Morgunblaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 36
„Hluti af mann- kynssögunni“ Forsvarsmenn Þjóðminjasafns Bretlands hafa hleypt af stokkunum bæklingi þar sem áhersla er lögð á þau listaverk í eigu safnsins þar sem sam- kynhneigð er til umfjöllunar. Í bæklingnum má finna muni allt frá papírus Forn-Egypta og eró- tískum myndum á rómverskum bikurum til mál- verka eftir David Hockney. Frá þessu er greint á vef BBC. Að sögn Richards Parkinsons, sýningarstjóra í forn-egypsku deild safnsins og höfundar bæklings- ins, er markmiðið að varpa ljósi á það hvernig list- irnar hafa fjallað um samkynhneigð og hversu erf- itt hefur reynst að finna heimildir í listaverkum um ástir til sama kyns. „Söfn hafa ávallt verið mik- ilvægir staðir fyrir fólk til þess að velta fyrir sér eigin kynhneigð. Flest söfn eiga í fórum sínum grískar og rómverskar styttur af nöktum karl- mönnum. Það þýðir að fyrir karlmenn sem þráðu aðra karlmenn þá var þetta einn af fáum stöðum þar sem þeir gátu horft á nakinn karllíkamann,“ segir Parkinson. Rifjar hann upp að könnun sem gerð var meðal gesta safnsins í tengslum við sýn- ingu um rómverska keisarann Hadrian árið 2008 leiddi í ljós að fæstir gerðu sér grein fyrir að Hadrian hefði verið samkynhneigður. „Fólk heldur oft að saga homma og lesbía sé minnihlutasaga, en auðvitað er þessi saga hluti af mannkynssögunni.“ Föngulegur David eftir ítalska myndhöggv- arann Michelangelo.  Bæklingur um samkynhneigð í listum 36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 Jorge Bucay, höfundurLeyfðu mér að segja þérsögu, segir bækur sínarekki vera dæmigerðar sjálfshjálp- arbækur þar sem fólk getur flett upp lausnum á hinum ýmsu vandamálum, heldur fái bækur hans fólk til að velta vöngum, hugsa og finna sjálft lausnina. Í bókinni segir sögumaðurinn Demíán frá heimsóknum sínum til sálfræðings, sem er Bucay sjálfur, en hann beitir býsna óvenjulegum aðferðum í viðtalsmeðferð sinni. Hann segir sögur og í lokin hefur Demíán opnast ný sýn á sjálfan sig og samskipti við annað fólk og hann er betur í stakk búinn til að takast á við lífið og tilveruna. Sögurnar virðast koma héðan og þaðan, sumar eru býsna hefð- bundnar dæmisögur sem hafa sést áður, aðrar með ævintýrablæ og enn aðrar eru gamansögur. Þær eru misgóðar og boðskapurinn kemst misvel til skila, en til dæmis er sú fyrsta um hlekkjaða fílinn nokkuð áhrifarík í einfaldleika sín- um og sagan um dyravörð vænd- ishússins vekur líka til umhugs- unar. Þetta er falleg bók bæði að utan og innan og er vafalítið gagnlegt tól í hinni eilífu sjálfsleit. SjálfshjálparbókANNA LILJA ÞÓRISDÓTTIR BÆKUR Falleg bók með fögru innihaldi Leyfðu mér að segja þér sögu mnn Eftir: Jorge Bucay, Vaka-Helgafell 2013, 318 blaðsíður Höfundurinn Jorge Bucay, höfund- ur Leyfðu mér að segja þér sögu. Ljósmyndasafn Reykjavíkur býð- ur upp á forvitnilega ljós- myndagöngu um Gömlu höfnina í Reykjavík í kvöld kl. 20 þátttak- endum að kostnaðarlausu. Í göngunni verður þróunarsaga hafnarsvæðisins á um 100 ára tímabili rakin með hjálp gamalla ljósmynda. „Hin mikla hafn- argerð í Reykjavík á árunum 1913-1917 markaði tímamót í sögu Reykjavíkur og í göngunni verða sýndar ljósmyndir sem end- urspegla hafnarsvæðið bæði fyrir og eftir framkvæmdirnar auk þess sem hafnargerðinni sjálfri verða gerð nokkur skil. Í göng- unni verða einnig sýndar