Morgunblaðið - 07.06.2013, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
www.gilbert.is
ÚRAUPPBOÐ TIL STYRKTAR KRAFTI
Stuðningsfélagi ungs fólks sem greinst hefur
með krabbamein og aðstandenda þeirra.
Úrin eru skreytt af listamönnunum Tolla
og Línu Rut og rennur allur ágóði af
uppboðinu óskertur til Krafts.
Kynntu þér uppboðið nánar á
www.gilbert.is
www.kraftur.org
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Bretlandi og Frakklandi
hafa staðfest í fyrsta skipti að Sýr-
landsher hafi beitt efnavopnum en
fréttaskýrendur telja litlar líkur á að
það verði til þess að vestræn ríki hefji
hernaðaríhlutun í landinu.
Fréttaskýrendurnir spá því að
fréttir um að stjórnarher Sýrlands
hafi beitt efnavopnum í stríðinu hafi
lítil áhrif á framvinduna vegna and-
stöðu Rússa og Kínverja við hern-
aðaríhutun í landinu. Þeir telja lík-
legra að látið verði á það reyna hvort
hægt verði að binda enda á blóðs-
úthellingarnar með friðarviðræðum
sem Rússar og fleiri hafa beitt sér
fyrir nú í sumar.
Nadim Shehadi, sérfræðingur í
málefnum Mið-Austurlanda við hug-
veituna Chatham House, segir að
vangaveltur um hernaðaríhlutun í
Sýrlandi veki daprar minningar um
innrásina í Írak sem var réttlætt með
ásökunum um að Írakar hefðu komið
sér upp gereyðingarvopnum sem
aldrei fundust.
Shehadi segir að yfirlýsingar
Breta og Frakka um að Sýrlandsher
hafi beitt efnavopnum hafi litla þýð-
ingu ef þeim verði ekki fylgt eftir með
hernaðaríhlutun. „Og ef þær leiða til
íhlutunar er þetta það versta sem
hægt er að nota til að réttlæta hana.
Vegna þess að það myndi minna fólk
á hvað notað var til að réttlæta inn-
rásina í Írak. Fjöldamorðin sem ein-
ræðisstjórnin stendur fyrir eru næg
ástæða til íhlutunar,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir Shehadi.
Fréttaskýrandinn skírskotaði
einnig til yfirlýsinga Baracks Obama
forseta um að Bandaríkjamenn
kynnu að hefja hernað í Sýrlandi ef
efnavopnum yrði beitt í landinu.
Obama talaði um beitingu efnavopna
sem „rauða línu“ í því sambandi.
„Setja hefði átt rauðu línuna við
fjöldamorð einræðisstjórnarinnar á
íbúum Sýrlands,“ segir Shehadi. „Við
bjuggum til óeðlilega rauða línu með
því að segja að sýrlenska stjórnin
geti drepið fólkið svo fremi sem hún
beiti ekki efnavopnum.“
Eiga sinnepsgas, sarín og
hugsanlega VX-gas
Laurent Fabius, utanríkis-
ráðherra Frakklands, tilkynnti í
fyrsta skipti á þriðjudaginn var að
franska stjórnin hefði sönnun fyrir
því að taugagasinu sarín hefði verið
beitt nokkrum sinnum í Sýrlandi.
Breska stjórnin staðfesti seinna að
rannsókn hefði leitt í ljós að slíku
vopni hefði verið beitt í landinu.
Bandaríkjastjórn sagði hins vegar að
rannsaka þyrfti málið betur og ekki
hefðu komið fram fullnægjandi sann-
anir fyrir því að sýrlenski herinn
hefði beitt efnavopnum.
Talið er að alls hafi um 94.000
manns beðið bana frá því að blóðs-
úthellingarnar hófust í mars 2011 og
þar af hafi um 70 manns látið lífið í
efnavopnaárásum, að sögn hjálpar-
samtaka sem starfa í landinu.
Talið er að Sýrlandsher eigi mik-
ið magn af sinnepsgasi og saríni.
Bandaríska leyniþjónustan CIA telur
að herinn hafi einnig reynt að verða
sér úti um hættulegri efnavopn, með-
al annars VX-gas, sem er um það bil
tífalt eitraðra en sarín við innöndun
og öflugasta efnavopn sem vitað er
með vissu að framleitt hafi verið.
Talið er að Sýrlandsher geti
dreift eiturefnunum með sprengjum,
sprengikúlum og flugskeytum.
AFP
Sigri fagnað Hermenn Sýrlandsstjórnar aka um aðaltorgið í Qusayr, mikilvægum bæ sem stjórnarherinn náði á sitt
vald í fyrradag. Talið er að sigur stjórnarhersins í átökunum um Qusayr sé mjög mikilvægur fyrir stjórnina.
