Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Blaðsíða 34
Nýjustu útgáfu Photoshop: CS6 „Fótósjoppan hefur reynst mér afar vel í gegnum árin, hvort sem ég er að snyrta ljósmyndir, búa til auglýsingar, tillögur að bókarkápum eða hreinlega jólakort fyrir familíuna. Forrit sem ég get ekki verið án.“ Apple TV 3 „Um leið og sjónvarpsmálin mín verða komin á tuttugustu og fyrstu öldina get ég farið að splæsa í græju eins og Apple TV og fengið mér áskrift að Netflix, sem vinir mínir halda ekki vatni yfir. Þetta verður spennandi, ekki síst að komast að því hvort vinirnir hafi rétt fyrir sér.“ Nettengdur harður diskur „Ég verð að taka undir með miklum meistara úr Breiðholtinu sem benti mér á þennan nettengda harða disk. Bráðsniðug græja fyrir alla sem vilja örugga gagnaafritun. Svo talar hann sama tungumál og mörg önnur heimilistæki, ásamt því að vera þokkalega umhverfisvænn. Snilld.“ Mig langar í … Nýja Macbook Pro fartölvu „Þessi er með 500 GB hörðum diski, en ég er búin að stútfylla gömlu Macbook-tölvuna sem höktir um með harmkvælum. Að flökkurum ólöstuðum vil ég geta haft mikið gagnamagn á tölvunni. Og það er ekkert leyndarmál að ég er mikill Apple-aðdáandi.“ Framtíðarsjónvarp „Ég var alin upp við að ef hlutirnir virkuðu væri engin þörf fyrir að endurnýja þá strax. Af þessum sökum sit ég uppi með stærðarinnar túpusjónvarpshlunk í stofunni. Um leið og það gefur upp öndina er á dagskrá að fá mér létt- ara og fyrirferðarminna sjónvarp sem getur talað við önn- ur tölvuvædd tæki heimilisins. Þessi elska frá Sony er bara 11,3 kg – svo dæmi sé nefnt.“ iPad Retina „Sonur minn er tæplega fjögurra ára gamall en virðist hokinn af reynslu þegar spjaldtölvur eru annars vegar. Það er hrein unun að sjá hvað hann hefur gaman af ýmsum lær- dóms- og þroskaleikjum og hvað hann stýrir þeim af mikilli fimi. iPad Retina er kannski fulldýr sem þroskaleikfang, en mamman myndi að sjálfsögðu nota hann líka.“ Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur segir að tækjafíkn hái sér ekki alvarlega þó hún njóti þess að eiga græjur sem auðvelda sér lífið. Um þessar mundir er hún að vinna að nýrri bók sem hún hefur gengið lengi með í maganum. Situr sveitt við skriftir. Auk þess er hún að þýða framhaldið á metsölubókinni The Devil Wears Prada. Hún hlakkar til sumarsins „með sínum nið- urrigndu, íslensku útilegum,“ eins og hún segir sjálf frá og þá ætlar hún á ættarmót ásamt manni mínum, syni og stjúpdætrum. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Ryksuguvélmenni „Hverjum finnst gaman að ryksuga? Þetta er borðleggjandi mál.“ iPhone 5 „Handa manninum mínum, sem er með gamlan, úreltan android síma en sjálf á ég Iphone 4S. Ég er ekki eins og sum tækninördin, sem hafa verið sigri hrósandi yfir einhverri könnun sem sýndi að nýjasti Iphone-inn sé einhverjum millisekúndum hægari en útvaldir snjallsímar. Fyrir mér er það fyrst og fremst viðmót Iphone sem er snilld, auk ýmissa smáforrita sem mér þætti æðislegt að geta kynnt minn heittelskaða fyrir.“ *Græjur og tækniTækin sem við notum hafa áhrif á líkamsstöðu og skjástærð tækjanna skiptir máli »36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.