Morgunblaðið - 07.06.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
Handverksbakarí
fyrir sælkera
MOSFELLSBAKARÍ
Aldagamlar aðferðir í bland
við nýjar til að gefa hverju
brauði sinn karakter.
Úrval af hollum og góðum brauðum
unnum úr gæða hráefnum.
Við bökum 100% speltbrauð,
heilkornabrauð, gerlaus brauð,
ítölsk brauð, hvítlauksbrauð,
kúmenbrauð, sigtibrauð o.fl. o.fl.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
STUTTAR FRÉTTIR
● WOW air flaug sitt fyrsta flug til
Amsterdam í fyrradag en félagið mun
fljúga áætlunarflug þangað þrisvar
sinnum í viku í allt sumar. Einnig fór
WOW air sitt fyrsta flug til Vilnius í
Litháen í fyrradag.
Það tekur rúma þrjá tíma að fljúga til
Amsterdam og við komuna á Schiphol-
flugvöll, sem er einn sá stærsti í Evr-
ópu, var vel tekið á móti fluggestum,
samkvæmt því sem fram kemur í til-
kynningu.
Nánar á mbl.is
Fyrsta flug WOW air til
Amsterdam og Vilnius
● Halli var á vöruskiptum við útlönd í
maí síðastliðnum upp á 6,6 ma.kr. sam-
kvæmt bráðabirgðatölum sem Hag-
stofa Íslands birti í gær. Þetta er mesti
halli sem mælst hefur í einum mánuði á
vöruskiptum við útlönd síðan í júlí árið
2008, en frá hruni hefur aðeins tvisvar
sinnum áður mælst halli á vöruskiptum.
Síðast mældist halli í maí í fyrra, en þá
hljóðaði hann upp á 1,9 ma.kr., reiknað
á föstu gengi.
6,6 milljarða halli á
vöruskiptum í maí
Hlutafjárútboði í Regin hf. lauk í
fyrradag. Í útboðinu bauð Eignar-
haldsfélag Landsbankans ehf. til
sölu 325.000.000 hluti í Regin hf.,
sem samsvarar 25% af útgefnum
hlutum í félaginu. Lágmarksgengi í
útboðinu var 12 krónur á hlut og
þurftu tilboðsgjafar að lágmarki að
bjóða í 2.000.000 hluti.
Í fréttatilkynningu frá Lands-
bankanum kemur fram að tilboð bár-
ust í hluti fyrir rúmlega 7,5 milljarða
króna og ákveðið var að taka til-
boðum í 325 milljónir hluta, að verð-
mæti liðlega 4 milljarðar króna.
Samþykkt voru tilboð sem voru á
bilinu 12,20-12,81 krónur á hlut og
var vegið meðalgengi samþykktra
tilboða 12,52 krónur á hlut. Af sam-
þykktum tilboðum þurfa einungis
þeir fjárfestar sem buðu 12,20 krón-
ur á hlut að sæta skerðingu.
Markaðsviðskipti Landsbankans
hf. höfðu umsjón með sölu hlutanna.
Gjalddagi og eindagi greiðslu vegna
útboðsins er þann 10. júní nk.
Morgunblaðið/Kristinn
Reginn Landsbankinn hefur nú selt þau 25% sem hann átti enn í Regin, en í
fyrra seldi bankinn 75% í félaginu og það var skráð á markað.
25% í Regin seld á
rúma 4 milljarða
Þeir sem buðu lægst sæta skerðingu
hækkað mikið í verði frá því í janúar
2008, t.d. hefur soja, sem telur að sögn
kunnugra um 15% af fóðurnotkun, um
það bil tvöfaldast í verði og bygg
hækkað um 88%. Á sama tíma hafi
svínakjöt hækkað um 47%.
Tóku hækkanir á sig
„Svínabændur tóku stóran hluta af
þessum fóðurverðshækkunum á sig í
stað þess að fleyta þeim í verðlagið.
Sömu sögu er ekki að segja af nærri
neinum öðrum matvörum,“ segir hann
og nefnir hveiti sem dæmi. Til að tak-
ast á við þessar miklu verðhækkanir
hafi svínabændur til að mynda nýtt
íslenskt korn í vaxandi mæli.
Töluvert af erlendu svínakjöti hefur
verið flutt til landsins á síðustu árum.
„Oft sér maður um helming svínakjöts
í sumum lágvöruverslunum hér á landi
merktan sem erlendan,“ segir Geir
Gunnar og bætir við að merkja mætti
betur uppruna og aldur þess kjöts fyr-
ir neytendur. Árið 2007 voru tollar á
innfluttum kjötvörum frá Evrópusam-
bandslöndunum lækkaðir um 40%.
Einnig var samið um innflutning á 200
tonnum á svínakjöti á ári án tolla.
„Þetta eru ekki gagnkvæmir samning-
ar. Ég get til að mynda ekki flutt út
svínakjöt án þess að greiða þurfi af því
tolla í Evrópu,“ segir hann. Undanfar-
in ár hefur verið flutt inn mikið magn
af erlendu kjöti en hann fær ekki séð
að neytendur kaupi það á lægra verði
en hið íslenska nema síður væri.
Svínabændur myndu, að sögn Geir
Gunnars, ekki fremur en aðrir bændur
lifa það af ef tollar af búvörum yrðu
lækkaðir mikið eða með öllu afnumdir.