Íhlutun vegna efnavopna
í Sýrlandi talin ólíkleg
Talið er að um 70 manns hafi látið lífið í eiturefnaárásum í landinu
Barist á Gólanhæðum
» Sýrlandsher náði í gær á sitt
vald landamærastöð á Gólan-
hæðum eftir að uppreisnar-
menn lögðu hana undir sig.
» Herinn beitti skriðdrekum í
hörðum átökum um landa-
mærastöðina. Átökin kyntu
undir áhyggjum af því að stríð-
ið í Sýrlandi gæti breiðst út til
grannríkjanna. Ísraelar óttast
að íslamistar úr röðum sýr-
lenskra uppreisnarmanna eða
Hizbollah-menn, sem berjast
með stjórnarhernum, ráðist á
Ísrael frá Gólanhæðum.
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkj-
anna (NSA) hefur fylgst með síma-
notkun milljóna Bandaríkjamanna
frá því í apríl síðastliðnum en sam-
kvæmt leynilegum dómsúrskurði
var einu stærsta símafyrirtæki
landsins, Verizon, gert að afhenda
umræddar upplýsingar, að sögn
breska dagblaðsins Guardian í
gær.
Í frétt blaðsins kemur fram að
samkvæmt dómsúrskurðinum sé
Verizon gert að veita NSA upplýs-
ingar daglega um öll símtöl sem
fara í gegnum kerfi fyrirtækisins,
bæði innanlands og á milli Banda-
ríkjanna og annarra landa. Skjalið
sýni í fyrsta sinn svart á hvítu að
upplýsingum um símtöl milljóna
bandarískra ríkisborgara hafi í for-
setatíð Baracks Obama verið safn-
að af handahófi í miklum mæli án
þess að viðkomandi einstaklingar
séu grunaðir um að hafa gerst á
nokkurn hátt brotlegir við lög.
Stjórn Obama varði eftirlitið í
gær og lýsti því sem „mikilvægu
tæki“ í baráttunni gegn
hryðjuverkastarfsemi.
BANDARÍKIN
Fylgst með símtöl-
um milljóna manna
Garry Kasparov,
fyrrv. heims-
meistari í skák,
kvaðst í gær
ekki ætla að
snúa aftur til
Rússlands í bráð
af ótta við að
hann yrði sak-
sóttur fyrir að
taka þátt í mótmælum gegn Vla-
dímír Pútín forseta. Kasparov er
staddur í Sviss, en hann hefur ver-
ið atkvæðamikill í baráttunni gegn
Pútín.
Dómstóll í Moskvu framlengdi í
gær úrskurð um gæsluvarðhald
tíu manna sem sakaðir eru um að
hafa beitt ofbeldi þegar þeir tóku
þátt í mótmælum gegn Pútín áður
en hann sór embættiseið forseta
að nýju í maí. Gæsluvarðhaldið
var framlengt um sex mánuði.
RÚSSLAND
Kasparov í útlegð
af ótta við saksókn
Atvinnuleysi meðal fólks undir 25 ára aldri hefur aukist í löndum Evrópu-
sambandsins, samkvæmt nýjustu hagtölum frá Eurostat, hagstofu ESB. At-
vinnuleysi meðal unga fólksins í ESB-löndunum 27 var 23,5% og á evru-
svæðinu 24,4% í apríl, en var 22,6% á báðum svæðunum í apríl 2012.
Fjármálakreppan hefur bitnað verst á ungu fólki
Grikkland*
Spánn
Portúgal
Kýpur
Slóvakía
Írland
Ítalía
Frakkland
Slóvenía
Eistland**
Belgía
Finnland
Holland
Malta
Lúxemborg
Þýskaland
Austurríki
27,0 62,5*
Atvinnuleysi á evrusvæðinu
Evrusvæðið
ESB - l 27
Ísland*
26,8
17,8
14,5
15,6
13,5
12,0
11,0
10,2
8,7
8,4
8,2
6,4
6,5
5,6
5,4
4,9
12,2
56,4
42,5
33,6
32,7**
26,6
40,5
26,5
24,4**
19,4**
22,4
19,9
14,7
10,6
18,2
7,5
8,0
24,4
23,5
12,0
11,0
5,6
Undir 25 ára aldri
(% af fólki á vinnumarkaði)
Almennt
*Febrúar 2013 Heimild: Eurostat**Mars 2013
19,37 milljónir
3,62 milljónir
Heildarfjöldi
atvinnulausra
Fjöldi atvinnulausra
undir 25 ára aldri
Atvinnuleysið eykst enn