Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013
Veðrið er eilíft umfjöllunarefni og
aldrei virðumst við þreytast á að
tala um þetta síbreytilega fyrir-
brigði. Í blaðinu í dag er rætt við
fimm veðurfræðinga sem segja
sögur af landsmönnum og glím-
unni við veðrið. Ekki þó endilega
af hinni raunverulegu baráttu við
viðsjált veðurfar, ofsaveður, blind-
byl og hífandi rok heldur af ein-
hvers konar innri baráttu þeirra
sem hringja í Veðurstofuna í leit
að svörum við hinu og þessu. Veð-
urfræðingarnir segja frá kynnum
sínum af svokölluðum góðkunn-
ingjum Veðurstofunnar. Sumir
hringja reglulega til að spyrja um
sömu hlutina, einn góðkunninginn
spyr í sífellu hvenær snjórinn fari
– allan veturinn. Aðrir hringja í
síma Veðurstofunnar til að fá hús-
ráð eða jafnvel að prútta um veðr-
ið! Reyna að fá veðurfræðingana
til að lofa klukkutíma af sól til að
hægt sé að þurrka þvott … jafnvel
bara fjörutíu mínútum.
Frásagnir veðurfræðinganna af
símtölum í gegnum árin eru stór-
skemmtilegar. Ekki síður vekur
athygli hversu vel virðist tekið í
það að fólk hringi til að ræða allt
milli himins og jarðar við fólk sem
hefur ekki annað á stefnuskránni
fyrir daginn en að sinna sínum
veðurvísindum sem best.
Veðurfréttir eru vinsælt efni í
sjónvarpi og þegar við sjáum
manneskju á skjánum nógu oft fer
okkur að líða eins og við þekkjum
hana. Þannig leið manninum sem
hringdi í Veðurstofuna um árið til
að vita hvernig hann ætti að gera
uppstúf. Hann þorði ekki að
hringja í tengdamóður sína en
treysti móðurlegri rödd veður-
fræðingsins í símanum sem hann
kannaðist við úr viðtækinu til að
leiða sig í sannleikann um sósu-
gerð. Það er gott að eiga góða veð-
urfræðinga. Þolinmæði virðist
ekki síður mikilvæg í starfinu en
spádómsgáfa.
RABBIÐ
Spáð í síma
Eyrún Magnúsdóttir
Sumarið er komið og þá flykkjast listhópar Hins hússins út á götur Reykjavíkur og spila tónlist fyrir þá sem hætta sér út. Ungir tónlistarmenn troða sér
á tröppur eða koma sér fyrir á miðri götu og spila tónverk eftir sig og aðra. Leikhópar á vegum Hins hússins nota strætin til að setja upp stutta leik-
þætti innan um fólkið eða eitthvert sprell sem lífgar upp á mannlífið. Hitt húsið leggur metnað sinn í að gera þetta hvert sumar, til að minna okkur á hve
mannbætandi listin er. Hvernig hún dregur fram mennskuna í okkur. Litar hana sterkari litum. Þessar örfáu vikur sem við Íslendingar sjáum til sólar lifnar
miðbærinn við og verður „staður til að vera á“, eins og segir í auglýsingunni. Þá breytast götur bæjarins úr því að vera leið okkar að einhverju öðru
markmiði, eins og búð eða kaffihúsi, í markmiðið sjálft. Maður fer niður í bæ til þess eins að ganga um göturnar og vera þar. borkur@mbl.is
LISTHÓPAR HINS HÚSSINS ERU KOMNIR Á GÖTUR BÆJARINS
Morgunblaðið/Rósa Braga
SUMARIÐ ER KOMIÐ
Á SUMRIN ÞURFUM VIÐ EKKI AÐ SÆKJA LISTINA Í HÚS SÍN HELDUR SÆKIR LISTIN OKKUR ÚT Á GÖTUR BÆJARINS.
ÞÁ ÞURFUM VIÐ EKKI AÐ LEGGJA MEIRA Á OKKUR EN ÞAÐ AÐ KOMA OKKUR ÚT ÚR HÚSI TIL AÐ NJÓTA HENNAR.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Hörkuleikur í Pepsi-deildinni.
Hvar? Samsung vellinum í Garðabæ.
Hvenær? Sunnudaginn kl. 17:00
Nánar: Stjarnan er í 3. sæti í deildinni
og ÍBV í 6. sæti.
Stjarnan - ÍBV
Hvað? Frí máltíð fyr-
ir börn.
Hvar? Í IKEA.
Hvenær? Alla daga.
Nánar: IKEA er með
gott verð á öllum
réttum á veitingastað sínum en alveg
frítt fyrir krakka yngri en 12 ára.
Frí máltíð fyrir börn
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Fjöl-
skyldujóga.
Hvar? Á grænu
túninu fyrir framan
Viðeyjarstofu í
Viðey.
Hvenær? Laug-
ardaginn kl. 13.00-14.00.
Nánar: Arnbjörg Kristín Konráðs-
dóttir jógakennari gerir jógaæfingar, fer
í leiki, hugleiðir og slakar vel á í lokin við
heilandi tóna gongsins.
Jóga í Viðey
Hvað? 3. umferð Ís-
landsmótsins í torfæru.
Hvar? Við Mýnes, Eg-
ilsstöðum.
Hvenær? Laugardagur.
Keppnin hefst kl. 13.00.
Nánar: Drullupoll-
urinn margfrægi, stökk, tilþrif og mikið
fjör.
Torfæra
Hvað? All tomorrow’s parties.
Hvar? Í fyrrverandi herstöð NATO í
Ásbrú í Keflavík.
Hvenær? Laugardagskvöldið.
Stórtónleikar í Keflavík
Hvað? Björn Thor-
oddsen aleinn og
óstuddur á Gljúfra-
steini.
Hvar? Gljúfrasteini.
Hvenær? Sunnu-
daginn kl. 16:00 -
17:00.
Nánar: Gestir fá að heyra útsetningar á
lögum eftir listamenn á borð við Deep
Puple, Police, Who og Bítlana auk verka
úr smiðju Björns sjálfs.
Gítar á Gljúfrasteini
* Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson