Morgunblaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 Handverksbakarí fyrir sælkera MOSFELLSBAKARÍ Daglega er bakað bakkelsi sem fá bragðlaukana til að kætast. Hjá okkur er hægt að fá þetta gamla og góða og einnig eitthvað nýtt og spennandi. Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Ívarsson, skipulagsfræðingur hjá Landslagi ehf. Á fundinum, sem verður í fundarsal á 4. hæð Ráðhúss- ins og hefst kl. 17, kynnir Logi Már skipulagslýsingu og fyrstu drög nýs miðbæjarskipulags. ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Eldur kviknaði í íbúð á neðstu hæð í fjölbýlishúsi við Borgarhlíð á Ak- ureyri laust fyrir hádegi á þriðju- dag. Einhver fór þar inn og virðist hafa kveikt í en nágranni náði að slökkva áður en mikið tjón hlaust. Skemmdir urðu þó af eldi og reyk.    Lögreglan biður þá sem geta upplýst um mannaferðir í og við fjölbýlishúsið, Borgarhlíð 7-9, á milli kl. 10.00 og 11.00 á þriðjudag- inn að hafa samband í síma 4647700.    Norlandair á Akureyri gerði í vikunni samning við Flugsafn Ís- lands til þriggja ára og leggur fram fjárstyrk til reksturs safnsins.    „Okkur rennur blóðið til skyld- unnar. Við eigum rætur í safninu því þar eru nokkrar vélar sem til- heyrðu forvera okkar, gamla Flug- félagi Norðurlands,“ sagði Friðrik Adolfsson, framkvæmdastjóri Nor- landair, við Morgunblaðið.    Norlandair er með þessu orðinn næst stærsti styrktaraðili safnsins á eftir Icelandair, sem Arngrímur Jóhannsson stjórnarformaður safnsins, segir að hafi styrkt starf- semina myndarlega frá upphafi.    Einni kennsluvéla flugakademíu Keilis í Reykjanesbæ var gefið nafn í lok árlegs flugdags á Akureyri um síðustu helgi. Arngrímur Jóhanns- son skal hún heita, eftir flugstjór- anum, vegna frumkvöðulsstarfs hans í fluginu, að sögn Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Keilis.    Miðbærinn á Akureyri er bæjarbúum hjartfólginn og hefur lengi verið. Engum er líklega sama hvernig þar er um að litast og vert að vekja athygli á opnum íbúafundi í dag þar sem kynnt verða fyrstu drög nýs miðbæjarskipulags.    Hönnuðir skipulagsins nýja eru Logi Már Einarsson, arkitekt hjá Kollgátu (og bæjarfulltrúi), og Ómar    Miklar breytingar á miðbænum voru lagðar til fyrir nokkrum árum, þegar fram fór alþjóðleg samkeppni en þær urðu ekki að veruleika. Fróð- legt verður að sjá nýju tillögurnar.    Ekki hefur farið framhjá bæj- arbúum og gestum þeirra síðustu daga að þyrla hefur flogið reglulega yfir svæðið. Þar er á ferðinni gripur á vegum Sportferða í samstarfi við Reykjavík Helicopters og verður boðið upp á útsýnisflug á Norður- landi í sumar.    Þeir sem tekið hafa sér far með þyrlunni eiga vart orð til að lýsa hrifningu sinni. „Þyrlupallur“ er á flötinni neðan við Samkomuhúsið.    Alls kyns ferðir eru í boði; allt frá „hoppi“ á topp Kerlingar til dagsferðar að helstu perlum Norð- urlands; Öskju, Herðubreiðar, foss- anna og Flateyjar, svo dæmi séu nefnd. Skemmtileg viðbót við fjöl- breytta flóru í ferðaþjónustunni en ferðin kostar auðvitað skildinginn, eins og gefur að skilja.    Ótrúleg listaverkasýning Að- alheiðar S. Eysteinsdóttur var opn- uð víða í Listagilinu sl. laugardags- kvöld, í tilefni af fimmtugsafmæli hennar. Ítarlega var sagt frá sýning- unni hér í blaðinu fyrir opnun og varla ástæða til að fara nánar í þá sálma, nema með því að hvetja alla íbúa Akureyrar, nærsveitunga og þá sem leið eiga norður, til að skoða sýninguna. Ég þori að veðja að eng- inn verður svikinn af því.    