Morgunblaðið - 07.06.2013, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2013
Fyrsta Hangover-myndinvar ekki síst skemmtilegfyrir þær sakir að hún varbyggð upp sem ráðgáta.
Söguhetjurnar að rekja aftur fót-
spor sín og púsla saman gærkvöld-
inu ógurlega sem enginn mundi eft-
ir. Úr varð hressilegur kokteill af
harkalegri grínmynd og vel slíp-
uðum „þriller“. Dálítið eins og Rom-
an Polanski hefði leikstýrt There’s
something about Mary. Fyrsta
myndin var með skemmtilegar per-
sónur, kvikindislegan en einnig hlýj-
an tón og innihélt jafnframt eitt
svakalegasta lokaatriði sem ég hef
séð í grínmynd. Eflaust hafa fé-
lagarnir í Klovn-tvíeykinu verið
undir áhrifum frá honum í sinni
kvikmynd, og gengu þá ennþá
lengra í að ganga fram af manni.
Myndin hefst á því að dekur-
barninu Alan er fylgt eftir. Hann
hefur nýlega „hætt að taka lyfin
sín“ og er orðinn stjórnlaus. Eftir
hægfara og nokkuð ósmekklega
upphafssenu þar sem hann kaupir
sér gíraffa og veldur stórslysi er
ákveðið að vinir hans setjist niður
með honum og tali hann inn á að
fara á einhvers konar heilsuhæli til
að vinna í sjálfum sér.
Líkt og nýlegur Simpsons-þáttur
erfiðar myndin við að keyra sjálfa
aðalsöguna í gang og er það gert á
bókstaflegan hátt. Óvinir Leslies
Chows, brjálaða kínverska glæpa-
mannsins úr hinum myndunum,
neyða bíl vinanna út af veginum og
taka Doug til fanga. Glæpamaður að
nafni Marshall (John Goodman)
gerir þeim að hafa uppi á Chow og
gullstöngum sem hann stal, ellegar
verði Doug drepinn. Upp frá því má
segja að sjálf myndin sé tekin í gísl-
ingu.
Því sem á eftir fylgir má lýsa sem
frekar óspennandi spennumynd og
hálfmáttlausri grínmynd. Salurinn
hlær að sínum mönnum þegar eitt-
hvað broslegt gerist en það má
skrifa þann hlátur að miklu leyti á
fyrri afrek þeirra. Fléttan er
óspennandi, brandararnir eru færri,
veikari og einstaka misþyrming á
dýrum virðist vera helsta trompið í
húmornum.
Seinasti hluti myndarinnar gerist
í Las Vegas. Þrátt fyrir eitt
skemmtilegt atriði á þaki Caesar’s
Palace-hótelsins er allur Vegas-
kaflinn hægur og þreyttur og atriði
þar sem persóna Heather Graham á
endurkomu er tilgangslaust með
öllu en er saumað inn til að skapa
hliðarsögu um þrá Alans til að verða
fullorðinn og festa ráð sitt.
Ólíkt hinum myndunum er engin
þynnka í þessari sögu. Mennirnir
eru bláedrú allan tímann. Mér
finnst það eiginlega svik og hafði
gert mér vonir um að gengið yrði
ennþá lengra; mennirnir yrðu
dauðadrukknir alla myndina. Zach
Galifianakis, sem stal senunni í
fyrstu myndinni, er langljósasti
punkturinn. Maðurinn er grínisti af
guðs náð og hefur sérstakt lag á því
að búa til mikið úr litlu. Öll bestu
augnablik myndarinnar eru tilsvör
eða sérviska hans en samt lendir
hann líka í því að verða aukapersóna
sem samviskusamlega hlýðir flétt-
unni máttlausu. Vinir hans hafa fyr-
ir löngu klárað sitt hlutverk í sög-
unni og það er kristaltært að Alan á
að bera þessa mynd með þá sem
„straight men“. Líður Stu, leikinn af
Ed Helm, sérstaklega fyrir það
hversu mikill „fylgihlutur“ hann er
orðinn. Þá fær aukapersónan Chow
svo mikinn tíma á hvíta tjaldinu að
það reynir á þolinmæði manns
gagnvart honum.
Harðir aðdáendur fyrstu Hang-
over-myndarinnar fá örugglega nóg
fyrir sinn snúð en vilji maður hlæja
að Zach er langeinfaldast að skella
sér á YouTube og horfa á tvo þætti
af Between two Ferns. Þeir inni-
halda meira af fyndnum augnablik-
um en þessi mynd í heild sinni.
Allt er þegar þrennt er
Fyndinn Zach Galifianakis, sem stal senunni í fyrstu myndinni, er langljósasti punkturinn í The Hangover Part III.
Maðurinn er grínisti af guðs náð og hefur sérstakt lag á því að búa til mikið úr litlu, segir m.a. um hann í gagnrýni.
Sambíóin og Laugarásbíó
The Hangover Part III bbnnn
Leikstjórn: Todd Phillips. Aðalhlutverk:
Bradley Cooper, Ed Helms, Zach Galif-
ianakis, Ken Jeong, Melissa McCarthy.
Bandaríkin, 2013. 100 mínútur.
ARI ELDJÁRN
KVIKMYNDIR
Hljómsveitin Bellstop hefur sent
frá sér nýtt myndband, við lagið
„Trouble“ sem er fyrsta smáskífa
plötu hljómsveitarinnar, Karma,
sem kemur út um miðjan þennan
mánuð. Hljómsveitin hefur samið
við þýsku plötuútgáfuna Kanoon
Records um dreifingu plötunnar í
Þýskalandi, Austurríki og Sviss og
mun hljómsveitin halda í tónleika-
ferð til þeirra landa í haust. Bell-
stop skipa Elín Ólafsdóttir og Rún-
ar Sigurbjörnsson. Bellstop gerir út
vefsíðuna bellstop.is.
Karma Úr tónlistarmyndbandi Bellstop sem Sigurgeir Þórðarson leikstýrði.
Bellstop semur við Kanoon Records
10
7
EIN STÆRSTA
SPENNUMYND SUMARSINS!
FORSÝNING
VINSÆLASTI
GRÍNÞRÍLEIKUR
ALLRA TÍMA!
New York Daily News
Missið ekki af þessari
stórkostlegu teiknimynd
frá höfundum Ice Age
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
12
AFTER EARTH Sýnd kl. 5 - 8 - 10:10
THE INTERNSHIP Sýnd kl. 10:10
THE HANGOVER PART 3 Sýnd kl. 5 - 8 - 10
EPIC 3D Sýnd kl. 4:30
FAST AND FURIOUS 6 Sýnd kl. 7
„Toppar alla forvera sína í
stærð, brjálæði og hraða.”
- T.V., Bíóvefurinn
HHH
H.K.
-Monitor
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is