Morgunblaðið - 07.06.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRFréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fataframleiðandi
fagfólksins
BRAGARD
Gögn Mörg stórfyrirtæki hafa skoð-
að Ísland sem stað undir gagnaver.
„Þetta er frekari staðfesting á því
sem við höfum vitað. Ísland hefur
mikil tækifæri á þessum gríðarstóra
markaði sem er fyrir gagnaverin.
Okkar verkefni er að nýta þessi
tækifæri og gera umhverfið sam-
bærilegt við það sem gerist annars
staðar í Evrópu,“ segir Kolbeinn
Einarsson hjá Advania Thor Data
Center, en hann er formaður Sam-
taka gagnavera á Íslandi, DCI.
Hann hefur kynnt sér þessar
skýrslur um gagnaverin sem hafa
komið út að undanförnu og bendir á
að Cushman & Wakefield sé virt ráð-
gjafarfyrirtæki og óháður aðili við
mat á kostum og göllum þessara
ríkja sem helst keppa um gagnaver-
in.
Kolbeinn segir að horfa verði til
landa eins og Bretlands, Hollands,
Írlands og Svíþjóðar sem hafi mark-
visst reynt að laða til sín gagnaver
með ýmsum aðgerðum. Hér á landi
þurfi að tryggja að umhverfið sé vel
samkeppnishæft þegar kemur að
tolla- og skattamálum gagnavera. Ís-
land geti boðið græna orku á hag-
stæðu verði, en um helmingur orku
til hefðbundinna gagnavera fer í að
kæla tölvubúnaðinn.
Kolbeinn segir fyrirhugaðan sæ-
streng Emerald breyta miklu fyrir
Ísland. Nauðsynlegt sé að fá fleiri
aðila á þann markað, auk þess sem
öryggi í tengingum eykst, sér í lagi
vestur um haf. „Ég er sannfærður
um að við verðum ofarlega á þessum
lista næstu árin en þetta er sýnd
veiði en ekki gefin. Það verður að
vera til staðar samstillt átak stjórn-
valda og iðnaðarins. Við erum að tala
um gríðarlegar fjárfestingar við að
koma búnaði fyrir í einu gagnaveri
og menn taka ekki slíkar ákvarðanir
af neinni léttúð,“ segir Kolbeinn að
endingu. bjb@mbl.is
Ísland hefur
mikil tækifæri
Segir sæstreng Emerald breyta miklu
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ísland fellur niður um þrjú sæti á
lista yfir þau 30 lönd í heiminum sem
þykja eftirsóknarverðust til að starf-
rækja gagnaver. Samkvæmt nýrri
skýrslu bandaríska ráðgjafarfyr-
irtækisins Cushman & Wakefield
(C&W) lendir Ísland í 7. sæti en var í
því fjórða á síðasta ári. Skýrslan
kemur út árlega og mælir helstu
kosti og galla þeirra landa sem kepp-
ast um að fá til sín ný gagnaver. Fyr-
ir ofan Ísland á listanum eru Banda-
ríkin, Bretland, Svíþjóð, Þýskaland,
Kanada og Hong Kong. Á eftir Ís-
landi, með svipaða einkunn, eru Nor-
egur, Finnland og Katar.
Þessar niðurstöður koma eflaust
einhverjum á óvart en Ísland hefur
verið talið í hópi eftirsóknarverðustu
ríkja heims þegar kemur að um-
hverfi og aðstöðu til að reisa gagna-
ver. Þar hefur umhverfisvæn og
ódýr orka verið nefnd, hátt mennt-
unarstig, kalt loftslag og öryggi í
gagnaflutningum, allt þættir sem
skipta miklu máli fyrir uppbyggingu
gagnavers.
Niðurstöður Cushman & Wakefield
eru einnig á skjön við nýlega skýrslu
BroadGroup, sem unnin var fyrir
Landsvirkjun. Hún leiddi fram að Ís-
land uppfyllti öll skilyrði sem lögð
væru til grundvallar við uppbyggingu
gagnavera. Til lengri tíma litið væri
ódýrast að reka gagnaver á Íslandi,
ódýrara en í þeim löndum sem lenda
fyrir ofan Ísland á lista C&W.
Alls eru 30 lönd tekin fyrir í
skýrslu C&W. Tekið er tillit til 13
mismunandi atriða, eins og orku-
kostnaðar, gæða nettenginga og
bandvíddar, viðskiptaumhverfis, op-
inberra gjalda, launakostnaðar,
stöðugleika í stjórnmálum, sjálf-
bærni og náttúruhamfara. Þrjú fyrst
töldu atriðin hafa mest vægi í þess-
ari vísitölu en minnst vægi hafa
landsframleiðsla, verðbólga og að-
gangur að vatni. Ísland skorar
reyndar hæst með vatnið en er einn-
ig efst á lista varðandi sjálfbærni
viðkomandi þjóða. Þeir þættir sem
helst draga Ísland niður eru gæði
bandvíddar og nettenginga við um-
heiminn, hár launakostnaður, póli-
tískur óstöðugleiki og nátt-
úruhamfarir. Athyglisvert er að sjá
Ísland í 29. sæti af 30 mögulegum
hvað tengingar varðar en Farice er
með tvo sæstrengi til og frá landinu.
