Morgunblaðið - 27.06.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Opið: mán.-fös 8:30-18:00, lau 11:00-16:00
KRUMMA leikföngin fást: Mál og Menning Laugarvegi, Hagkaupabúðirnar
Öryggi – gæði - leikgildi
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
ALLIR KRAK
KAR
FÁ SUNDPO
KA
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Við höldum tvær sýningar,aðra á Rifi og hina í Gafl-araleikhúsinu í Hafn-arfirði. Kári Viðarsson,
sem var einnig í Rose Bruford Col-
lege, rekur Frystiklefann á Rifi. Við
vorum mjög spenntar að vinna með
honum. Við hittum hann og spjöll-
uðum við hann og hann bauð okkur
að koma. Við verðum með þrjár til-
raunakenndar sýningar undir einum
hatti og erum mjög spennt að sjá
viðbrögð áhorfendanna við þeim.
Við ætlum að taka viðtöl við þá eftir
á til að sjá hvað þeim fannst og hvað
mætti fara betur,“ segir Sólveig
Eva Magnúsdóttir, einn forsprakka
leikhópsins Spindrift Theatre. Hún
hefur síðustu ár numið leiklist við
Rose Bruford í London en hópurinn
á rætur sínur að rekja þangað.
Tilraunakenndar sýningar
„Áhorfendur mega eiga von á
þremur gjörólíkum sýningum.
Fyrst verður dansleikhús eftir
Bergdísi Júlíu Jóhannsdóttur sem
rannsakar sjálfið. Sýningin er rosa-
lega hreinskilin og persónuleg og
leikararnir munu túlka atvik úr eig-
in lífi. Því næst verður ramm-
pólitískt og absúrd verk með svört-
um húmor um ofurkisur. Þar er
verið að vinna með kenningar
Nietzsches um ofurmennið. Síðasta
verkið er síðan abstraktleikverk eft-
ir mig um fjóra geimfara sem fara
til Mars. Það tekst á við það hvað
það er að vera mennskur. Sýningin
er svolítið pósthúmanísk auk þess
að fást við kenningar Nietzsches,“
segir Sólveig Eva.
Hún segir leikhópinn í raun
fyrirtæki sem þær stöllur stofnuðu.
Meðlimir hópsins eru frá fimm lönd-
um en þær kynntust allar í London.
Ásamt þeim Bergdísi eru það Finn-
inn Anna Korolainen, Norðmað-
urinn Henriette Kristensen og
Skotinn Niamh Williamson sem
mynda hópinn.
„Við leikum í verkunum hvert
hjá öðru og svo fáum við liðsauka í
Sunnu Dís Hjörleifsdóttur, Finlay
McFarlane og Gísla Karli Ingvars-
syni. Við fengum styrk frá Rose
Bruford til að koma hingað, það
hjálpar við að borga leikhúsin og
svoleiðis. Það er mikill stuðningur
frá skólanum úti,“ segir hún.
Vinsæll meðal Íslendinga
„Rose Bruford er með mjög
mismunandi leiklistarbrautir. Þetta
er ekki bara hefðbundið leiklist-
arnám. Ein brautin leggur áherslu á
tónlist, önnur á amerískan leik-
hússtíl, ein leggur áherslu á evr-
ópskan leikhússtíl auk þess sem
klassísk braut er í boði. Brautin
sem við vorum á er sú evrópska,
hún er fremur líkamleg og meiri
áhersla lögð á sköpun og tjáningu.
Þetta líkist svolítið fræðum og
framkvæmd í Listahákólanum.
Þetta er svona nútímaleiklist þó svo
að við kynnum okkur líka klass-
ískari verk,“ segir Sólveig Eva. Hún
segir marga Íslendinga vera í skól-
anum og þau muni setja upp sýn-
ingu hérna heima í haust. Aðspurð
hví skólinn sé svo vinsæll meðal Ís-
lendinga segir hún það vera marg-
þætt.
Tilraunakenndur leikur
Alþjóðlegi leiklistarhópurinn Spindrift Theatre efnir til tveggja sýninga hér á
landi, annars vegar á laugardaginn á Rifi og hins vegar á þriðjudaginn í Gafl-
araleikhúsinu. Blaðamaður náði tali af einum meðlima hópsins, Sólveigu Evu.
