Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013
Mannréttindi eru þungamiðjan í starfiEvrópuráðsins í Strasbourg. Ég efastum að í heiminum sé starfandi fjöl-
þjóðlegt þing þar sem fram fer jafn umfangsmikil
umræða um mannréttindi eins og þing Evr-
ópuráðsins en þar hef ég setið fundi undangengna
viku.
Mikil umræða fór m.a. fram um mótmælin í
Tyrklandi og hvernig stjórnvöld taka á þeim, rétt-
arhöld yfir stjórnmálamönnum, mannréttindi og
heilbrigðisþjónustu og internetið og misnotkun á
því og tók ég sjálfur þátt í þeirri umræðu. Ég hef
um nokkurt skeið fylgst með starfi Evrópuráðsins
til verndar börnum en vitundarvakningin um kyn-
ferðisofbeldi gegn börnum sem efnt var til á vegum
íslenskra stjórnvalda á að nokkru leyti rót að rekja
til frumkvæðis Evrópuráðsins. Ég vék að þessu
starfi og hve mikilvægt það er að meta að verð-
leikum gott starf Evrópuráðsins á þessu sviði.
Fjölmargt annað mætti nefna en tilfinninga-
þrungnasta umræðan var án efa tillaga til stuðn-
ings mannréttindum samkynhneigðra og trans-
fólks en tilefnið var m.a. lagabreytingar í Rússlandi
og víðar. Í atkvæðagreiðslunni þurfti aukinn meiri-
hluta – þrjá fjórðu – og var stundum mjótt á mun-
um þótt tillagan væri að lokum samþykkt. Stuðn-
ingsmenn tillögunnar sögðu að hér sem annars
staðar væru fáir andstæðingar mannréttinda sam-
kynhneigðra og transfólks sem kæmu út úr skápn-
um með fordóma sína í umræðunni en í atkvæða-
greiðslunni birtust fordómarnir hins vegar skýrt.
Fyrir andstæðingum tillögunnar fór ítalskur
þingmaður og rússneskir en mikill fjöldi þingfull-
trúa frá mörgum löndum hafði sig í frammi tillög-
unni til stuðnings. Sænskur maður skýrði frá þeim
hremmingum sem hann gekk í gegnum þegar hann
gerði umhverfi sínu heyrinkunnugt um samkyn-
hneigð sína. Annar þingfulltrúi, kona, svaraði
vangaveltum sem fram höfðu komið um að trans-
fólk væri varasamt og væri ógnun við umhverfi sitt.
Hún sagðist vilja svara þessu með skírskotun til
eigin lífs. „Ég er orðin harðfullorðin kona, með
mikla lífsreynslu að baki. Aldrei í lífinu hef ég orðið
fyrir nokkurs konar ógn vegna tilveru transfólks.
Það sem meira er, aldrei hef ég kynnst nokkrum
einasta einstaklingi, ungum eða öldnum, sem stafar
ógn af lífi transfólks.“ Sjálf væri hún gagnkyn-
hneigð kona og nú vildi hún trúa þinginu fyrir því
að hún þekkti af eigin raun áreitni og ógn af hálfu
gagnkynhneigðra karla og öll vissum við hve
óhugnanlega algengt kynferðisofbeldi af hálfu
karla væri. „Það þýðir ekki að ég vilji skerða mann-
réttindi allra karla. Ég vil refsa þeim sem fremja
ofbeldisverk en ekki hinum. Nú liggja fyrir breyt-
ingartillögur sem ganga út frá því að transfólk og
jafnvel samkynhneigðir séu einsleitur hópur en
ekki einstaklingar með sín einkenni og sín mann-
réttindi sem slíkir, eintaklingar eins og við öll.“
Klappað var í þingsalnum eftir þessa ræðu og fleiri
af þessu tagi. Sjálfur varð ég rauður í lófunum.
