Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Kalt stálið og gráir veggir fyrrum herstöðvarinnar á Ásbrú var eins og hannað fyrir tónlistarhátíðina All To- morrow Parties, ATP, en aðstand- endur hennar heilluðust af herstöð- inni fyrrverandi og hafa í samstarfi við Tómas Young tónleikahaldara skipulagt All Tomorrow hátíð í henni í sumar, 28.-29. júní. „Tengingin við nálæga fortíð gefur staðnum ákveðna ásýnd og tilfinn- ingu sem erfitt er að finna eða end- urskapa annars staðar,“ segir Debo- rah Kee Higgins, eiginkona Barry Hogans stofnanda hátíðarinnar, en hún er komin hingað til lands til að fylgjast með skipulagningu hátíð- arinnar og aðstoða við kynningu hennar. Auk umhverfisins á herstöðinni gömlu segir Deborah landið sjálft hafa heillað. „Tónlistarmenningin hér er stórkostleg og það er ótrúlegt hvað margar góðar hljómsveitir koma frá ekki fjölmennara landi en Íslandi. Það er eitthvað töfrandi við landið og þess vegna fannst okkur tilvalið að koma með hátíðina til Íslands.“ Nálægð við tónlistargestinn All Tomorrow var fyrst haldin í Bretlandi árið 1999 sem svar við stórum tónlistarviðburðum sem töldu tugi þúsunda gesta. Hátíðin á að vera lítil og nándin mikil. „Fjöldi gesta er almennt takmarkaður við tíu þúsund á ATP hátíðum en hátíðin verður þó eitthvað minni í sniðum hér á landi. „Tíu þúsund gestir er auðvitað mjög mikið fyrir fámennari staði eins og Ísland og þess vegna er- um við að horfa til þess að gestir verði á bilinu tvö til þrjú þúsund á há- tíðinni hér,“ segir Deborah en hún telur aðstæðurnar á Ásbrú full- komnar með það í huga að tónleika- gestir upplifi nálægð við flytjendurna. Upplifun tónleikagesta er aðstand- endum hátíðarinnar mikilvæg og þó að hátíðin sé haldin víða um heim eru gerðar miklar kröfur til þeirra staða sem halda hátíðina. Deborah segir tónlistarmenn á Íslandi og landið sjálft uppfylla allar þeirra kröfur. Innlendar og erlendar sveitir Á hátíðinni mun koma fram fjöl- breytt val úrvals hljómsveita, bæði innlendra og erlendra, þekktar og óþekktar. „Okkur finnst mikilvægt að hafa góða blöndu af þekktum og minna þekktum hljómsveitum,“ segir Deborah en bendir þó á að gerðar séu mjög strangar kröfur til þeirra hljómsveita sem spila á hátíðinni. „Við lítum á það sem hluta af hátíð- inni að kynna fyrir tónleikagestum nýjar hljómsveitir sem við teljum að uppfylli þær kröfur sem hátíðin setur.“ Hljómsveitin Nick Cave and The Bad Seeds verður aðalatriði tónlist- arhátíðarinnar í ár en hljómsveitin hefur ekki spilað á Íslandi síðan 2006. „Ég er mjög spennt fyrir Nick Cave and The Bad Seeds enda er hún með- al bestu hljómleikasveita í heiminum í dag. Síðan hlakka ég til að sjá ís- lensku hljómsveitirnar á sviðinu en við höfum áður fengið íslenskar hljómsveitir til að spila á hátíðinni okkar m.a. Sigur Rós, Mugison, múm og Botnleðju.“ Gamla varnarsvæðið verður því undirlagt af góðri tónlist dagana 28. og 29. júní og eflaust komast færri að en vilja. Meðal hljómsveita sem koma fram verða Chelsea Light Moving, The Fall, The Notwist, Thee Oh Sees, Deerhof, múm, Ham, Dead Skele- tons, Mugison,, Amiina, Valgeir Sig- urðsson, Ghostigital, Puzzle Mute- son, Kimono, Hjaltalín og Snorri Helgason. Tónleikar á gamla varnarliðssvæðinu  Nick Cave and the Bad Seeds meðal þeirra sem koma fram  Herstöðin fyrrverandi heillaði tónleikahaldara Morgunblaðið/Styrmir Kári Upplifun Deborah Kee Higgins, einn aðstandenda ATP, er komin til Íslands. Vangaveltur hafa verið um það hvort rokkararnir í Led Zeppelin muni koma saman á næsta ári og skemmta gömlum og nýjum aðdá- endum hljómsveitarinnar. Robert Plant, söngvari hljóm- sveitarinnar, gaf til kynna að end- urkoma væri í kortunum á næsta ári þegar hann léði máls á því að hann hefði ekkert að gera á árinu 2014. Það var hins vegar bassaleik- arinn John Baldwin, sem flestir þekkja þó sem John Paul Jones, sem slökkti í vonum aðdáenda um endurkomu þegar hann sagði í viðtali við Red Carpet TV ekki hafa nokkurn tíma á næsta ári, hann væri fullbókaður fyrir óperu. John Paul Jones vinnur núna hörðum höndum við að semja óperu sem byggð er á Draugasónötu sænska rithöfundsins August Strindberg eða The Ghost Sonata í enskri þýðingu John Paul Jones. Verkið er komið ágætlega af stað og er bassaleikarinn kominn lang- leiðina með að ljúka fyrsta hluta verksins en býst við að klára það ekki fyrr en á næsta ári. Ópera kemur í veg fyrir Led Zeppelin-endurkomu AFP Endurkoma Led Zeppelin kemur ekki saman á næsta ári vegna óperuskrifa. Á R N A S Y N IR Langtímaleiga – langsniðugust! Reiknaðu dæmið til enda. Frá 49.900 kr.á mánuði! 591-4000 | www.avis.is                    Englar alheimsins (Stóra sviðið) Fim 13/6 kl. 19:30 Aukas. Fös 30/8 kl. 19:30 Fös 6/9 kl. 19:30 Fös 14/6 kl. 19:30 18.sýn Lau 31/8 kl. 19:30 Lau 7/9 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30 19.sýn Sun 1/9 kl. 19:30 Sun 8/9 kl. 19:30 "Fullkomin útfærsla á skáldsögunni" SÁS Fréttablaðið Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 25/8 kl. 14:00 Aukas. Sun 1/9 kl. 14:00 Aukas. Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas. Örfáar aukasýningar í haust - komnar í sölu Stöngin inn! (Stóra sviðið) Sun 16/6 kl. 19:30 Leikfélag Fjallabyggðar sýnir áhugaverðustu áhugasýningu ársins Mary Poppins (Stóra sviðið) Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn. Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn. Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn. Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn. Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn. Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn. Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu! Gullregn (Stóra sviðið) Þri 11/6 kl. 20:00 aukas. Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00 Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Allra síðustu sýningar. Circus Cirkör: Wear it like a crown (Stóra sviðið) Fim 4/7 kl. 20:00 Lau 6/7 kl. 20:00 Mán 8/7 kl. 20:00 Fös 5/7 kl. 20:00 Sun 7/7 kl. 20:00 Þri 9/7 kl. 20:00 Í samstarfi við Norræna húsið. Meginsýning Volcano sirkushátíðarinnar. Tengdó (Litla sviðið) Fim 13/6 kl. 20:00 aukas Fös 14/6 kl. 20:00 lokas Grímusýning síðasta leikárs. Allra síðustu sýningar. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gullregn – allt að seljast upp!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.