Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013 Nýr 4ra rétta seð ill og A la Carte í Perlunni Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56 2 0207 • perlan@perlan.is • ww w.perlan.is Gjafabréf Perlunnar Góð gjöf við öll tækifæri Skoski rithöfundurinn Iain Banks er látinn, 59 að aldri. Hann var einn virt- asti og vinsælasti höfundur Skota síð- ustu árin, kunnur fyrir bækur á borð við „The Wasp Factory“ og „The Crow Road“. Í skoðanakönnun sem Waterstone’s verslanirnar létu fram- kvæma fyrir nokkrum árum lenti fyrrnefnda sagan á lista yfir 100 bestu skáldsögur allra tíma. Fyrir ut- an fagurbókmenntir sendi hann frá sér vísindaskáldsögur undir höfundarnafninu Iain M. Banks. Í apríl síðastliðnum upplýsti Banks að hann hefði greinst með krabba- mein í gallblöðru og ætti í mesta lagi nokkra mánuði ólifaða. Væntanleg skáldsaga Banks, „The Quarry“, byggir á glímu höfundarins við krabbameinið en hún fjallar um síðustu vikurnar í lífi aðalpersónu hennar. Sagan kemur út 20. júní og hafði Banks vonast til að lifa að sjá hana koma út. AFP Banks Skoski rithöfundurinn var vinsæll og virtur fyrir verk sín. Krabbinn felldi Banks Nokkrir þeirra listamanna sem ætluðu að koma fram á tónlistar- hátíðinni Keflavík Music Festival um helgina, hættu við þátt- töku og sendu sumir þeirra frá sér yfirlýsingar, þar sem margt í skipulagningunni var sagt hafa farið úrskeiðis. Skipuleggjendurnir Ólafur Geir Jónsson og Pálmi Þór Erlingsson sendu líka frá sér yfirlýsingu og segjast ætla að halda ótrauðir áfram með hátíðina. Þeir segjast þakklátir öllum sem komu fram og stóðu með þeim en biðjast afsökunar á því sem fór úrskeiðis hjá þeim sjálfum. „Kappsemi Íslendings er stundum meira en viðkomandi ræður við og má með sanni segja að það eigi vissulega við í okkar tilviki. 129 tón- listaratriði á einni helgi hefði verið meiriháttar árangur á okkar litla Ís- landi en varð okkur sem stjórn- endum ofviða um leið og fyrstu vandamálin komu upp. Sú staða vatt síðan upp á sig,“ segir þeir. Biðjast afsökunar Páll Óskar kom fram á hátíðinni. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Það er gott að vera á Vestfjörðum, hér er greiðvikið og gott fólk,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvik- myndaleikstjóri sem er við tökur á Flateyri á sinni annarri bíómynd, París norðursins, en hann leikstýrði bíómyndinni Á annan veg sem frumsýnd var fyrir tveimur árum. Myndin sem hann er að taka upp núna er skrifuð af Huldari Breið- fjörð en framleiðendur eru þeir Þór- ir Snær Sigurjónsson og Sindri Kjartansson. Margir með tengsl við Vestfirði Aðspurður um hvað myndin sé segir Hafsteinn að hún sé um ungan mann sem hefur verið búsettur einn vetur á Flateyri. „Hann er á ein- hverjum krossgötum í lífinu og hef- ur verið kennari hér í nokkurn tíma. Fær síðan föður sinn í heimsókn sem hann þekkir lítið og hefur ekki hitt í langan tíma. Þetta er svona dramatísk kómedía af svæðinu,“ segir Hafsteinn Gunnar en Björn Thors leikur aðalhlutverk mynd- arinnar. Þess má geta að fyrsta bíómynd Hafsteins Gunnars var einnig tekin upp á Vestfjörðum en Hafsteinn vill meina að það sé algjör tilviljun. „Ég skrifaði ekki Á annan veg með Vest- firði í huga, ég hafði eitthvað órætt landslag í huga þegar ég skrifaði hana. En þegar við vorum að keyra af Skjaldborgarhátíðinni sem haldin er árlega á Patreksfirði þá fannst mér það virka að setja söguna