Morgunblaðið - 27.06.2013, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_1
4.
05
.1
3
Ráðstefnu- og fundarstóll
Tryggðu þér og gestum þínum öruggt
sæti, með vönduðum og þægilegum
stólum á góðu verði.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Notaðu daginn til þess að eiga í við-
ræðum við vini eða félagasamtök. Ef þér
finnst þú lítil áhrif hafa í aðstöðunni, komdu
þér þá í burtu.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að skapa aðstæður fyrir æv-
intýri. Ekki falla í þá freistni að kaupa hluti
bara af því að þú átt eitthvert fé handbært.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er yfir margan þröskuldinn að
fara til að ná því takmarki sem þú hefur
sett þér. Sýndu dugnað í starfi og dirfsku í
persónulegum málum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allt sem þú þarft að framkvæma er
allt sem þú lofaðir. Hleyptu samt ekki of
mörgum að þér. Góður undirbúningur trygg-
ir farsæla framkvæmd.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að láta vinnuna ganga fyrir
öllu öðru svo þér takist að ljúka við þau
verkefni sem fyrir liggja. Færa peningar og
starfsframi þér hamingju? Gefðu af þér og
þú munt uppskera.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Um leið og þú hættir að reyna að
sanna mál þitt mun fólk átta sig á að þú
hafðir rétt fyrir þér. Treystu eðlisávísun
þinni betur, þú veist innst inni hvaða leið er
best.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vogin er gæðaeftirlit, ritskoðari og frið-
argæsluliði allt í senn. Takist þér vel upp
eru bjartir tímar framundan bæði í leik og
starfi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er til lítils að hafa mörg
orð um hlutina ef þeim fylgja engar athafn-
ir. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert svo kappsfull/ur að þér
hættir til að sýna öðrum óþolinmæði. Vinir
hafa þig í huga fyrir framtíðartækifæri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Enginn getur hjálpað þér nema
þú viljir það svo vertu ekki með snúð. Ef
þér er nógu umhugað um áhugamál þitt til
að læra allt um það, gefur það þér forskot í
vinnu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Getur verið að það sé kominn
tími á að þú flytjir eða skiptir um starf?
Vertu opin/n fyrir nýju fólki því ókunnugir
eru í raun vinir sem þú hefur ekki enn
kynnst.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu einbeitt/ur. Gefðu þér allan
þann tíma sem þú þarft. Nýtt verkefni, ný
ábyrgð eða stefnumót við einhvern í fyrsta
sinn mun gefa þér mikla orku.
Það er svo um flest vísnasöfn, aðupplýsingar vantar til að vísan
njóti sín til fulls. Svo er um þessa
stöku sem ber númerið 632:
Til að binda enda á
allt sem hrindir trega;
fáðu í skyndi faldagná
fagra og yndislega.
Undir stendur: Ragnhildur
Bjarnadóttir botnaði. Verðlauna-
vísa. Og meira veit ég ekki.
Vísa númer 631 er eftir Ingi-
björgu Björnsdóttur í Valadal:
Tíðin ýtum tjáist hörð,
tapast hlýtur gleðin:
Aumt er að líta upp í Skörð,
eru þau hvít og freðin.
Og þessi vísa er númer 633 og
höfundar ekki getið:
Til að græða meinið mitt
meður æða fossi
lét út blæða lífið sitt
ljóminn hæða á krossi.
Á öðrum miða stóð eftir Látra-
Björgu:
Get ég að ég sé grýlan barna,
af guðunum steypt í manna líki;
á mig starir unginn þarna
eins og tröll á himnaríki.
Þetta er fyrsta stakan í vísna-
safni þessu:
Á Borgarfelli biskup Steinn
bjó um sína daga.
Biblíuna alla einn
át í sálarmaga.
Jón S. Bergmann orti:
Há og björt sem himinninn
höll er anda mínum
þar sem Bakkus býður inn
bestu vinum sínum.
Þessi vísa er gömul og kann ég á
henni engin skil:
Halldór minn í Holti
hleypur eins og fyl
fram í Grófargil
og skellir þar saman skolti.