athygl- isverðar ljósmyndir sem sýna hið kröftuga athafnarlíf sem ein- kenndi gamla hafnarsvæðið, auk þess sem mörgum af þekktustu kennileitum Reykjavíkurhafnar, s.s. Kolakrananum, Steinbryggj- unni og Verkamannaskýlinu bregður fyrir,“ segir m.a. í til- kynningu. Gönguna leiðir Gísli Helgason, verkefnisstjóri hjá Ljósmynda- safni Reykjavíkur. Lagt er af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Ljósmyndaganga um Reykjavíkurhöfn Bryggjulíf Hópur fólks við bryggju í Reykjavíkurhöfn árið 1907 eða 1908. Staðfest hefur verið að Robert Downey jr. muni bregða sér í hlut- verk Iron Man í framhaldsmynd um Avengers. Downey jr. hefur leikið járnkarl- inn í þremur myndum frá árinu 2008 og fyrstu Avengers- myndinni þar sem fimm ofurhetjur leiða saman hesta sína. Fastlega er búist við því að leikararnir Mark Ruffalo, Chris Evans, Chris Hems- worth og Scarlett Johansson leiki einnig í framhaldsmyndinni sem væntanleg er 2015. Samanlagt hafa Iron Man 3 og Avengers Assemble skilað tæpum þremur milljörðum bandaríkjadala. Downey jr. leikur járnkarlinn áfram Robert Downey jr. Fjölbreytilegt efni er í nýju hefti Tímarits Máls og menningar, þar á meðal áður óbirt ljóð eftir Ara Jós- efsson (1939- 1964). Í grein sem fjallar um eðli fjölmiðla og ábyrgð eigenda gerir Árni Snævarr upp dvöl sína á Stöð tvö. Þá ræðir Kristrún Heimisdóttir við Jóhann Pál Árnason heimspeking, sem ekki hefur tekið þátt í íslenskri stjórn- málaumræðu áratugum saman. Þau ræða meðal annars sósíalismann og alræðið, sögu íslenskra sósíalista og þátt Einar Olgeirssonar sér- staklega; fall kommúnismans í Aust- ur-Evrópu sem Jóhann Páll hefur skrifað mikið um og loks ber ís- lenska hrunið á góma. Örn Daníel Jónsson skrifar um heita pottinn í Vesturbæjarlauginni og ýmislegt kringum lauga- og sund- menningu í Reykjavík. Úlfhildur Dagsdóttir rekur sögu Medúsuhóps- ins, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir skrifar um mörk sagnfræði og skáld- skapar og viss álitamál hvað þau varðar og Árni Bergmann veltir Halldóri Laxness og útópíunni fyrir sér. Af skáldskap í heftinu má nefna sögur eftir Bubba Morthens og Sverri Norland, og ljóð eftir Þóru Jónsdóttur og Véstein Lúðvíksson. Ritstjóri er Guðmundur Andri Thorsson. Fjölmiðlar, sósíalismi, og skáldskapur í TMM Ari Jósefsson 7 EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS! Missið ekki af þessari stórkostlegu teiknimynd frá höfundum Ice Age FRÁBÆR GAMANMYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF! SUMARSMELLURINN Í ÁR! 16 16 -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is BYGGT Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM UM LEIGUMORÐINGJANN RICHARD KUKLINSKI LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar L L 12 THE PURGE Sýnd kl. 8 - 10 THE ICEMAN Sýnd kl. 8 - 10:20 THE INTERNSHIP Sýnd kl. 5:30 EPIC 2D Sýnd kl. 5 EPIC 3D Sýnd kl. 5 FAST AND FURIOUS 6 Sýnd kl. 8 - 10:30 „Toppar alla forvera sína í stærð, brjálæði og hraða.” - T.V., Bíóvefurinn HHH H.K. -Monitor www.nortek.is Sími 455 2000 ÖRYGGISLAUSNIR FYRIR ÖLL HEIMILI Nortek er með mikið af einföldum notenda- vænum lausnum fyrir heimili og sumarbústaði. Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is HEIMILISÖRYGGI • Innbrotakerfi • Myndavélakerfi • Brunakerfi • Slökkvikerfi • Slökkvitæki • Reykskynjarar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.