Morgunblaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM Á TOPPNUM Í ÁR KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA MANOFSTEEL3D KL.4:30-5-7:30-8-10:30 MANOFSTEEL2D KL.6-9-10:10 MANOFSTEELVIP KL.5-8 PAINANDGAIN KL.5:20-8-10:40 HANGOVER-PART3 KL.5:50-8 KRINGLUNNI MAN OF STEEL 3D KL. 5 - 8 - 10 THE BIG WEDDING KL. 6 - 8 - 10:30 NOW YOU SEE ME KL. 5:30 - 8 MAN OF STEEL 3D KL. 5 - 8 - 11 MAN OF STEEL 2D KL. 6 - 9 THE BIG WEDDING KL. 6 - 8 PAIN AND GAIN KL. 8 - 10:40 NOW YOU SEE ME KL. 5:30 - 10 NÚMERUÐ SÆTIKEFLAVÍK MANOFSTEEL3D KL.8-11 PAINANDGAIN KL.10:30 NOWYOUSEEME KL.8 AKUREYRI MAN OF STEEL 3D KL. 5 - 8 - 11 THE BIG WEDDING KL. 6 - 8 PAIN AND GAIN KL. 10 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á “PURE SUMMER MAGIC” ÓVÆNTASTI SMELLUR ÁRSINS „DREPFYNDIN GLÆPAGRÍNMYND“ „FYNDNASTA MYND SEM ÉG HEF SÉÐ Í ÁR.“  NEW YORK POST T.V. - BÍÓVEFURINN BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM ERU GRJÓTHARÐIR Í ÞESSARI FRÁBÆRU MYND OG VINSÆLASTI GRÍNÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA! FRÁBÆR GRÍNMYND NEW YORK DAILY NEWS FRÁ CHRISTOPHER NOLAN ÁSAMT Z. SNYDER KEMUR STÆRSTA MYND ÁRSINS MAGNAÐASTA BÍÓUPPLIFUN ÞESSA ÁRS! “SPECTACULAR”  EMPIRE “GLÆSILEG OFURHETJUMYND” H.S.S. - MBL  FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Öll þessi verk hér voru unnin sér- staklega fyrir sýninguna,“ segir belg- íska myndlistarkonan Jeanine Cohen þegar hún gengur með blaðamanni um sýningarsal Hverfisgallerís neðst á Hverfisgötunni. Sýning á mál- verkum hennar, unnum með akrýl- og flúormálningu á við, verður opnuð þar í dag klukkan 17. Cohen hefur áður sýnt hér, í i8 gall- eríi fyrir níu árum, og hefur ferðast um landið og unnið hér að list sinni. „Nokkur verkanna vann ég sér- staklega með hliðsjón af litum Ís- lands; litum himinsins og náttúrunn- ar hér. Þá blanda ég litina með því að mála þá, lag fyrir lag,“ segir hún og sýnir þrjú verk með stórum litaflöt- um. Verk Cohen eru mjög formræn; viðargrindur sem settar eru saman og svo málar hún á valda fleti við- arins, oft með skærum neónlitum sem endurkastast á veggina og hafa þannig áhrif á umhverfið. „Þessi verk hér eru meira um landslag og tilfinningu fyrir litum en oft áður á sýningum mínum,“ segir hún. „Á fyrri sýningu minni hér voru líka málverk en á striga og inn- römmuð, þar vann ég með liti náttúr- unnar á mínimalískan hátt. Verkin mín nú eru enn geómetrískari en lit- irnir eru mjög mikilvægir.“ Hún segir þetta vera málverk, en mætti ekki eins tala um málaða skúlptúra? „Þetta eru þrívíð málverk en ekki skúlptúrar. Þetta er aðferð til að nálgast málverkið með því að setja saman formræna grind. Nú snúast verkin mín mikið um það hvernig fara má inn í þau; ég vinn með stoðgrind þeirra. Verkin mín breytast sífellt eftir því hvernig birtan breytist, því þá breyt- ast skuggar og endurvarp litanna út í rýmið.“ Cohen segir verk sín undir miklum áhrifum af arkitektúr. Hún tekur til að mynda mikið af ljósmyndum um ferðum sínum um heiminn, þar sem hún rýnir í form í umhverfinu. „Verkin mín eru að vissu leyti skyld mínimalískri list en eru ekki mínimalísk, þau eru rómantískari en svo. Ég byggi verkin mín sjálf úr viði, set þau saman og mála. Vinnan end- urspeglar tilfinningar mínar til verk- anna. Það er líka mikilvægt að þau séu í mannlegum stærðum.“ Morgunblaðið/Einar Falur Neónlitir Myndlistarkonan Jeanine Cohen við eitt verkanna í Hverfisgalleríi. Hún málar valda fleti á stoðgrindinni og skærir neónlitir smitast út á veggi. „Verkin mín breytast sífellt eftir því hvernig birtan breytist,“ segir hún. Málverkin unnin með hliðsjón af litum Íslands  Jeanine Cohen sýnir málverk sín í Hverfisgalleríi Fyrirtækið AEG Live hefur fengið viðvörun frá breskri eftirlits- stofnun með auglýsingum, Advert- ising Standards Authority (ASA), vegna markaðssetningar á tón- leikum bandaríska tónlistarmanns- ins Kanye Wests í tónleikahúsinu Hammersmith Apollo í Lundúnum, 24. febrúar sl. Í auglýsingum kom fram að aðeins yrðu haldnir einir tónleikar með West en síðar var tvennum bætt við, 23. febrúar og 1. mars, vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum. ASA telur auglýsingar AEG Live hafa verið blekkjandi en tekur þó þær skýringar fyrirtæk- isins gildar að ekki hafi staðið til að halda fleiri tónleika þegar auglýs- ingarnar voru gerðar. Viðvörunin felst í því að AEG Live auglýsi tón- leika sína ekki með þeim hætti framvegis. Blekkjandi markaðssetn- ing á tónleikum Wests AFP Þrennir Kanye West hélt þrenna tónleika í Lundúnum, ekki eina. Hljómsveitin Árstíðir heldur tón- leika á Kex hosteli, Skúlagötu 28, í kvöld og hefjast þeir kl. 21. Tilefnið er að kynna sérstaka vínylútgáfu af plötu hljómsveitarinnar, Svefns og vöku skil sem kom út árið 2011. Tónleikarnir verða þeir einu sem hljómsveitin heldur á höfuðborg- arsvæðinu fram að tónlistarhátíð- inni Iceland Airwaves þar sem hún verður á tónleikaferðalagi erlendis fram undir októberlok. Vínyll Tveir úr Árstíðum á tónleikum. Leikur á Kexi og kynnir vínylútgáfu Morgunblaðið/Ómar Ákveðið hefur verið að færa tónleika breska gítarleikarans Jeffs Beck um set og verða þeir haldnir í Há- skólabíói í kvöld en ekki í Voda- fone-höllinni eins og til stóð. Beck leikur þar ásamt hljómsveit en hljómsveitin Mezzo- forte leikur á undan, skipuð upp- haflegum meðlimum. Beck er jafn- an talinn með færustu gítar- leikurum rokksögunnar, lék í byrjun ferils síns með hljómsveit- inni The Yardbirds og hefur hlotið Grammy-verðlaun sjö sinnum, svo fátt eitt sé nefnt. Miðasala á tónleika Becks í Há- skólabíói fer fram á midi.is. Beck leikur í Háskólabíói Gítarsnillingurinn Jeff Beck

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.