Þá er Ísland í 8. sæti varðandi orku-
kostnað og í sama sæti í afhending-
aröryggi orkunnar.
Lagast með Emerald
Í umsögn sinni um Ísland segja
skýrsluhöfundar Cushman & Wake-
field að landið hafi áður verið efst
Norðurlandaþjóða á listanum en fall-
ið um þrjú sæti og misst Svíþjóð upp
fyrir sig. Hár launakostnaður og
stöðnun í framboði á háhraðanet-
sambandi við útlönd séu meðal
þeirra þátta sem hafi haft neikvæð
áhrif á stöðu Íslands. Skýrsluhöf-
undar benda á að netsambandið
muni hins vegar batna til muna með
fyrirhugðum sæstreng Emerald Ex-
press sem mun tengja saman Banda-
ríkin, Kanada, Bretland og Ísland.
Ísland niður um þrjú sæti
Áhætta við að reisa gagnaver á Íslandi hefur aukist Ísland lækkar í 7. sæti á
lista Cushman & Wakefield Staðan batnar með Emerald Express-sæstrengnum
Hvar í heiminum er best að reisa gagnaver?
1. Bandaríkin 100 3 1 3 30 18 20 20 29 1 17 8 10 11 1
2. Bretland 89,53 21 2 5 12 16 15 26 12 13 23 17 17 21 2
3. Svíþjóð 82,29 15 10 10 11 26 3 4 3 9 15 6 4 9 8
4. Þýskaland 81,29 19 4 15 25 25 8 15 9 16 20 15 10 24 3
5. Kanada 81,16 4 11 13 19 20 2 10 23 2 1 7 5 2 5
6. Hong Kong 79,63 27 3 2 4 9 10 28 16 23 29 5 22 22 7
7. Ísland 79,47 8 29 11 8 21 20 1 18 7 8 14 24 1 4
8. Noregur 79,45 13 19 4 19 30 1 3 15 12 6 2 3 3 12
9. Finnland 78,74 11 22 8 13 24 3 7 1 15 30 12 20 7 9
10. Katar 78,37 1 30 21 2 28 12 30 2 19 7 1 8 30 6
Rö
ð 2
01
3
La
nd
Vís
ita
lan
Ne
tte
ng
ing
og
ba
nd
víd
d
Við
ski
pta
-
um
hv
erfi
Op
inb
er
gjö
ld La
un
a-
ko
stn
að
ur
Pó
lití
sku
r
stö
ðu
gle
iki
Sjá
lfb
ær
ni
Ná
ttú
ru-
ha
mf
ari
r
Me
nn
tun
Or
ku
-
öry
gg
i
La
nd
s-
fra
ml
lei
ðs
la
Ve
rðb
ólg
a
Að
ga
ng
ur
að
va
tni
Rö
ð
20
12Or
ku
-
ko
stn
að
ur
60% vægi 35% vægi 5% vægi
Tíu efstu löndin í skýrslu Cushman &Wakefield: Data Centre Risk Index 2013
Gagnaver Verne Global starfrækir gagnaver á Ásbrú í Reykjanesbæ en
annað er starfrækt í Hafnarfirði af Advania Thor Data Center.
„Við höfum rætt þessi mál við
marga aðila sem hafa verið að
skoða gagnaver á Íslandi. Í
þeirra huga er landið ekki nógu
vel tengt til
að réttlæta
miklar fjár-
festingar í
gagnaverum.
Þessi út-
koma Ís-
lands kemur
ekki svo
mjög á
óvart,“ segir
dr. Gísli
Hjálmtýsson,
framkvæmdastjóri fjárfestinga-
félagsins Thule Investments,
um niðurstöðu skýrslunnar en
Gísli á sæti í stjórn Emerald.
„Hér hefur einn aðili verið að
bjóða tengingar til og frá land-
inu og ekki alltaf á samkeppn-
isforsendum. Þeir staðir sem
við keppum við undir gagnaver
eru tengdir með mörgum
strengjum, þannig að öryggið er
allt annað og meira. Þess vegna
er nauðsynlegt að koma með
þriðja strenginn sem rekinn er
af einkafyrirtæki og á
samkeppnisforsendum. Við
heyrum einnig hjá Emerald að
menn eru mjög spenntir fyrir
tengingu við Bandaríkin,“ segir
Gísli.
Ísland í harðri samkeppni
Hann bendir á að Ísland eigi í
harðri samkeppni við önnur
lönd. Þau séu hins vegar ekki
mörg og það sé í raun ekki
slæmt að lenda í 7. sæti.
Strengur Emerald muni ýta Ís-
landi upp aftur. Mest sé sam-
keppnin við Svíþjóð og Írland
hér á norðurslóðum. Gísli segir
það slæmt að hafa misst Svía
upp fyrir okkur. Þeir virðist
markvisst beina sínu markaðs-
starfi gegn Íslandi og hafi feng-
ið til sín stórfyrirtæki á sviði
upplýsingatækninnar, t.d.
Facebook sem hafi vandlega
skoðað möguleika á Íslandi.
Kemur ekki
mjög á óvart
GAGNAVERSFJÁRFESTIR
Gísli
Hjálmtýsson