Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013
HEIMURINN
RÚSSLAND
MOSKVA wdenEdward Sn , m lak upplýsingumse
b a, var innlyksyandarískraum tölvupóstsnjósnir
m hÞani í Moskvu.á Sjeremetjevo-flugvell
á Snowdenamenn vilja ffrá Hong Kong. Bandar
rkalega fyrir aðnrýnt Rússa haframseldan og hafa gag
engi griðastaðfveita honum skjól. Ræt
hafa afgreittí Ekvador, en stjórnvöld
umsókn ha rsetiVenesúela, ítrekans um hæli
boð um hæ ð Maduro verður í
mánudag á
ATR LÍ
eypst
annsóli form
heimins os
err iðinn . Þáa
agar ir ðá þv aliðn
dat aaum
BRASIL
RÍÓ Dilm
lagði fram
að alda mó a,
óánægju m
gjalda í Sao
Þegar mest var tók
þátt í mótmælum geg
lélegri þjónustu við a
og óhóflegum fjáraus
meistaramótið í kn
sakhia
var endurkjörinn
forseti Mongólíu og
eru bundnar vonir
við að hann m
nota umboð t
til að rá
ójöfnuð
mavinnslaMik en ná
Gagnrýn-hef
kjur ekki
rum fyrirk
egdorj
egrar
múnistum
og lýðræðivar
mið á.ko
Wendy Davis er fimmtugur demókrati. Hún hefur tvisvar
unnið sæti á þinginu í Texas í kjördæmi þar sem demókrat-
ar eiga ekki stuðning vísan. Hún er þekkt fyrir þrautseigju.
Hún eignaðist barn 19 ára og er tvífráskilin. Hún bjó um tíma
í hjólhýsahverfi, en braust til mennta og útskrif-
aðist með gráðu í lögfræði frá Harvard-háskóla.
Tímaritið Texas Monthly útnefndi hana nýliða
ársins á ríkisþinginu í Texas 2009 og einn af tíu
bestu þingmönnunum á þessu ári. Kosið verður í
hennar kjördæmi á næsta ári og munu repúblikanar
leggja áherslu á að fella hana. Nú velta margir fyrir
sér hvort hún muni sækjast eftir einhverju af æðstu
kjörnu embættum Texas.
R
epúblikanar eru vanir að einoka sviðsljós
stjórnmálanna í Texas, en í vikunni tókst
þingmanni úr röðum andstæðinganna að
ræna því frá þeim svo eftir var tekið um
öll Bandaríkin og víðar. Wendy Davis, öld-
ungadeildarþingmaður demókrata á ríkisþinginu í Tex-
as, hélt á þriðjudag uppi tæplega 13 klukkustunda mál-
þófi til að koma í veg fyrir að lög um takmörkun
fóstureyðinga næðu fram að ganga á ríkisþinginu í Tex-
as. Andstæðingar frumvarpsins höfðu haldið því fram að
það jafngilti nánast að banna fóstureyðingar í ríkinu.
Frumvarpið snerist um bann við fóstureyðingum þeg-
ar komið væri fram yfir 20 vikur af meðgöngu og kröfu
til læknamiðstöðva þar sem gerðar eru fóstureyðingar
um að uppfæra búnað eða loka. Haldið var fram að það
þýddi að 37 af 42 slíkum læknamiðstöðvum í Texas yrði
lokað. Sambærileg lög hafa verið sett á ríkisþingum víða
um Bandaríkin á undanförnum mánuðum og frumvarp í
þessum anda fór fyrir viku í gegnum fulltrúadeild
Bandaríkjaþings þar sem repúblikanar hafa meirihluta,
en meirihluti demókrata mun væntanlega fella það í öld-
ungadeildinni.
Bjuggu óafvitandi til stjörnu
„Ég held að forusta repúblikana í báðum deildum þings-
ins hafi óafvitandi hjálpað til við að búa til stjörnu á
landsvísu úr röðum demókrata hér í Texas,“ sagði Matt
Mackowiak, ráðgjafi repúblikana, í samtali við blaðið
Texas Tribune.
Davis talaði í bleikum íþróttaskóm með sérstakt belti
til að styðja við bakið. Reglurnar um málþóf eru mjög
strangar á þinginu í Texas. Ræðumaður verður að
standa allan tímann, má hvorki drekka, borða né taka
sér hlé, ekki einu sinni til að fara á salerni, og er auk
heldur bannað að halla sér fram á borðið. Þá verður
ræðumaður að halda sig við efnið. Málþófi lýkur við
þrjú brot á reglunum.