„Landbúnaður og þar með svínarækt
býr alls staðar við tollavernd. Af
hverju ættu íslenskir svínabændur,
sem vinna á litlum markaði, ekki að
búa við tollvernd, þegar öll önnur lönd
verja svínarækt með tollavernd og nið-
urgreiðslum? Af hverju ættu að gilda
önnur lögmál á Íslandi? Það væri afar
ósanngjarnt. Hafa verður líka í huga,
að íslensk svínarækt nýtur ekki ríkis-
styrkja eða niðurgreiðslna,“ segir
hann.
Rekstur svínabúa gangi þó almennt
þokkalega. „Reksturinn er í eðlilegum
farvegi en svínabændur hafa almennt
ekki mikið borð fyrir báru en svína-
bændur standa frammi fyrir miklum
breytingum á búrekstri næstu árin til
að uppfylla kröfur um bættan aðbúnað
og mun það kalla á mikil fjárútlát og
fjárfestingar,“ segir Geir Gunnar.
Honum leiðist tal um að svínarækt
sé iðnaðarframleiðsla. „Reykspúandi
verksmiðjur er hvergi að finna hjá
svínabúum. Við erum bændur, stund-
um búskap og tilheyrum íslenskum
landbúnaði. Íslenskir svínabændur
hafa náð miklum árangri í hagræðingu
í sínum rekstri undanfarin ár til mikilla
hagsbóta fyrir neytendur og munu
halda því áfram. Enginn er undanskil-
inn í því að vinna að hagræðingu í sín-
um rekstri, heldur ekki Finnur Árna-
son,“ segir Geir Gunnar.
Svínabændur segja gagn-
rýni Haga ómálefnalega
„Augljóst er að framleiðendur misnota þá vernd sem þeir njóta,“ sagði forstjóri
Verðþróun svínkjöts og fóðurs
300
250
200
150
100
50
jan.08 mar.13
Svínakjöt Neysluverðsvísitala Bygg Hveiti Soja
Heimild: Svínaræktarfélag Íslands
Óeðlilegt tímabil
» Forstjóri Haga segir í ný-
birtri ársskýrslu að innkaups-
verð fyrirtækisins á svínakjöti
hafi hækkað um 63% undan-
farin þrjú ár á sama tíma og
verðbólga hafi aukist um 13%.
» Framkvæmdastjóri Stjörnu-
gríss segir í samtali við Morg-
unblaðið að ósanngjarnt sé að
miða við þetta tímabil. „Of-
framleiðsla og of lágt verð ein-
kenndu árin 2009 og 2010.“
» Verðbólga hækkaði um
45,5% frá janúar 2008 til mars
2013. Á sama tíma hækkaði
vísitala svínakjöts um 15,2%.
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir í
nýbirtri ársskýrslu að innkaupsverð
fyrirtækisins á svínakjöti hafi hækkað
um 63% undanfarin þrjú ár á sama
tíma og verðbólga hafi aukist um 13%.
„Augljóst er að framleiðendur misnota
þá vernd sem þeir njóta og senda
reikninginn til íslenskra heimila,“
sagði hann og kallaði eftir auknu
verslunarfrelsi.
Geir Gunnar Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Stjörnugríss, segir í
samtali við Morgunblaðið að ósann-
gjarnt sé að miða við þetta tímabil.
„Offramleiðsla og of lágt verð ein-
kenndu árin 2009 og 2010. Auk þess
höfðu stór gjaldþrot mikil áhrif á verð-
lag það ár. Miklu eðlilegra er að horfa
aftur til ársins 2008 eða jafnvel enn
lengra til baka til að fá raunsæja mynd
af verðþróun á svínakjöti,“ segir hann.
Auk þess þurfi að setja verðhækkanir
á svínakjöti í samhengi við verðhækk-
anir á fóðri sem hafa verið miklar frá
árinu 2008 vegna gengisfalls krónu og
mikilla hækkana á fóðri.
Hörður Harðarson, formaður
Svínaræktarfélags Íslands, sagði ný-
verið í grein í Morgunblaðinu að verð-
bólga tímabilsins janúar 2008 til mars
2013 hefði verið 45,5%. „Á þessum
tíma hækkaði vísitala matar- og
drykkjarvara um 58,2%, vísitala kjöts
um 30,3% en vísitala svínakjöts aðeins
um 15,2%. Athygli vekur að vísitala
fyrir fatnað og skó, sem vega svipað í
heildarútgjöldum heimilanna og öll
innlend búvara, hefur á tímabilinu
hækkað um 74%.“
Geir Gunnar segir að fóðurverð sé
um helmingur af kostnaði svínabúa.
Samkvæmt gögnum frá Svínarækta-
félagi Íslands má sjá að fóður hefur
!"# $% " &'( )* '$*
+,+-,.
+/.-0
++.-0
,+-1,+
,2-//3
+/-00
+,/-..
+-,,0
+/,-/1
+3/-4.
+,+-35
+/.-/5
++.-.0
,+-1/1
,2-40.
+/-040
+,4-+1
+-,,.5
+/1-1.
+34-0+
,+5-20+1
+,+-/3
+//-1,
++/-2/
,+-003
,+-224
+/-30/
+,4-04
+-,1+,
+/1-4+
+34-/3
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á