erf-
itt sé að dæma í slíkum keppnum þar
sem honum finnst ekki alltaf rétt að
vera að draga eitthvað út sem á að
vera best enda sé þetta alltaf mat
nokkurra. „Það er aðallega tilfinn-
ingin sem ræður þegar dæmt er en
auðvitað leitum við eftir færni og
hugmyndaflugi. Best er ef eitthvað
kemur manni aðeins á óvart. Sumar
myndir komu manni fullmikið á
óvart,“ segir Hrafn og hlær.
„Ég held að í dag átti margir
krakkar sig ekki á hvað frímerki er.
Frímerkjasöfnun er að svo miklu
leyti dottin upp fyrir. Það eru nokkr-
ir krakkar í Seljakirkju sem eru að
leysa upp frímerki og setja í bækur.
Þetta var náttúrlega gífurlega mikið
starf fyrir um 30 árum. Þá var sér-
stök unglingasýningadeild og ung-
lingar kepptu stundum í frímerkja-
fræðum,“ segir Hrafn en það er
dottið upp fyrir í dag.
Hrafn segir að Íslendingar hafi
sóst eftir því að halda sýninguna hér
á landi í ár. „Það er vegna þess að nú
Frímerkin hluti af
menningarsögu þjóðar
Landssamband íslenskra frímerkjasafnara efnir til norrænnar frímerkjasýningar,
NORDIA 2013, nú um helgina. Í tengslum við sýninguna var efnt til teikni-
myndasamkeppni meðal grunnskólabarna í Garðabæ þar sem þemað var íþróttir.
Hrafn Hallgrímsson, ritstjóri Frímerkjablaðsins og einn aðstandandi sýning-
arinnar, telur mikilvægt að kynna frímerkin fyrir börnum.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Frímerki Hrafn Hallgrímsson, einn af aðstandendum NORDIA 2013, vill ekki
meina að hann safni frímerkjum en segist aftur á móti aldrei fleygja þeim.
Undanfarin ár hefur Hitt húsið starf-
rækt listhópa sem hafa skemmt íbú-
um Reykjavíkurborgar yfir sumartím-
ann. Ungu listþenkjandi fólki gefst
þar tækifæri til þess að hugsa út fyrir
rammann og skapa list sýnilega veg-
farendum. Hóparnir samanstanda af
16-28 ára ungmennum sem fá átta
vikur til að vinna að verkum sínum.
Stór hluti þeirra sem taka þátt í verk-
efninu eru nemendur við Listahá-
skóla Íslands eða aðra listaskóla á
háskólastigi og því mjög efnilegir
einstaklingar á ferð. Yngri listamönn-
um er einnig gefið tækifæri til að
sýna sig og sanna og eru þau verk
ekki síðri. Á fésbókarsíðu listhóp-
anna, facebook.com/listhopar, má
kynna sér hvern hóp fyrir sig en þeir
eru alls níu talsins. Meðal þeirra sem
taka þátt í verkefninu í ár er hópurinn
Slagverk sem einhverjir glöggir bæj-
arbúar ættu að hafa glöggvað sig á
nú þegar á umferðareyjum miðborg-
arinnar. Hópurinn ætlar sér að tvinna
saman ásláttarhljóðfærum og mynd-
list í svokölluðum slag-verkum.
Vefsíðan www.facebook.com/listhopar
Morgunblaðið/Eggert
Frumlegt Margir reka upp stór augu þegar listhóparnir eru við störf.
Listin gleður vegfarandann
Vinsælt hefur verið upp á síðkastið
að sækja ýmsa fatamarkaði og not-
uð föt oft talin verðmætari en ný.
Á morgun, laugardaginn 8. júní,
mun fiðluleikarinn Rut Ingólfs-
dóttir einmitt efna til fatamark-
aðar á heimili sínu í Háuhlíð 14.
Rut, sem hefur lengi verið einn
ástsælasti fiðluleikari þjóðarinnar,
býður upp á margslungið góss en
þar má nefna kjóla, jakka, buxur,
pils, skó og töskur. Markaðurinn
verður opinn frá 11 til 15 og verður
í kjallara hússins. Gengið er inn á
bak við bílskúrinn.
Fiðluleikarinn Rut Ingólfsdóttir býður heim
Fatamarkaður
í heimahúsi
Fiðluleikari Rut hyggst selja föt.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Í ár eru 30 ár síðan foreldrar mínir
útskrifuðust úr Menntaskólanum í
Kópavogi. Í ár eru einnig 25 ár síðan
þau giftu sig og þau urðu bæði fimm-
tug á árinu. Ætla mætti að foreldrar
mínir myndu gera eitthvað stór-
fenglegt til að halda upp á 210 ára af-
mælið og vissulega bauð mamma í
huggulega veislu þegar hún var
fimmtug. Annars þykjast þau lítið
gefin fyrir partístand en það er auð-
vitað haugalygi því ég hef séð þau
skekja sig á dansgólfinu eins og
Abba-kynslóðinni einni er lagið.
Hinn 4. júní síðastliðinn fékk ég
sms frá móður minni: „Hey var að
fatta – 25 ára brúðkaupsafmæli í
dag.“
Ég hringdi auðvitað samstundis
hneyksluð í mömmu, óskaði
henni til hamingju með
ströngum tón og spurði svo
hvort pabbi hefði nokkra vit-
und um mikilvægi þessa til-
tekna þriðjudags. „Örugg-
lega ekki,“ sagði
mamma, „en ég sendi
honum samt líka
sms.“ Það var öll róm-
antíkin þann daginn.
Áhyggjufulla les-
endur get ég full-
vissað um að foreldrar
mínir eru ekki að ganga
í gegnum aldarfjórð-
ungskrísu. Þau bæta
hvort annað upp á ein-
stakan máta og eru
næstum óþægilega
krúttlegt par á köflum.
Á mínu heimili hefur bara
aldrei verið gert mikið mál úr svona
hlutum.
Þessi skortur foreldra minna á
nýtingu tyllidaga hefur mér alltaf
þótt miður. Þau hafa ávallt verið
dugleg við að fagna sigrum okkar
systkinanna, bæði stórum og
smáum, en láta sína eigin gjarnan
liggja á milli hluta.
Það er þó líklega einmitt það sem
gerir foreldra mína að frábæru pari.
Þau þurfa ekki að instagramma
hamingju sína eins og svo margir á
mínu reki. Mamma og pabbi eru ekki
bara ástfangin í filter.
Einu sinni sagði mamma við mig:
„Þegar kemur að strákum áttu
ekki að einblína á það sem þú fílar
við hann. Það sem skiptir máli
er hversu vel þú þolir gall-
ana hans.“
Ást er ekki bara
afmæli og róm-
antík. Ást er að
elska hvort annað
þegar við erum
morgunandfúl,
með fyrirtíðaspennu
eða gleymum að setja
niður setuna.
Farðu samt að bjóða
mömmu á deit pabbi minn.
»„Hey var að fatta –25 ára brúðkaups-
afmæli í dag“
Heimur Önnu Marsý
Anna Marsibil Clausen
annamarsy@mbl.is