Tónlistarhátíð í Fjallabyggð verður
haldin í 14. skipti núna um helgina í
Ólafsfirði og er blús þar í forgrunni
eins og endranær. Þetta er elsta
blúshátíðin á Íslandi og á heimasíðu
Jassklúbbs Ólafsfjarðar, www.blues-
.fjallabyggd.is, má sjá að dagskráin
er vegleg að vanda. Hátíðin hefst á
morgun föstudag en þá mun Blús-
sveit Þollýar vera með tónleika í
Menningarhúsinu Tjarnarborg. Blús-
sveit Þollýjar hefur starfað um árabil
og spilar kröftugan og á köflum rokk-
aðan blús. Á laugardeginum verða
tónleikar úti við menningarhúsið
Tjarnarborg í tengslum við útimarkað
og skemmtun á hátíðinni og þar
munu ungir og efnilegir tónlist-
armenn spila. Vinir Dóra spila svo á
lokakvöldinu um laugardagskvöld í
Tjarnarborg, en vert er að taka fram
að áhugaverðasta ungliðabandið
mun hita upp á þeim tónleikum.
Vefsíðan www.blues.fjallabyggd.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinir Dóra Halldór Bragason og félagar eru miklir blúsmenn.
Vinir Dóra og fleiri á Blúshátíð
Gróska, samtök myndlistarfólks í
Garðabæ, heldur árlega myndlist-
arsýningu og Jónsmessugleði við
ströndina í Sjálandshverfi í kvöld
kl. 20-22. Útisýning og skemmt-
un þar sem ungmenni sem vinna
við skapandi störf í sumar taka
virkan þátt. Þema kvöldsins er
JÓN. Allir Jónar í Garðabæ, 18 ára
og eldri, hafa fengið boðsbréf og
verður sérstaklega gert vel við
þá. Heiðraður verður einn dygg-
asti starfsmaður Garðabæjar,
Jón, sem hefur í áraraðir séð um
að halda bænum hreinum og ver-
ið sérstök fyrirmynd í framkomu.
Lokagjörningur hátíðarinnar
verður sérlega veglegur að
vanda. Nánar á vefsíðu Garða-
bæjar og Facebooksíðu Grósku.
Endilega...
... kíkið á Jónsmessugleði Grósku
Jón Sigurðsson Hann er vafalítið einn
frægasti Jón sem Ísland hefur alið.
Hagkaup
Gildir 27. - 30. júní verð núverð áður mælie. verð
Hagkaup grill lambalæri ................... 1.819 2.598 1.819 kr. kg
Holta kjúklingaleggir í mangó/chili .... 699 999 699 kr. kg
SS Mexico grísakótelettur ................. 1.724 2.298 1.724 kr. kg
Holta vængir ferskir magnpk. ............ 300 429 300 kr. kg
Baguette stórt ................................. 249 319 249 kr. stk.
Nóatún
Gildir 28. - 30. júní verð núverð áður mælie. verð
Lamba prime úr kjötborði ................. 2.798 3.498 2.798 kr. kg
Grísalundir úr kjötborði .................... 1.998 2.598 1.998 kr. kg
Ungnautafillet úr kjötborði ................ 2.998 4.349 2.998 kr. kg
Ungnautapiparsteik úr kjötborði........ 2.998 4.349 2.998 kr. kg
Laxaflök beinhr. úr fiskborði.............. 2.195 2.598 2.195 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 27. - 30. júní verð núverð áður mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði ................... 1998 2698 1998 kr. kg
Svínakótelettur úr kjötborði.............. 1498 1898 1498 kr. kg
Svínahnakki úr kjötborði.................. 1498 1898 1498 kr. kg
Ísfugl ferskur kjúkl. 1/1 ................... 919 1.149 919 kr. kg
Ísfugl kjúkl.læri/leggir ..................... 999 1.249 999 kr. kg
Kjarval
Gildir 27. - 30. júní verð núverð áður mælie. verð
SS Mexico grísakótelettur ................. 1.908 2.385 1.908 kr. kg
Goða hamborgarar 80 g 10 stk......... 1.049 1.1681.049 kr. pk.
Holta kjúklingabringur...................... 2.298 2.898 2.298 kr. kg
Krónan
Gildir 27. - 30. júní verð núverð áður mælie. verð
Grísakótelettur ................................ 989 1.469 989 kr. kg
Grísakótelettur kryddaðar ................. 989 1.469 989 kr. kg
Ungnauta entrecote erlent................ 2.989 4.598 2.989 kr. kg
Lambalæri piparmarinerað ............... 1.498 1.598 1.498 kr. kg
Krónu kjúklingabringur ferskar .......... 2.068 2.298 2.068 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 27. - 29. júní verð núverð áður mælie. verð
Svínahnakki (kjötborð)..................... 1.298 1.598 1.298 kr. kg
Svínalundir (kjötborð) ...................... 1.698 2.398 1.698 kr. kg
Herragarðs grísakótilettur ................. 1.598 1698 1.598 kr. kg
Frosinn maís ................................... 359 468 359 kr. pk.
Hamborgarar 4 stk. m/brauði 80 g ... 620 720 620 kr. pk.
Helgartilboð
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.