Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 34
Nýjustu útgáfu
Photoshop: CS6
„Fótósjoppan hefur reynst mér afar vel í
gegnum árin, hvort sem ég er að snyrta
ljósmyndir, búa til auglýsingar, tillögur að
bókarkápum eða hreinlega jólakort fyrir
familíuna. Forrit sem ég get ekki verið án.“
Apple TV 3
„Um leið og sjónvarpsmálin mín verða
komin á tuttugustu og fyrstu öldina get
ég farið að splæsa í græju eins og Apple
TV og fengið mér áskrift að Netflix, sem
vinir mínir halda ekki vatni yfir. Þetta
verður spennandi, ekki síst að komast
að því hvort vinirnir hafi rétt fyrir sér.“
Nettengdur harður diskur
„Ég verð að taka undir með miklum meistara úr
Breiðholtinu sem benti mér á þennan nettengda
harða disk. Bráðsniðug græja fyrir alla sem vilja
örugga gagnaafritun. Svo talar hann sama tungumál
og mörg önnur heimilistæki, ásamt því að vera
þokkalega umhverfisvænn. Snilld.“
Mig langar í …
Nýja Macbook Pro fartölvu
„Þessi er með 500 GB hörðum diski, en ég er búin
að stútfylla gömlu Macbook-tölvuna sem höktir um
með harmkvælum. Að flökkurum ólöstuðum vil ég
geta haft mikið gagnamagn á tölvunni. Og það
er ekkert leyndarmál að ég er mikill
Apple-aðdáandi.“
Framtíðarsjónvarp
„Ég var alin upp við að ef hlutirnir virkuðu væri engin
þörf fyrir að endurnýja þá strax. Af þessum sökum sit ég
uppi með stærðarinnar túpusjónvarpshlunk í stofunni. Um
leið og það gefur upp öndina er á dagskrá að fá mér létt-
ara og fyrirferðarminna sjónvarp sem getur talað við önn-
ur tölvuvædd tæki heimilisins. Þessi elska frá Sony er bara
11,3 kg – svo dæmi sé nefnt.“
iPad Retina
„Sonur minn er tæplega fjögurra ára gamall
en virðist hokinn af reynslu þegar
spjaldtölvur eru annars vegar.
Það er hrein unun að
sjá hvað hann hefur
gaman af ýmsum lær-
dóms- og þroskaleikjum
og hvað hann stýrir þeim af
mikilli fimi. iPad Retina er kannski
fulldýr sem þroskaleikfang, en mamman
myndi að sjálfsögðu nota hann líka.“
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
rithöfundur segir að tækjafíkn
hái sér ekki alvarlega þó hún
njóti þess að eiga græjur sem
auðvelda sér lífið. Um þessar
mundir er hún að vinna að nýrri
bók sem hún hefur gengið lengi
með í maganum. Situr sveitt við
skriftir. Auk þess er hún að þýða
framhaldið á metsölubókinni The
Devil Wears Prada. Hún hlakkar
til sumarsins „með sínum nið-
urrigndu, íslensku útilegum,“ eins
og hún segir sjálf frá og þá ætlar
hún á ættarmót ásamt manni
mínum, syni og stjúpdætrum.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Ryksuguvélmenni
„Hverjum finnst gaman að ryksuga?
Þetta er borðleggjandi mál.“
iPhone 5
„Handa manninum mínum, sem er
með gamlan, úreltan android síma en
sjálf á ég Iphone 4S. Ég er ekki eins
og sum tækninördin, sem hafa verið
sigri hrósandi yfir einhverri könnun
sem sýndi að nýjasti Iphone-inn sé
einhverjum millisekúndum hægari en
útvaldir snjallsímar. Fyrir mér er það
fyrst og fremst viðmót Iphone sem
er snilld, auk ýmissa smáforrita sem
mér þætti æðislegt að geta kynnt
minn heittelskaða fyrir.“
*Græjur og tækniTækin sem við notum hafa áhrif á líkamsstöðu og skjástærð tækjanna skiptir máli »36