Morgunblaðið - 27.06.2013, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.06.2013, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 MYNDARLEGUR www.landrover.is NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4 VERÐ FRÁ 10.990.000 KR. Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins 8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu. Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 E N N E M M / S ÍA / N M 5 7 9 9 0 *M ið að vi ð up pg ef na r vi ðm ið un ar tö lu r fr am le ið an da um el ds ne yt is no tk un íb lö nd uð um ak st ri . VIÐTAL Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is „Kettirnir eru svekktir og fólkið líka. Ætli kettirnir séu þó ekki svekktari,“ segir Einar Steindórsson fisksali. Einar hefur ásamt konu sinni, Þóru Egilsdóttur, rekið Fiskbúðina á Freyjugötu í Þingholtunum í 22 ár, en nú hyggjast þau láta af starfinu. Einar segir vinnuna vera afar skemmtilega, en nú séu þau hins veg- ar að komast á aldur. „Ég verð 70 ára á árinu. Ég held að þótt ég myndi hætta eftir 10 ár yrði ég ennþá spurður hvers vegna í ósköpunum ég væri að hætta.“ Hann segir mestu eftirsjána vera að viðskiptavinunum. „Það er svo skemmtilegt fólk hér í hverfinu, margir listamenn og leik- arar og það er það sem maður sér mest eftir.“ Kettir reka upp harmakvein Mannfólkið í hverfinu er þó ekki eitt um að gráta brotthvarf þeirra hjóna, því kettirnir hafa gjarnan leitað til þeirra með von um smá mat- arbita. „Það er einn sem kemur alltaf um leið og við á morgnana, kemur alltaf hlaupandi þegar hann sér bíl- inn. Ef við komum á öðrum bíl ruglar það alveg kerfinu hjá honum.“ Hann segir kettina vissulega alltaf fá eitt- hvað fyrir sinn snúð, en áréttar þó að þeir séu afar vel haldnir heima hjá sér. Það sé aukabitinn sem þeir ásæl- ist. „Hér ganga um grátandi kettir og menn. Þetta er bæjarins besta fiskbúð,“ segir Birna Þórðardóttir, fastagestur búðarinnar. Hún segir það vera bestu meðmæli sem nokkur fiskbúð fái að kettir skuli bíða í röð- um þar fyrir utan í von um að fá örlít- inn bita. Fiskbúðin á Freyjugötu er þekkt fyrir að vera í gamaldags stíl og fyrir að bjóða upp á fiskrétti á gamla og góða mátann. Fastagestur búð- arinnar, Birna Þórðardóttir, segir aðrar fiskbúðir ekki vera sambæri- legar og sorglegt sé að sjá á eftir þeim hjónum og fisknum þeirra. Helst segist hún sjá eftir smáþorsk- inum. Þá segir hún fiskbúðina lengi hafa verið þekkt kennileiti í Þingholt- unum og að jafnaði mætti hitta ein- hvern vinalegan þar fyrir utan. Fáar fiskbúðir eru nú eftir í miðbænum og Einar segir að þeim hafi farið fækk- andi og þær stækkað. Hann segist þó vongóður um að finna einhvern sem halda vill rekstrinum áfram og við- halda fiskmenningu miðbæjarins. „Kettir og menn eru grátandi“  Einar og Þóra hætta með fiskbúðina á Freyjugötu eftir 22 ára rekstur  Kettir og menn í hverfinu harmi slegnir  Mikill söknuður meðal fastagesta  Skipuleggja kveðjuhóf í fiskbúðinni á morgun Morgunblaðið/Rósa Braga Vinsæll Einar og Þóra, konan hans, hafa staðið vaktina í 22 ár en ætla nú að hafa það rólegt saman. Fastakúnnar búðarinnar segja hvergi vera betri fisk að fá og ætla að kveðja hjónin með því að slá upp gleðskap í búðinni. „Þetta er þakklætis- vottur fyrir þeirra starf,“ segir Birna Þórð- ardóttir, fastakúnni fiskbúð- arinnar, en hún er að skipuleggja kveðjuhóf fyrir Einar og Þóru, eigendur fiskbúðarinnar á Freyjugötu. „Við erum ekki að fara að leggja neinn blómsveig á minnisvarða, en við ætlum að fagna því sem vel hefur verið gert og með slík- um sætleika.“ Hún segir það eftir að koma í ljós hvað verði gert af þessu til- efni. „Þessi hugmynd vaknaði bara í kollinum á mér og ein- hverjir ætla að koma. Við lesum upp ljóð, flytjum tónlist eða dönsum og höfum gaman.“ Kveðjuhófið verður í fiskbúð- inni frá klukkan 16-18 á morgun, föstudag, og eru allir menn og kettir boðnir velkomnir. Skipuleggur kveðjuhóf BIRNA ÞÓRÐARDÓTTIR Birna Þórðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.