Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Blaðsíða 23
30.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
J úlía Magnúsdóttir lærði svo-kallaða heilsumarkþjálfun íBandaríkjunum og segir að
eftir námið hafi hún sannfærst
um að megrunarkúrar virki ekki.
„Það er staðfest að því oftar
sem þú ferð í megrun því meiri
verður fitusöfnunin. Rannsóknir
hafa sýnt fram á þetta.“
Júlía vill hjálpa konum að kom-
ast í það sem hún kallar hugsjóna-
þyngd. „Hugsjónaþyngd er sú
þyngdartala sem konur dreymir
um að komast í. Sú þyngdartala
þar sem líkaminn er í jafnvægi,
konan sátt og orkan í hámarki.
Flestar konur dreymir um að
komast í einhverja ákveðna þyngd-
artölu, fyrir marga var það ein-
hver tala sem þær voru í fyrir
nokkrum árum eða þegar þær
voru yngri. Hjá öðrum er það
kjörþyngd, en ég er ekkert sér-
lega hrifin af orðinu kjörþyngd,“
segir hún og brosir.
Hún segir einnig að það hægist
á brennslunni hjá konum um allt
að fimm prósent fyrir hvern ára-
tug eftir breytingaskeiðið. „Það er
hægt að binda enda á þennan
vítahring með breyttum lífsstíl og
matarvenjum,“ segir Júlía sem
hefur stofnað vefinn Lifðu til fulls
því hún segist vilja hjálpa konum
að ná jafnvægi og tileinka sér
heilbrigðan lífsstíl. Hún hefur trú
á að umhyggja fyrir sjálfum sér
fleyti konum langt í átt að betri
heilsu og varar fólk, konur sem
karla, við því að vilja gera allt í
einu og færast of mikið í fang í
byrjun.
Júlía telur það geta hjálpað
mörgum að einfalda hlutina og
hún hefur trú á að með því að
byrja á litlum skrefum geti maður
öðlast heilbrigt líf. Hún leggur
upp með fimm einföld skref sem
hjálpa til við að hugsa vel um eig-
in líkama og huga:
Skref 1 Hreinsun er fyrsta skref-
ið, bæði líkamlega og andlega.
Losaðu þig við það hugarfar að
það sé lausn að fara í enn eitt
tímabundið átak og tileinkaðu þér
þá hugsun að heilsusamlegur lífs-
stíll er ferðalag sem endist alla
ævi.
Skref 2 Með því að borða hægar
og anda betur á milli matarbita
geturðu komið þér af stað í átt að
betri tengingu við líkamann.
Skref 3 Vandaðu þig við að velja
og hafna upplýsingum sem dynja
á okkur um hvað er hollt og hvað
ekki. Leyndarmálið felst í að læra
á eigin líkama.
Skref 4 Reyndu að gera eitthvað
skemmtilegt inn á milli sem hjálp-
ar þér við að halda nýja heilbrigða
lífsstílinn út, hvort sem það er að
dekra við þig með því að fara í
gufu eftir líkamsrækt, fara á kaffi-
hús eða hvað sem er sem aðstoðar
þig við að halda ferðalaginu áfram.
Skref 5 Staldraðu við inn á milli
og sjáðu hverju þú hefur áorkað
og hvað hefur virkað. Passa þarf
til dæmis að sitja ekki uppi með
of einhæfa fæðu, sem verður fljótt
leiðigjörn.
Júlía Magnúsdóttir
rekur vefinn Lifðu til
fulls og kveðst vilja
hjálpa konum að
komast í það sem hún
kallar hugsjónaþyngd.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
JÚLÍA MAGNÚSDÓTTIR HEILSUMARKÞJÁLFI
Aftur í gömlu töluna
MEGRUNARKÚRAR VIRKA EKKI OG ÞVÍ OFTAR SEM VIÐ FÖRUM Í MEGRUN
ÞVÍ MEIRI VERÐUR FITUSÖFNUNIN. HEILSUMARKÞJÁLFI TELUR LAUSNINA
AÐ HEILBRIGÐU LÍFI EKKI AÐ FINNA Í TÍMABUNDNU ÁTAKI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Áhættureiknir Hjartaverndar met-
ur áhættu einstaklings á að fá
hjartasjúkdóm á næstu 10 árum og
byggist á þeirri þekkingu sem
Hjartavernd hefur aflað með öflugu
vísindastarfi síðastliðin 40 ár. Full
ástæða er til að benda fólki á þenn-
an möguleika og að á heimasíðu
Hjartaverndar er hægt að kynna
sér málið á ensku, sænsku og
pólsku, auk íslensku.