inn í þetta landslag. Þegar sú mynd fór í gang þá var hugmyndin að París norðursins búin að fæðast. Við erum nokkrir sem eigum tengsl hingað á Vestfirðina. Huldar Breiðfjörð er búinn að eiga hús hérna frá árinu 2007. Dáni Pedersen leikmynda- hönnuður á hús við hliðina á honum þannig að það lá beint við að gera myndina hér. Hér er gott að vera,“ segir Hafsteinn. Tökur ganga vel og eru þeir búnir með tíu tökudaga af áætluðum 23 dögum. En að sögn Hafsteins er hann ánægður með tilfinninguna í tökunum fram að þessu. Aðspurður um veðrið þá hann er líka nokk sáttur við það. „Ég vildi hafa snjó í fjöllum, hugmyndin var að þetta gerðist um vor,“ segir Haf- steinn. „Við vildum finna náttúruna vakna. Finna vorið hörfa fyrir sumrinu. Það er enn snjór í fjöllum og það er mjög gott. Tökumaðurinn er mjög ánægður að það sé ekki alltaf glampandi sól. Veðrið er frek- ar að vinna með okkur en móti. Annars erum við að fara í næt- urtökur núna, við viljum fanga þess- ar miðnæturtökur sem eru mjög sérstakar og fallegar,“ segir Haf- steinn. Flateyri er París norðursins Sjónarhorn „Veðrið er frekar að vinna með okkur en móti,“ segir leikstjórinn Hafstein Gunnar. Hér eru þeir Magni Ágústsson tökumaður í þungum þönkum á ónefndum stað. „Við vildum finna náttúruna vakna,“ segir hann.  Tökur ganga vel á bíómyndinni París norðursins  Veðrið leikur við tökuliðið Morgunblaðið/Golli Fjölhæfur Björn Thors fer með að- alhlutverkið í Paradís norðursins. Höfðaborg, drykkjurútur með allt niður um sig, en samt ein- staklingur sem sýnir að lengi lifir í gömlum glæðum. Sagan hverfist um þrjár persón- ur, Christine, Thobela og Benny, og þó þær séu ekki allra, falli ekki inn í normið, finnur lesandinn til með þeim og getur eiginlega ekki annað en staðið með þeim. Þær eru ólíkar en eiga ýmislegt sam- eiginlegt. Sterkar en eiga samt sína veikleika. Spennusagan Djöflatindur er á sinn hátt saga ákveðinna uppgjöra en vandinn er viðameiri en svo að hann leysist í stuttri sögu. Þó að svar finnist við ákveðnum spurn- ingum er vandinn í raun óviðráð- anlegur. Deon Meyer heldur manni við efnið. Djöflatindur er vel skrifuð og spennan eykst eftir því sem nær dregur endalokum. Þetta er mjög trúverðug saga og besta sumarbókin til þessa. höfunda er Deon Meyer í Suður- Afríku og með spennusögunni Djöflatindi hefur hann komið sér vel fyrir í heimi spennusagnahöf- unda. Suður-Afríka er ekki beint í túnfætinum en þaðan berast oft ógnvænlegar fréttir af glæpum og spillingu. Deon Meyer þekkir um- hverfið og Djöflatindur virkar á mann eins og frásögn atburða á líðandi stundu. Bókin lýsir ógn- vænlegum viðburðum, máttlausum yfirvöldum til að takast á við glæpina og sjálfsbjargarviðleitni einstaklinga í kjölfarið. Í hring- iðunni er síðan rannsóknarlög- reglumaðurinn Benny Griessel í Við búum í ógnvænlegumheimi og í þessum heimiþrífast afbrotamenn,glæpir, svik, spilling og launráð. Upp úr þessum farvegi spretta rithöfundar sem sjá ver- öldina með sínum augum og koma henni í sögubúning. Einn þessara Trúverðug „Deon Meyer heldur manni við efnið. Djöflatindur er vel skrifuð og spennan eykst eftir því sem nær dregur endalokum.“ Spenna og spilling í bestu sumarbókinni Djöflatindur  Eftir Deon Meyer. Íslensk Þýðing: Þórdís Bachmann. Kilja. 416 bls. Tindur 2013. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÓKMENNTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.