Morgunblaðið - 27.06.2013, Page 30

Morgunblaðið - 27.06.2013, Page 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 Ég er svolítið feimið afmælisbarn, mér finnst voðalega nota-legt bara að eyða deginum í faðmi fjölskyldunnar ogkanski baka eina köku,“ segir Freyja Haraldsdóttir, fram- kvæmdastjóri NPA-miðstöðvarinnar, sem er samvinnufélag fatlaðs fólks um notendastýrða persónulega aðstoð og sjálfstætt líf. Freyja á 27 ára afmæli í dag. Freyja segir afmælishefðina einfalda; oftast komi nánir fjöl- skylduvinir í heimsókn. Önnur hefð sem Freyja segir hafa mynd- ast er að góða veðrið geri alltaf vart við sig á afmælisdegi hennar. Hún hafi því litlar áhyggjur af lélegri spá. „Við getum öll hætt að örvænta yfir lélegu veðri, góða veðrið kemur á afmælisdaginn minn!“ Eftirminnilegasta afmælisdag sinn segir Freyja án efa vera 18 ára afmælisdaginn. Þá var hún í fyrsta sinn stödd á ráðstefnu í Bandaríkjunum þar sem hún hitti annað fólk með sömu skerðingu og hún sjálf. Á ráðstefnunni var sungið fyrir hana og um kvöldið fór hópurinn á skemmtistað sem var þó lokaður fólki yngra en 21 árs. „Þau sungu síðan fyrir mig afmælissönginn inni á skemmti- staðnum, en neyddust til að breyta textanum og sungu því að ég ætti 21 árs afmæli, svo enginn myndi fatta neitt. Það er mjög eft- irminnilegur afmælisdagur.“ bmo@mbl.is Freyja Haraldsdóttir er 27 ára í dag Rólegur afmælisdagur Freyja ætlar að eyða deginum með sínum nánustu vinum og vandamönnum, og baka jafnvel köku. Þurfti að breyta afmælissöngnum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Reykjanesbær Inga Laufey Berg- mann Freysdóttir fæddist 26. apríl kl. 22.29. Hún vó 3410 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Ólöf Stefánsdóttir og Freyr Bergmann Sigurbjörnsson. Nýir borgarar Reykjavík Védís Helga Daðadóttir fæddist 6. nóvember kl. 1.07. Hún vó 3305 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Ída Sigríður Kristjánsdóttir og Daði Krist- jánsson. K ristín er fædd og uppal- in á Grundarfirði og býr þar enn. „Ég hef verið alla mína tíð á Grundarfirði, hef búið á þrem stöðum þar og alltaf á Hlíð- arvegi, nr. 2, 8 og 5.“ Hún byrjaði snemma að vinna, í kringum ellefu ára. „Okkur krökk- unum var alltaf haldið að vinnu. Til að mynda vorum við látin raða neta- steinum bara til að gera eitthvað.“ Kristín hefur unnið í fiski, mötu- neyti, skúringum og skrifstofustörf- um hjá Soffaníasi Cecilssyni. Einnig rak hún matvöruverslunina Grund í 9 ár. Síðast vann hún í 5 ár á teikni- stofunni Eik hjá Erlu Bryndísi Kristjánsdóttur. „Við unnum við aðalskipulag, deiliskipulag og einnig með einkagarða. Þetta var það skemmtilegasta starf sem ég hef unnið við.“ Kristín Soffaníasdóttir, húsmóðir á Grundarfirði – 50 ára Fjölskyldan árið 1987 Kristín, Rut, Rúnar Sigtryggur og Kristinn Soffanías eða Soffi eins og hann er kallaður. Hefur búið á Hlíðar- veginum alla sína tíð Við endamark Kerlingarskarðshlaup árið 2010. 15 km að baki. Sveinn Skagfjörð Pálmason frá Reykjavöllum í Skagafirði er 80 ára í dag, 27. júní. Af því tilefni býður hann vinum og vandamönnum til kaffi- samsætis í Mörk, hjúkrunarheimili, Suðurlandsbraut 66, 1. hæð, laug- ardaginn 29. júní frá kl. 16 til 18. Allar gjafir eru vinsamlega afþakkaðar. Árnað heilla 80 ára BETRI FRAMMISTAÐA OG LENGRA ÚTHALD BLÁTT Spírulína gefur jafna orku sem endist Aukið streituþol og bætir einbeitingu. Nærir taugakerfið. Frábær árangur við athyglisbrest og eirðarleysi. Fyrir alla sem eru undir miklu líkamlegu eða andlegu álagi. Lifestream Spirulina BLUE inniheldur 50% meira af Phycocyanin en annað Spírulína, rannsóknir hafa sýnt að það eflir ónæmiskerfið og styður getu líkamans og tauga til þess að starfa eðlilega þrátt fyrir streituálag. Phycocyanin er kallað undrasameindin sem eykur virkni mikilvægra ensíma. Eingöngu ræktuð næringaefni, ekkert GMO. ISO 14001, ISO22000. Fæst í Lifandi Markaði, Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaupi, Græn heilsa. Hrein orka og einbeiting

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.