Þingið í Texas kemur aðeins saman annað hvert ár.
Umræðan um frumvarpið var hluti af sérstöku 30 daga
þinghaldi og var þriðjudagurinn síðasti dagur þess.
Markmið Davis var að tala fram yfir miðnætti þannig
að frumvarpið brynni inni. Til að ná marki sínu lét hún
sér ekki nægja að fá orðið, heldur nýtti sér einnig fé-
lagsmiðla netheima. Framtak hennar vakti þegar mikla
athygli á miðlinum Twitter þar sem sex þúsund manns
létu í sér heyra á mínútu þegar mest lét. Um leið
streymdu andstæðingar frumvarpsins að þinginu og á
áheyrendapalla til að fylgjast með henni.
Davis hóf mál sitt 18 mínútur yfir 11 að morgni.
Nokkrum sinnum reyndu repúblikanar að stöðva hana,
meðal annars með athugasemdum við bakstuðninginn.
Hún hélt sig við efnið með því að tala um ákvörðun
hæstaréttar Bandaríkjanna um að lögleiða fóstureyð-
ingar á sínum tíma, ómskoðanir, fátækar konur og kon-
ur sem ættu langt að fara á næstu læknamiðstöð.
„Mörgum konum er misboðið að greiða eigi atkvæði
um þetta frumvarp í samkundu þar sem – horfið í
kringum ykkur – aðallega eru karlar,“ sagði hún og gaf
til kynna að þeir gerðu sér ekki grein fyrir áhrifum fyr-
irhugaðra laga vegna þess að þeir væru ekki með „bún-
aðinn“. „En ég hef hann,“ sagði hún. „Og dætur mínar
hafa hann og konur sem ég þekki hafa hann og konur
sem ég hef aldrei hitt hafa hann og hver þeirra gæti
orðið fyrir beinum áhrifum af hverju því ákvæði sem er
í þessu frumvarpi.“
Ætluðu að beita blekkingum
Stundarfjórðungi fyrir miðnætti var ljóst að málþófinu
yrði hrundið og átti að ganga til atkvæða. Það gekk
hins vegar ekki snurðulaust vegna láta á áheyrenda-
pöllum. Skömmu síðar var tilkynnt á vefsíðu öldunga-
deildarinnar að frumvarpið hefði verið samþykkt, en þá
var komið fram yfir miðnætti. Tímasetningunni var
breytt í þá veru að atkvæðagreiðslan hefði farið fram á
þriðjudeginum, en blaðamenn höfðu náð að vista
skjámyndir af upprunalegu tilkynningunni og
var síðunni þá breytt á ný og viðurkennt að at-
kvæði hefðu verið greidd eftir miðnætti.
Sigurinn kann að verða skammvinnur. Rick
Perry, ríkisstjóri Texas, lýsti því yfir að blásið
yrði til þingfundar strax á mánudag til að koma
frumvarpinu í gegn. Davis hefur hins vegar
stimplað sig rækilega inn og sigur hennar gæti
orðið henni stökkpallur til frekari metorða.
Pólitísk stjarna rís
úr málþófi í Texas
WENDY DAVIS KOM Í VEG FYRIR ÞAÐ MEÐ HÁLFS SÓLARHRINGS MÁLÞÓFI AÐ
REPÚBLIKANAR Í TEXAS KÆMU Í GEGN LAGAFRUMVARPI GEGN FÓSTUREYÐINGUM.
NÚ ER SAGT AÐ NÝ PÓLITÍSK STJARNA SÉ RISIN Í BANDARÍKJUNUM.
Stuðnings-
maður hvetur
Wendy Davis.
BRAUST TIL MENNTA
Wendy Davis heldur tveimur fingrum á loft til merkis um tangarsókn á þingi og
í netheimum gegn lögum um takmörkun fóstureyðinga í Texas. Hún kom í veg
fyrir það með tæplega 13 klukkustunda málþófi að lögin yrðu sett.
AFP
* Eitthvað sérstakt er á seyði í Austin í kvöld.Barack Obama Bandaríkjaforseti vakti athygli á málþófinu á þinginu í Texas á Twitter og notaði merkinguna #StandWithWendy.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is