Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 12
SVIÐSLJÓS
Jón Heiðar Gunnarsson
jonheiðar@mbl.is
„Að mínu mati eru gerðar óraunhæfar kröfur
til lítilla sveitalauga á Íslandi,“ segir Gauti
Jóhannesson, talsmaður Hreppslaug-
arnefndar, en nefndin reynir að tryggja fjár-
hagslegan grundvöll fyrir rekstur Hrepps-
laugar í sunnanverðum Borgarfirði.
Gauti segir hertar reglur síðustu ára um
starfsemi sundlauga valda miklum vandræð-
um fyrir rekstur laugarinnar. „Það er mikill
rekstrarkostnaður að hafa tvo starfsmenn í
lauginni þar sem sami starfsmaður má ekki
sinna laugargæslu og vinna í afgreiðslu á sama
tíma samkvæmt lögum,“ segir Gauti.
Vongóður þrátt fyrir taprekstur
Hreppslaug hefur verið opin fyrir baðgesti
yfir sumartímann síðustu ár en reksturinn
gekk illa síðasta sumar. Ungmennafélagið Ís-
lendingur situr nú uppi með rúmlega 700 þús-
und krónur í tap. „Þetta hefur verið mjög erf-
itt þar sem sífellt eru gerðar strangari kröfur
um öryggi og hreinsibúnað í lögum um sund-
laugar. Framtíðin er í óvissu en nú lítur út fyr-
ir að okkur takist að opna laugina um næstu
helgi með samstillu átaki frá sjálfboðaliðum og
fjárstykjum frá Skorradalshrepp og Borg-
arbyggð,“ segir Gauti vongóður. Framtíð laug-
arinnar er nú í höndum Heilbrigðisnefndar
Vesturlands en hún verður að samþykkja
rekstrarplan laugarinnar og meta hvort fjár-
magn og framkvæmdir dugi til að halda úti ör-
yggiskröfum skv. lögum.
Svíarnir ekki jafn slæmir
Reglurnar eru góðar og gildar fyrir stærri
sundlaugar að mati Gauta en hann telur þær
ekki henta litlum sundlaugum sem eingöngu
eru starfræktar yfir sumarið.
„Í innilauginni í stærstu íþróttamiðstöð
Norður-Evrópu í Umeå í Svíþjóð er enginn
laugarvörður þrátt fyrir að Svíar séu þekktir
fyrir öryggisvitund sína. Þar stendur á skilti
að sundlaugargestir passi hver upp á annan og
séu í lauginni á eigin ábyrgð. Maður hefði
haldið að þetta væri einnig hægt að gera í lítilli
sveitalaug á Íslandi.“
Kýr datt ofan í laugina
Gauti segir engin alvarleg slys hafa orðið í
lauginni þrátt fyrir að einn starfsmaður hafi
verið á vaktinni hingað til. Hann rifjar hins
vegar upp sögu af kú sem datt ofan í laugina
fyrir mörgum árum áður en laugin var girt af.
„Hún slapp nú ómeidd frá þessu blessunin en
það var mikið vesen að ná henni aftur upp á
þurrt land,“ segir Gauti og hlær.
Gauti telur stórt og mikið skilti þar sem
fram kemur að fólk sé í Hreppslaug á eigin
ábyrgð og að laugargæsla sé takmörkuð
myndi leysa fjárhagsvanda laugarinnar að
stórum hluta. „Það þarf engu að síður að vera
alveg á hreinu hver ber ábyrgðina ef svo ólík-
lega vildi til að alvarlegt slys myndi verða í
lauginni.“
Klefi fyrir hesta
Hreppslaug á sér langa sögu en þessi 25
metra steinsteypta laug var byggð árið 1928.
Laugin hefur ekki eingöngu stuðlað að sund-
kennslu í sveitinni gegnum tíðina því við hana
var einnig starfrækt bókasafn, mötuneyti og
spunaverksmiðja. „Laugin hefur verið mið-
punktur sveitarinnar í mörg ár. Í upphafi voru
byggðir þrír klefar; karla, kvenna og hesta því
allir komu jú ríðandi í laugina,“ segir Gauti
hlæjandi.
Bygging laugarinnar þótti merkileg og bar
vott um þann mikla kraft sem bjó í ungmenna-
hreyfingunni í byrjun 20. aldarinnar.
