Morgunblaðið - 07.06.2013, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing
Sumarsýning Hönnunarsafns Ís-
lands, Óvænt kynni, verður opnuð í
dag en sýningunni er ætlað að
varpa ljósi á þann hluta menningar-
arfsins sem við öll þekkjum en ger-
um okkur ekki endilega grein fyrir
að tengist sögu okkar og menningu.
Sýningin beinir sjónum sínum að
komu módernismans í íslenska hí-
býlamenningu frá 1930 og fram yfir
1980. Margir gætu þekkt einhver
húsgögn sem öðlast hafa sess með
þjóðinni sem tímamótaverk eða
hreinlega þekkt þau úr stofunni
heima hjá ömmu og afa, foreldrum
eða í eigin húsakynnum. Sýning-
arstjórar eru þær Elísabet V. Ingv-
arsdóttir hönnunarfræðingur og dr.
Arndís S. Árnadóttir.
Sein að tileinka okkur
módernismann
Sýndir eru hlutir sem lýsa
nýjungum í tilraunum með efni og
form og aðlögun að nútímahugsun
og hugmyndafræði módernismans.
Má þar nefna húsgögn úr sveigðum
krómuðum stálrörum frá fjórða ára-
tugnum en Íslendingar voru mjög
fljótir að nýta sér þessa aðferð við
gerð húsgagna.
Hins vegar voru Íslendingar al-
mennt seinir að tileinka sér
módernismann og héldu gjarnan í
hefðirnar. Gott dæmi um það er
skápur sem fenginn er að láni úr
heimahúsi þar sem útskurður og
einföld form fara saman. Skápurinn
er vel varðveitt dæmi um verk nem-
anda Handíða- og myndlistaskólans
frá fimmta áratugnum en veturinn
1940-1941 hófst kennsla í hús-
gagnasmíði í smíðadeild skólans
undir leiðsögn Jónasar Sólmunds-
sonar, að sögn sýningarstjóranna.
Þó að nokkrir munir á sýningunni
séu fengnir að láni segir Elísabet að
sýningin byggi í grunninn á safn-
kosti Hönnunarsafns Íslands og
hlutum þaðan.
Fjöldi tímamótaverka
Á sýningunni er að finna verk
sem flokka má sem tímamótaverk.
Húsgögn eftir marga þekkta hús-
gagnahönnuði landsins verða á sýn-
ingunni t.d. verk eftir Hjalta Geir
Kristjánsson og Árna Jónsson en
hann rak lengi verslun Árna Jóns-
sonar við Laugaveg.
Þá munu þeir sem þekktu til
Gallerís Langbrókar eflaust kann-
ast við nokkur textílverkanna sem
verða til sýnis en sýnd verða nokk-
ur verk frá Gallerí Langbrók en
tauþrykk þeirra var mjög fram-
sækið og sambærilegt því gerðist
t.d. á Norðurlöndunum á sama
tíma. Eins má sjá vefnað kvenna
sem ráku vefstofur fyrir tíma iðn-
framleiðslunnar en margir hönnuðir
nýttu sér þeirra vinnu í hönnun
sinni. Þannig vekur sýningin m.a at-
hygli á brautryðjendastarfi ís-
lenskra kvenna við nútíma áklæða-
og teppagerð og nýbreytni tau-
þrykksins.
Hönnunarsafnið hyggst styrkja
söfnunarmarkmið sín með sýning-
unni og efla skráningu og þekkingu
á íslenskri húsgagnahönnun. Því
víða geta leynst gersemar innan
veggja heimila landsins.
Saga húsgagnahönnunar
Morgunblaðið/Kristinn
Hönnunarsýning Sýningarstjórar sumarsýningar Hönnunarsafns Íslands, sem ber nafnið Óvænt kynni, eru þær
Elísabet V. Ingvarsdóttir hönnunarfræðingur og dr. Arndís S. Árnadóttir.
Hönnunarsafn Íslands sýnir innleiðingu módernismans í íslenskri híbýla-
hönnun í sumar Fjöldi tímamótaverka verður til sýnis á sýningunni
Lánað Safnið þurfti að fá sum verkanna lánuð úr heimahúsum.
Kunnuglegt Þekkt hönnun.
Austurríski slagverksleikarinn
Claudio Spieler leikur ásamt með-
limum úr hljómsveitinni Skugga-
myndum frá Býsans á tónleikum
Heimstónlistarklúbbsins á Café
Haiti í kvöld sem hefjast kl. 21.30.
Spieler er búsettur í Berlín og eft-
irsóttur slagverksleikari en hann
hefur sérhæft sig í framandlegum
slagverkshljóðfærum og hefur hlotið
lof fyrir snilldartakta og spilagleði,
eins og segir í tilkynningu.
Spieler leikur
á Café Haiti
Eftirsóttur Spieler hefur sérhæft sig í
framandlegum slagverkshljóðfærum.
Háskólinn á Bifröst hefur stofnað
nýtt tímarit sem nefnist Samtíð og
kemur í stað Tímarits um fé-
lagsvísindi sem skólinn gaf út á ár-
unum 2007 til 2012. Um Samtíð segir
í tilkynningu að það sé „í senn fræði-
legt tímarit á sviði hug- og fé-
lagsvísinda og vettvangur fræði-
legrar, pólitískrar og
menningarlegrar umræðu“ og að
markmiðið með útgáfu þess sé að
efla umræðu á fræðasviðum skólans
með áherslu á tengsl slíkrar um-
ræðu við atvinnulíf og samfélag, ekki
síst stefnumótun í stjórnmálum, at-
vinnulífi og menningu. Tímaritið er
gefið út í tvenns konar formi, annars
vegar á netinu þar sem birtar verða
greinar og annað efni jafnt og þétt í
opnum aðgangi og hins vegar papp-
írsútgáfa sem hefur að geyma úrval
ritrýndra greina og annað efni sem
birt hefur verið á vef þess. Rit-
stjórar Samtíðar eru Ian Watson og
Jón Ólafsson.
Fræði og um-
ræða í Samtíð
Ritstjóri Jón Ólafsson heimspeki-
prófessor, annar ritstjóra Samtíðar.
Sýning á olíumálverkum Torfa Ás-
geirssonar stendur nú yfir í Eiðis-
skeri, sýningarsal í Bókasafni Sel-
tjarnarness. Í verkum Torfa eru
íslensk náttúra og birta algeng
grunnstef og hann varpar fram
rómantískri náttúrustemningu sem
birtist í draumkenndri kyrrð og
tímaleysi, eins og því er lýst í til-
kynningu. Torfi hefur sýnt víða,
hélt m.a. einkasýningu í Ásmund-
arsal árið 1993 og í Safnahúsinu á
Húsavík árið 1997. Sýningin í Eið-
isskeri stendur til 30. júní.
Torfi sýnir
í Eiðisskeri
Náttúrustemning Eitt af olíumálverkum
Torfa Ásgeirssonar í Eiðisskeri.