Gönguvika á Akureyri og í ná- grenni hefst mánudaginn 1. júlí. Gönguvikan er nú haldin í fimmta sinn og boðið er upp á fjölbreyttar göngur af ýmsum erfiðleikastigum, allt frá tveggja tíma léttri göngu um Hrísey upp í 28 tíma göngu á 24 tinda í Glerárdalshringnum.    Gönguvikan er samvinnuverk- efni Akureyrarstofu, Ferðafélags Akureyrar, Glerárdalshringsins 24x24 og Ferðafélags Hríseyjar. Nánari upplýsingar á heimasíðu bæjarins, www.akureyri.is    Í næstu viku kemur barna- og unglingasirkusinn Cirkus Flik Flak frá Danmörku í heimsókn til Ak- ureyrar og heldur sýningar í íþrótta- húsi Giljaskóla. Sýningar verða fimmtudaginn 4. júlí kl. 19.00 og föstudaginn 5. júlí kl. 10.00 og eru gestum að kostnaðarlausu.    Aðeins að helsta áhugamáli landsmanna í lokin. Boðið var upp á langþráða rigningu í höfuðstað Norðurlands í gærmorgun, ef hægt er nota það nafn yfir fáeina dropa. Gott fyrir gróðurinn, sagði gamla fólkið, en svo var komið sólbaðs- veður eftir hádegi. Held að spáð sé rigningu í dag þannig að væntanlega verður hægt að sitja úti á svölum með kaffið... Morgunblaðið/Skapti Aðalheiður Sauðburður er ein sýninga Aðalheiðar í Listagilinu. Heba Ásgrímsdóttir ljósmóðir á opnunarkvöldinu. Þyrlupallur í nýju miðbæjarskipulagi? Morgunblaðið/Skapti Arngrímur Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis ásamt flugstjóranum Arngrími Jóhannssyni og alnafna hans, kennsluflugvélinni, á flugdeginum. Kolviður og Landsbankinn hafa gert með sér nýjan samning til eins árs um kolefnisjöfnun. Markmið hans er að binda kol- efni, CO2, sem til fellur vegna til- tekinnar starfsemi Landsbankans, aksturs bíla og flugferða starfs- manna, í gróðri og jarðvegi með landgræðslu og skógrækt sem Kol- viður hefur umsjón með. Kostnaður við kolefnisbindingu árið 2013 er 2.000 krónur á tonn af kolefni. Áætluð losun Landsbank- ans er um 240 tonn sem samsvarar 480 þúsund krónum, að því er kem- ur fram í tilkynningu. Kolviður starfar undir eftirliti Ríkisendurskoðunar, Íslenskrar skógarúttektar og ytri endurskoð- enda sem yfirfara og sannreyna að nauðsynleg plöntun og umhirða eigi sér stað og að fjármunir séu tryggðir til umhirðu þar til trjá- ræktin hefur skilað þeirri bindingu sem kolefnisjöfnunin miðar að. Magnús Gunnarsson, formaður Skógrækt- arfélags Íslands, Reynir Kristinsson, stjórnarformaður Kolviðar, og Jensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunar, skrifa undir samninginn. Nýr samningur um kolefnisjöfnun Ráðstefna verður í Háskólanum í Reykjavík á morgun í minn- ingu Guðjóns Magnússonar prófessors. Á ráðstefnunni munu erlendir og íslenskir sér- fræðingar fjalla um leiðir til að stuðla að betri heilsu og vellíðan. Þar verða einnig kynntar nýjar niðurstöður embætt- is landlæknis um heilsu og ójöfnuð á Íslandi. Ráðstefnan stendur yfir frá klukkan 9-15. Michael Marmot, pró- fessor og yfirmaður stofnunar um heilsujöfnuð, verður aðalfyrirles- ari. Ráðstefna um heilsu og vellíðan Michael Marmot Lindex á Íslandi mun á næstu fjór- um árum leggja Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna, UNICEF, lið við uppbyggingu menntunar í Búrkína Fasó í Vestur-Afríku. Alls nemur styrkurinn tíu millj- ónum króna og mun nýtast við að auka aðgengi ungra barna að skól- um, gera skóla barnvæna og auka gæði kennslunnar en um 40% barna í landinu ljúka ekki grunn- skólanámi. Styrkir UNICEF vegna Búrkína Fasó STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.