Sírennandi heitt vatn úr uppsprettum rétt
ofan við laugina skapa henni sérstöðu ásamt
birkivaxinni grasbrekku sem nær nánast að
laugarbarmi. Gestir hafa haft það á orði að
vatnið í lauginni hafi góð áhrif á exem en það
hefur ekki verið rannsakað. „Kvöldopnun hef-
ur skapað lauginni nokkra sérstöðu og við
stefnum á að hafa opið til 11 á kvöldin í sumar
ef allt gengur upp. Það eru samt mjög fáir sem
vita af lauginni enda hefur hún lítið verið aug-
lýst.“
Sundlaug að
drukkna í
reglugerðum
Morgunblaðið/Eggert
Sjálfboðaliðar við störf Fjöldi sjálfboðaliða vinnur hörðum höndum að viðhaldi og fjármögnun
Hreppslaugar í sunnanverðum Borgarfirði. Ungmennafélagið Íslendingur situr uppi með mikið
tap eftir rekstur laugarinnar síðastliðið sumar en eingöngu 188 félagsmenn eru í félaginu.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s
Bíltúr á Búrfell
Gagnvirka orkusýningin í Búrfellsstöð við Þjórsá er skemmtileg
og lærdómsrík fyrir fólk á öllum aldri. Skammt fyrir norðan stöðina
eru vindmyllurnar tvær sem Landsvirkjun hefur reist í rannsóknar-
skyni, þær fyrstu sinnar gerðar á Íslandi. Akstur frá Reykjavík
tekur aðeins um eina og hálfa klukkustund og við erum alltaf
með heitt á könnunni.
Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar 10-17 alla daga í allt sumar:
Búrfellsstöð
Gagnvirk orkusýning og vindmyllur á Hafinu
Kröflustöð
Jarðvarmasýning í gestastofu
Fljótsdalsstöð
Gestastofa í Végarði og leiðsögn um Kárahnjúka
Nánari upplýsingar á
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
„Ný reglugerð um
hollustuhætti á sund-
og baðstöðum tók
gildi 1. janúar 2011 og
nú eru menn farnir að
fara eftir henni af
fullum þunga,“ segir
Helgi Helgason, fram-
kvæmdastjóri
heilbrigðiseftirlits
Vesturlands.
Þar kemur m.a. fram að sund- og bað-
staðir skulu ávallt hafa starfsmann sem
sinni laugargæslu og engum öðrum
störfum samhliða á meðan gestir eru í
laug.
„Margar af þessu gömlu sveitalaugum
eru orðnar börn síns tíma og Hrepps-
laugin er ekki undanskilin þessum
reglum á meðan það er rukkað gjald fyrir
að heimsækja hana,“ segir Helgi.
Hreppslaug er flokkuð í svokallaðan C-
flokk samkvæmt reglugerð en hún hefur
ekki neinn nútímalegan hreinsibúnað.
Hann segir margar gamlar sveitalaug-
ar vera í svipaðri stöðu og óttast að eig-
endur þeirra muni reyna að fara á skjön
við nútímakröfur með því að hætta að
rukka sundlaugargesti.
„Á meðan ekki er rukkað ofan í laug-
arnar getum við ekkert aðhafst svo lengi
sem þær eru ekki beinlínis hættulegar
fólki. Við getum ekki gert kröfur um sér-
staka laugargæslu í slíkum tilvikum ekki
frekar en ef menn ákveða að bjóða fólki í
heita pottinn heima hjá sér.“ Hann ítrek-
ar þó að eigendaábyrgð eigi alltaf við ef
alvarleg slys verða á fólki og að rekstrar-
aðili beri ábyrgð á að gerð sé skrifleg
áætlun um öryggi gesta.
Margar laugar ekki
í takt við tímann
NÝ REGLUGERÐ TEKUR VIÐ
Helgi Helgason
Hreppslaugarnefnd íhugar að skrá laugina sem náttúrulaug ef ekki tekst
að fjármagna opnun hennar í sumar en reglugerðir um sund og baðstaði
gilda ekki um náttúrulaugar. Reglugerð um náttúrulaugar er hinsvegar enn
í vinnslu hjá umhverfis- og auðlindaráðuneyti og því er óljóst hvort laugin
falli undir slíka skilgreiningu.
Í drögum að reglugerðinni er sett bann við meðhöndlun á vatni í nátt-
úrulegum laugum en vatnið í Hreppslaug hefur verið klórblandað hingað
til. „Ef við hættum að setja klór í laugina mun að sjálfsögðu myndast mikið
af grænu slýi í framhaldinu. Það er svo sem skaðlaust en margir eru samt
viðkvæmir fyrir því að synda í því,“ segir Gauti Jóhannesson, talsmaður
Hreppslaugarnefndar.
Í reglugerðinni verður m.a. kveðið á um merkingar og vöktun nátt-
úrulauga. „Umhverfisstofnun sendi frá sér drög að reglugerðinni til ráðuneytisins fyrir um
hálfum mánuði og í þeim var tekið tillit til fámennra sveitalauga á borð við Hreppslaug,“ segir
Katrín Hilmarsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, en hún vonast til að reglugerðin
komi út á þessu ári.
Reglugerð um náttúrulaugar enn í vinnslu
TEKIÐ ER TILLIT TIL LÍTILLA SVEITALAUGA Í DRÖGUM AÐ NÝRRI REGLUGERÐ
Katrín
Hilmarsdóttir