Morgunblaðið - 07.06.2013, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Stúlkurnar í hljómsveitinni Amiina
eru að gefa út plötuna The Light-
house Project í dag en platan er að
sögn Eddu Rúnar Ólafsdóttur, eins
meðlims hljómsveitarinnar, ákveðið
uppgjör við fortíðina. „Núna erum
við orðin sex í
hljómsveitinni eft-
ir að Magnús
Trygvason Elias-
sen og Guð-
mundur Vignir
Karlsson komu til
liðs við okkur árið 2009 en platan er
útgáfa okkar fjögurra sem vorum
upphaflega í hljómsveitinni og því
eins konar uppgjör við fortíðina,“
segir Edda en hún hefur ásamt Hildi
Ársælsdóttur, Maríu Huld Markan
Sigfúsdóttur og Sólrúnu Sumar-
liðadóttur töfrað fram fagra tóna
fyrir landsmenn undir merkjum
hljómsveitarinnar í nærri áratug.
Frá útgáfu plötunnar Puzzle árið
2010 hefur lítið heyrst af hljómsveit-
inni en
Edda segir að von sé á nýrri plötu
frá þeim með öllum sex meðlimum
hljómsveitarinnar. Hún lofar eng-
um stökkbreytingum á stíl hljóm-
sveitarinnar en segir að með nýjum
meðlimum breytist áherslur auðvit-
að eitthvað. „Nýja platan verður
ákveðið framhald af því sem við vor-
um að gera á Puzzle en við verðum
kannski að syngja meira á nýju
plötunni en það eru engar aðrar
stórar sveiflur hjá okkur.“
Unnið í einstöku rými
Fyrir fjórum árum bauðst Ami-
inu að spila í Garðskálavita og upp
frá því vaknaði sú hugmynd að fara
um landið til að leika tónlist í vitum
og á öðrum óvenjulegum stöðum.
Nýjar útsetningar voru gerðar og
ný lög samin með það sérstaklega í
huga að passa smærri rýmum og ná
meiri nánd við áhorfendur að sögn
Eddu, en hún segir að viðbrögð tón-
listargesta hafi verið mjög góð og
margir lýst upplifuninni sem ein-
stakri. Henni hefur m.a. verið lýst
svo að tónlistin hafi ferðast um vit-
ann og út á haf eins og vitinn væri
að varpa tónlistinni í stað ljóss á haf
út.
Við upptökur á nýju plötunni var
stefnt að því að kalla fram upplif-
unina sem myndaðist á tónleikum
Amiinu fyrir fjórum árum í vitum
landsins. Hljómsveitinni til aðstoðar
við upptökur voru þeir Ben Frost og
Birgir Jón Birgisson. The Light-
house Project kemur einnig út á vín-
yl sem er fallega skreyttur með
myndum sem stelpurnar tóku í ferð-
inni. Myndir úr ferðinni verða einnig
gefnar út í 22 blaðsína bók og á póst-
kortum.
Góður endir á góðri ferð
„Ferðin var mjög skemmtileg en
það gat verið krefjandi að vinna við
þessar aðstæður. Ekki var alltaf gott
pláss fyrir okkur og þá sátum við
inni í vélarýmum sem getur verið
bæði krefjandi en um leið skemmti-
legt,“ segir Edda og rifjar upp að í
einum vitanum hafi morsvél verið í
fullum gangi alla tónleikana. Nýja
platan er ákveðinn vendipunktur
fyrir Amiinu en hún er mögulega
síðasta platan með bara stelpunum.
Heimsækja fortíðina
Amiina gerir upp tónleikaferð sína frá árinu 2009
Vinna að nýrri plötu með nýjum meðlimum sveitarinnar
Tónlist Stelpurnar í hljómsveitinni Amiinu eru að gefa út nýja plötu með efni frá vitatónleikaferð stúlknanna árið 2009.
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP
hefur gefið út nýja viðbót við
tölvuleik sinn EVE Online og ber
hún heitið Odyssey. Viðbótin fel-
ur í sér fjölda nýjunga fyrir leik-
menn sem tengjast þema hennar
um ævintýri, ferðalög og könn-
unarleiðangra í hinum gríð-
arstóra EVE-alheimi. Alheimur
þessi hefur að geyma yfir 67 þús-
und plánetur, ríflega 340 þúsund
tungl og 7.929 sólkerfi.
Odyssey er nítjánda viðbótin
við leikinn sem orðinn er tíu ára.
Áskrifendum EVE Online hefur
fjölgað jafnt og þétt og í dag eru
notendur leiksins yfir hálf millj-
ón. Útgáfan nýja, viðbótin Odys-
sey, verður kynnt með markaðs-
herferð í Evrópu,
Norður-Ameríku og Japan. Frek-
ari fróðleik um hana má finna á
eveonline.com.
Odyssey bætist við
EVE Online
Ógnarstór Í alheimi EVE eru 7.929 sól-
kerfi og 67 þúsund plánetur.
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150 manna eða meira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Verð frá 2.258
pr. mann
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIR ÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dags móttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 7/6 kl. 19:30 Fös 14/6 kl. 19:30 Sun 1/9 kl. 19:30
Lau 8/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30 Fös 6/9 kl. 19:30
Sun 9/6 kl. 19:30 Þri 30/7 kl. 19:30 Lau 7/9 kl. 19:30
Fim 13/6 kl. 19:30 Lau 31/8 kl. 19:30 Sun 8/9 kl. 19:30
"Fullkomin útfærsla á skáldsögunni" SÁS Fréttablaðið
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 9/6 kl. 14:00 Sun 1/9 kl. 14:00 Aukas.
Sun 25/8 kl. 14:00 Aukas. Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas.
Örfáar aukasýningar í haust - komnar í sölu
Kvennafræðarinn (Kassinn)
Lau 8/6 kl. 19:30
Síðustu sýningar!
Stöngin inn! (Stóra sviðið)
Sun 16/6 kl. 19:30
Leikfélag Fjallabyggðar sýnir áhugaverðustu áhugasýningu ársins
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 7/6 kl. 19:00 Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn. Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 8/6 kl. 19:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn. Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 9/6 kl. 13:00 Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn.
Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu!
Gullregn (Stóra sviðið)
Þri 11/6 kl. 20:00 aukas. Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas
Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00
Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Allra síðustu sýningar.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Sun 9/6 kl. 20:00 lokas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck.
Circus Cirkör: Wear it like a crown (Stóra sviðið)
Fim 4/7 kl. 20:00 Lau 6/7 kl. 20:00 Mán 8/7 kl. 20:00
Fös 5/7 kl. 20:00 Sun 7/7 kl. 20:00 Þri 9/7 kl. 20:00
Í samstarfi við Norræna húsið. Meginsýning Volcano sirkushátíðarinnar.
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 7/6 kl. 20:00 Fim 13/6 kl. 20:00 aukas Fös 14/6 kl. 20:00 lokas
Grímusýning síðasta leikárs. Allra síðustu sýningar.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gullregn – allt að seljast upp!
08.06.13 Lau. kl. 20:00 UPPSELT Norðurljós
SÍÐASTA SÝNING FYRIR SUMARFRÍ