Matthías Jochumsson kvað:
Hans, sem veiðir hrognkelsi,
hingað kom í blíðviðri
á rauðri meri og reiðveri
ríðandi úr Kjósinni.
Og að lokum eftir Lilju Gott-
skálksdóttur og með spurning-
armerki þó:
Happakjörin hjónabands
hlýt ég þriðja sinni
klemmd í snöru kærleikans
kona að gjörast Hildibrands.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur af lausum miðum
Í klípu
„NÚ SKIL ÉG. ÞÚ VARST BARA AÐ ÞYKJAST HENDA
PRIKINU, TIL AÐ PLATA MIG. EINS OG ÞEGAR ÉG
VAR AÐ ÞYKJAST VERA BESTI VINUR ÞINN.„
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HANN ÞARF EKKI VASA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leika með fæturna
í sandinum.
JAKKAFÖT
ÉG SKIL AÐ ÞÚ VILT
HITTA, HEPPNI EDDI …
… EN ÞAÐ ER LÍKLEGA
EKKI GÓÐ HUGMYND AÐ
FARA SVONA NÁLÆGT.
KOMDU EINU
SKREFI NÆR
ÞETTA GETUR EKKI
VERIÐ GOTT.Víkverji hefur átt í mikilli baráttu ísumar og hefur unnið hvern
Pyrrhosarsigurinn á eftir öðrum.
Herferð Víkverja fer fram í garð-
inum hjá honum. Víkverji er ekki
mikið gefinn fyrir garðrækt, en í vor
blöskraði honum svo kerfill, sem ver-
ið hefur sjálfala í garðinum hjá hon-
um, að hann ákvað að uppræta hann.
Víkverji tók sér skóflu í hönd og
réðst til atlögu. Kerfillinn hrúgaðist
upp og hann endaði með því að fara
með nokkur bílhlöss á Sorpu. Ekki
leið á löngu eftir þessa fyrstu atlögu
þar til kerfillinn tók aftur að gægjast
upp úr moldinni og brátt voru komn-
ir myndarlegir stilkar. Aftur lét Vík-
verji hendur standa fram úr ermum,
en kerfillinn ætlar ekki að láta deig-
an síga og heldur áfram að spretta.
x x x
Það var loks á þessu stigi að orðSuns Tzus um að maður ætti að
þekkja óvin sinn rifjuðust upp fyrir
Víkverja og það hvarflaði að honum
að leita sér nánari upplýsinga um
þessa lífseigu jurt. „Kerfill er eitt ill-
viðráðanlegasta skrímsli sem ég hef
att kappi við,“ var það fyrsta sem
blasti við Víkverja þegar hann sló
kerfli upp á netinu. Þar sést að víða
um land gerir kerfill mönnum lífið
leitt. Í Eyjafjarðarsveit hefur verið
blásið til atlögu gegn kerflinum und-
ir hinni ískyggilegu yfirskrift „Átak
til eyðingar“. Í Bláskógabyggð sjá
menn einnig sæng sína uppreidda
verði ekki tafarlaust lagt til atlögu.
„Mikilvægt er að bíða ekki með að-
gerðir, þær verða erfiðari og kostn-
aðarsamari eftir því sem tíminn líður
en að lokum verður útbreiðslan ker-
filsins óviðráðanleg,“ segir þar á
heimasíðu.
x x x
Víkverji fór einnig á Wikipediu.Þar var kerfillinn allt í einu orð-
inn viðkvæm jurt, blöðin sögð upp-
lögð í krydd, en varað við því að
rugla henni ekki saman við hina
bráðeitruðu óðjurt, sem Sókrates
fékk að súpa seyðið af á sínum tíma.
Einnig komst Víkverji að því að út-
breiðsla kerfilsins í Evrópu væri
Rómverjum að kenna. Rómarveldi er
löngu hrunið, en veldi kerfilsins hef-
ur aldrei verið meira. víkverji@mbl.is
Víkverji
En öllum þeim sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans.
(Jóhannesarguðspjall 1:12)