Á síðunni segir að áhættumatið
sé í samræmi við áhættumat í Evr-
ópulöndum. Tekið er fram að nið-
urstaða sem sýnir að áhætta ein-
staklings sé lítil sé engin trygging
fyrir að viðkomandi fái ekki hjarta-
sjúkdóm þar sem aðeins er tekið
tillit til helstu áhættuþátta sem eru
þekktir nú á dögum. Einnig að nið-
urstöðurnar séu ekki marktækar
fyrir þá sem hafa fengið krans-
æðastíflu, hafa farið í hjartaaðgerð
eða í kransæðaútvíkkun. Hægt er
að komast inn á áhættureiknivélina
á vefsíðunni www.hjartavernd.is.
ÁHÆTTUREIKNIR HJARTAVERNDAR
Hægt er að reikna út áhættu á hjarta-
sjúkdómum með sérstakri áhættu-
reiknivél Hjartaverndar.
Morgunblaðið/Kristinn
Ert þú í
áhættuhópi?
Keppt verður um titilinn hrað-
skreiðasti hjólreiðamaður landsins
2013 næstkomandi fimmtudags-
kvöld, 4. júlí. Sæbrautin mun þá
breytast í hringleikahús hraðans í
hjólamótinu Alvogen Midnight
Time Trial, en keppt er í götu- og
þríþrautarflokki (16 km og 32 km) í
kvenna- og karlaflokki. Margir af
fljótustu hjólreiðamönnum og
-konum landsins hafa boðað komu
sína á mótið, en veitt verða verð-
laun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum
flokki en 900.000 krónur af verð-
launafé munu renna til góðgerð-
armála.
Hjólað fyrir menntun
Alþjóðalyfjafyrirtækið Alvogen er
aðalstyrktaraðili keppninnar og til-
einkar hana menntun barna til að
vekja athygli á þeirri staðreynd að
of mörg börn í heiminum fá ekki að
njóta þeirra réttinda að ganga í
skóla. Þátttökugjald keppenda mun
að fullu renna til Unicef og Rauða
krossins og verður notað til að
mennta stúlkur í Magdagaskar og
til reksturs Verkmenntaskóla í
Síerra Leóne. Undanfarin þrjú ár
hafa starfsmenn Alvogen í 30 lönd-
um staðið fyrir söfnun í nafni góð-
gerðarsjóðs fyrirtækisins, Better
Planet. Alvogen hefur nú þegar
styrkt Unicef og Rauða krossinn
um ríflega 20 milljónir í gegnum
sjóðinn Better Planet. Söfnuninni
lýkur nú í júlí og munu þau afhenda
Unicef ágóðann.
Hring eftir hring
Keppnin hefst við Hörpu og liggur
leiðin eftir Sæbrautinni að gatna-
mótum Laugarnesvegar og til baka.
Keppnishringurinn er um 5,5 km
langur og verða hjólaðir þrír eða
sex hringir eftir flokkum. Verðlaun
verða veitt að keppni lokinni, en í
vinning fyrir fyrsta sæti í hverjum
flokki fyrir sig eru flugmiðar fyrir
tvo til Evrópu og 100.000 krónur
sem vinningshafi gefur til góðgerð-
armála á Íslandi að eigin vali. Hægt
er að skrá sig til leiks á hjolamot.is.
asdis@mbl.is
SÆBRAUTIN BREYTIST Í HRAÐBRAUT HJÓLA
Róbert Wessman, forstjóri Alvogen,
mun ekki láta sig vanta í hjólamótið.
Hver hjólar
hraðast?