Morgunblaðið - 07.06.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
Bókahillur
Eldtraustir skápar
Skjalaskápar
Skjalakerfi
Smávörukerfi
Fjölbreytt úrval
Frábær þjónusta
Lagerbakkar
Brettakerfi
Smávörukerfi
Árekstrarvarnir
Milligólf
Verslunarhillur
Verðmerkilistar
Gínur
Útiskilti
Fataslár
Brautarholt 26–28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Fleiri lausnir –
meiri þjónusta
Við leggjum saman áralanga reynslu og þekkingu
beggja aðila, og aukum þannig fjölbreytni í lausnum
og þjónustu fyrir viðskiptavini.
Verslunarrými
Lagerrými
Skrifstofurými
Lyftur og lyftarar
Sjálfvirkar hurðir og hurðaopnarar
PIPA
R
\
TBW
A
•
SÍA
Rými og RÍ verslun hafa sameinað
krafta sína í eitt öflugt fyrirtæki.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þjóðgarðsvörðurinn á Þingvöllum
telur að þinghelgin þoli vel það álag
sem fylgir þeirri umferð ferðamanna
sem nú er og jafnvel meiri. Til þess
þurfi þó innviðirnir að vera góðir. Í
sumar verða smíðaðir pallar og
brautir á tveimur stöðum. Nú stefnir
í að tvöfalt meiri tekjur fáist fyrir að-
gang kafara en reiknað var með.
Um þrjú þúsund manns hafa kafað
í Silfru og öðrum gjám Þingvalla þá
þrjá heilu mánuði sem liðnir eru frá
því að byrjað var að selja aðgang að
gjánum. Það þýðir að Þjóðgarðurinn
hefur fengið yfir 3 milljónir í tekjur
til að standa undir eftirliti og úrbót-
um á aðstöðu. Stefnir í að heildar-
tekjur á ári verði 10-12 milljónir í
stað 6 milljóna sem reiknað var með í
upphafi.
Ljót sár á Þingvöllum
Ljót sár eru á bökkum gjánna eft-
ir traðk kafara og annarra ferða-
manna. Sett var upp lágmarks-
aðstaða áður en gjaldtakan hófst.
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðs-
vörður segir að ef fjármunir skili sér
eins og nú stefni í verði hafist handa í
haust við að leggja brautir og palla
meðfram gjánum og Silfru og loka
fyrir umferð á vissum svæðum. Hug-
myndin er að leggja járnristar í
brautirnar. Ólafur Örn segir að það
taki áratugi fyrir gróðurinn að jafna
sig og líklegt sé að bera verði mosa í
sárin.
Gróður hefur verið troðinn niður
við endann á göngustígnum að
Öxarárfossi enda er enginn útsýnis-
pallur til að taka við umferðinni af
stígnum. Þar er nú eitt flag enda oft
úði frá fossinum. Verið er að ljúka
hönnun á þessum palli og verður
hann smíðaður í sumar, að sögn
Ólafs.
Djúpur stígur hefur myndast við
Drekkingarhyl og runnið úr hon-
um. Hann verður lagaður á þessu
ári. Útsýnisstaðurinn við Nikulás-
argjá og Flosagjá, svokallaða Pen-
ingagjá, er illa farinn vegna átroðn-
ings ferðamanna og einnig svæði á
gjábörmum austan við bílaplanið.
Ólafur Örn segir ekki til fjármuni
til að vinna að úrbótum þar í ár.
Göngubraut sem gerð var á milli
kirkjugarðs og árinnar, neðan Þing-
vallabæjarins, stóð af sér vorflóðin
og hefur sannað gildi sitt.
Talið er að hálf milljón ferða-
manna leggi leið sína á Þingvelli á ári
og annar eins fjöldi aki í gegnum
þjóðgarðinn.
Milljón á mánuði í úrbætur
Tvöfalt fleiri greiða fyrir köfun í Silfru en reiknað var með Tekjurnar notaðar til að auka öryggi
og verja umhverfi Unnið að pallasmíði við Öxarárfoss og Drekkingarhyl en Peningagjáin bíður
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Áníðsla Barmar gjánna á Þingvöllum eru illa farnir vegna átroðnings gesta þjóðgarðsins. Fjármunir sem kafarar
greiða eru notaðir til úrbóta. Sautján ferðamenn voru að snorkla í Silfru, á vegum eins fyrirtækis.
Þingvalla-
nefnd hefur
óskað eftir
130 milljóna
kr. auka-
fjárveitingu
til að leysa úr
bráðavanda
við móttöku
ferðafólks.
Samkvæmt
áætlunum Þjóðgarðsins þarf 750
milljónir á næstu þremur árum
til að bæta gestamóttökuna.
Ólafur Örn segir að það sjáist
á Þjóðgarðinum hversu mikil um-
ferð ferðamanna var í vetur. Ekki
hafi verið aðstaða til að taka á
móti þessum fjölda.
Lögð er áhersla á að stækka
bílastæðin við Hakið og hefja
stækkun á gestastofunni. Þá er
talið brýnt að tengja útsýnispall-
inn við göngubrautina niður Al-
mannagjá og leggja hellur í stað
lélegs malbiks á Hakinu. Þá er í
áætlunum að stækka verslun,
koma upp kaffihúsi og bæta að-
stöðu fyrir fræðslusýningu í
gestamóttökunni.
Örtröð á
bílastæðinu
SÓTT UM FJÁRVEITINGU
Ólafur Örn
Haraldsson