Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 17
Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is Um helgina var opnaður bænda- markaður á Kaffi Seli sem er á bæn- um Efra-Seli sem er skammt frá Flúðum. Það er fjölskyldan á bæn- um sem sér um markaðinn í fyrsta skipti í ár. „Það hefur verið bændamarkaður á Flúðum í mörg ár og nú lá fyrir að hann yrði ekki rekinn í sumar og þá datt okkur í hug að bæta þessu við starfsemina hjá okkur,“ segir Unn- steinn Logi Eggertsson, bóndi á Efra-Seli. Aðsókn var góð á opnun markaðarins um helgina. „Það virð- ist vera heilmikið af fólki sem hefur sótt þennan markað undanfarin ár og treystir á að hann sé til staðar. Hópurinn greinilega færir sig til ef markaðurinn fer eitthvert annað.“ Fjöldi bænda kemur með vörur á markaðinn sem fjölskyldan sér svo um að selja. „Mest eru þetta land- búnaðarvörur frá svæðunum hér í uppsveitum Árnessýslu. Mjög fjöl- breyttar afurðir, lax úr Hvítá og annar fiskur frá svæðinu, heima- ræktað korn af ýmsum tegundum, grænmeti og margskonar handverk. Ásamt kjötafurðum frá næstu bæj- um hér úr sveitinni og næstu sveitum.“ Unnsteinn telur að öll matvæli á markaðnum komi líkast til innan 50 kílómetra radíuss frá bænum þeirra og því sé þetta nánast allt úr ná- grenninu og mjög stutt frá mark- aðnum í framleiðendurna. En mark- aðurinn er staðsettur í húsi gegnt Golfskálanum sem margir þekkja. Vörurnar á markaðnum eru mjög fjölbreyttar og að sögn Unnsteins reyna þau einnig að hafa öðruvísi vörur sem fást ekki endilega alls staðar eins og vinsæli brjóstsyk- urinn frá Svandísi á Selfossi. „Við höfum ýmiskonar öðruvísi vörur sem hafa oft einhverja sér- staka eiginleika. Þar má nefna vin- sælu sætu snakk tómatana og afurð- ir eins og hunang og hindberin sem eru alltaf eftirsótt,“ segir Unnsteinn. Bændamarkaðurinn verður opinn á virkum dögum frá kl. 13.00 til kl. 18.00 en um helgar frá kl.11.00 til kl.18.00. „Ef það er mikið af fólki þá verður opið lengur og ef einhver mætir fyrir opnun þá opnum við bara. Við erum með heilmikla ferða- þjónustu á bænum fyrir og erum því að samnýta starfsfólk og annað og því er þetta góð viðbót við starfsem- ina hér,“ segir Unnsteinn að lokum. Bændamarkaður Hjónin Halldóra Halldórsdóttir og Unnsteinn Logi Eggertsson sem búa á Efra-Seli reka bænda- markaðinn nú í fyrsta sinn ásamt foreldrum hennar, þeim Ástu Guðnýju Daníelsdóttur og Halldóri Guðnasyni. Fjölbreyttur bænda- markaður á Efra-Seli  Nánast allt á markaðnum úr uppsveitum Árnessýslu Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | avon@avon.is Bylting frá Remington: Fyrstir hártækjaframleiðenda með Lithium rafhlöður í hártækjum – hleðsla allt að 4 x lengri. AQ7 – Remington Rotary VATNSHELD herrarakvél – 100% vatnsheld, má nota með froðu og geli BHT6250 – Wet-Tech Body Hair Trimmer – 100% vatnsheld S6280 Stylist Perfect Waves – Keramik húðaðar bylgju plötur. -Hitnar á 30 sek PG6060 – Lithium-Powered Grooming Kit – Lithium rafhlaða, ending allt að 110 mín MB4040 – Lithium – Powered skeggsnirtir – Lithium rafhlaða, notkun allt að 160 mín. HC5780 Lithium- Powered hárklippur - – Lithium rafhlaða, notkun allt að 150 mín. Nýtt frá Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Verkjastillandi bólgueyðandi Veldur síður lyfjaáhrifum um allan líkamann eins og þegar töflur eru teknar inn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.