Rauðir lófar í Strasbourg
* Tilfinningaþrungnastaumræðan var án efatillaga til stuðnings mann-
réttindum samkynhneigðra
og transfólks.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Jarðarför Hemma Gunn
Í gær var jarðarför hins ástsæla
íþrótta- og sjónvarpsmanns Her-
manns Gunnarssonar. Af því til-
efni skrifuðu margir á fésbókina,
meðal annarra Einar Bárðarson:
„Ég var nú alltaf að
vona að hann risi
upp frá þessu núna
eins og hann gerði
síðast þegar hann
„dó“ en okkur
verður víst ekki að þeirri ósk okk-
ar allra. Ég gat kallað Hemma vin
minn, það voru mikil forréttindi.“
Seinna bætir Einar við: „Það er bú-
ið að segja allt og skrifa allt um
Hemma sem hægt er síðustu vikur
og daga þannig að það er litlu við
það að bæta. Mér þótti þó óhemju
vænt um að hann kallaði mig og
börnin mín frænda sinn og frænku
og þegar hann faðmaði mig lifði
rakspírinn á mér langt fram á kvöld.
Ég kveð hann með söknuði eins og
við öll,“ skrifar Einar.
Andrés Magnússon birti gleði-
mynd af sér með tvo þumla upp og
skrifaði: „Til heiðurs Hemma“.
Margir fleiri létu hlý orð falla til
þessa látna meistara.
Tónleikar Nicks Caves
Margt var skrifað á
fésbókina í gær
vegna tónleika
stjörnunnar Nicks
Caves í gömlu
NATO-stöðinni í
Keflavík sem fara fram í kvöld.
Meðal annars skrifaði Þorsteinn
Stephensen í gær í forundran:
„Af hverju er ekki
uppselt á ATP?
Ætlar fólk virkilega
að missa af Nick
Cave and the Bad
Seeds?“ En vel get-
ur verið að í dag sé orðið uppselt.
Þá skrifaði Hjalti Stefán Krist-
jánsson í gær: „Jæja, gott fólk. Nú
er síðasti séns að gefa mér miða á
ATP. Ég þarf svo sem bara að kom-
ast annað kvöld.“
AF NETINU
Ég flutti fyrir skömmu. Kveð Keflavík með söknuði,“ segirValdimar Guðmundsson, tónlistarmaður og forsprakkihljómsveitarinnar Valdimar, en hann tók nýlega íbúð á
leigu á Seltjarnarnesi og unir hag sínum vel. Valdimar hefur alið
manninn í Keflavík fram að þessu en eftir að sást til hans á knatt-
spyrnuleik á KR vellinum á dögunum veltu einhverjir fyrir sér
hvort hann hefði líka snúið baki við liði Keflvíkinga þar sem hann
var á sínum tíma í svokallaðri PUMA-sveit Keflvíkinga, spilaði þar
á básúnu og studdi liðið í blíðu og stríðu hvort sem var í körfubolta
eða fótbolta. Hann segist enn vera gallharður stuðningsmaður
Keflavíkur þótt hann sé nú í meira návígi við KR og Gróttu.
„Það er gott að vera hér úti á Nesi. Þetta er fínasta íbúð og það
er fínt að vera kominn nær Reykjavíkinni. Maður var kominn með
svolítið nóg af Reykjanesbrautinni. Þetta var svolítið mikil keyrsla
alltaf á milli,“ segir hann. Hljómsveitina Valdimar stofnaði Valdi-
mar árið 2009 og hefur orðspor hljómsveitarinnar vaxið og dafnað
jafnt og þétt síðan þá.Valdimar skellti sér í IKEA og fann eitt og annað í íbúðina.
Fékk nóg af
Reykjanesbrautinni
Valdimar er einn vinsælasti tónlistarmaður
landsins. Hér í afmæli Monitor hress og kátur.
Morgunblaðið/Eva Björk
VALDIMAR FLUTTUR Á SELTJARNARNES
Vettvangur