Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Síða 28
*Matur og drykkir Í pæjuboði dugir ekki annað en að bjóða upp á dýrindis pæ, öðru nafni bökur eða pæjur »32 Í fyrsta sinn sem Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir steikti fíflablóm varð hún alveg steinhissa, því hún hafði gert ráð fyr- ir að þau væru álíka beisk á bragðið og fíflablöð. Það kom henni því þægilega á óvart að steikt fíflablóm reyndust tölu- vert lík sveppum á bragðið og ákaflega ljúffeng. Nóg er af fífl- ablómum á vorin og því skorar hún á fólk að prófa þessa einföldu uppskrift hér að ofan, en fíflablóm eru tilvalin sem meðlæti með öðrum mat. TÚNFÍFILL Túnfífillinn hefur verið vinsæl lækningajurt frá örófi alda en hann hefur einnig verið nýttur töluvert til matar. Hefð er t.d. fyr- ir því víða í Evrópu að gera vín og síróp úr blómunum, ennfremur að djúpsteikja blómin en nota blöðin í salat og sósur. Rótin var áður fyrr notuð bæði í bjórgerð og sem kaffibætir og á Íslandi voru fíflarætur steiktar og borðaðar með smjöri. Túnfíflablöðin þykja mjög vatnslosandi en rótin örvar meltingu og er talin góð við lifrarbólgu, vindgangi, uppþembu og harðlífi. Hún er einnig talin styrkja lifrina eftir langvarandi lyfjatöku og er mjög gagn- leg innvortis við exemi, sóríasis og gigtarsjúkdómum. Fífl- amjólkin, sem er í stilkunum, er gjarnan notuð útvortis til að eyða vörtum. SVARTUR PIPAR Löng hefð er fyrir því að nota pipar til lækninga en algengast er að nota svartan pipar. Græn piparkorn eru tínd óþroskuð og síð- an súrsuð, svört piparkorn tínd óþroskuð og þá þurrkuð, en hvít piparkorn eru tínd þroskuð og látin liggja í vatni í átta daga áður en þau eru þurrkuð. Pipar örvar allt blóðflæði og hefur einnig bakteríudrepandi áhrif. Hann þykir góður við uppþembu, maga- verk, vindgangi, hægðatregðu og lystarleysi. Eins er vel þekkt að pipar getur ýtt undir áhrif annarra lækningajurta og kemískra lyfja. Rannsóknir á svörtum pipar hafa leitt í ljós hamlandi áhrif á vöxt krabbameinsfrumna og jákvæð áhrif á liðagigt, minnisleysi og háan blóðþrýsting. Ilmkjarnaolía unnin úr svörtum pipar er notuð útvortis við liðverkjum og tannverk. Morgunblaðið/Golli ÁKAFLEGA LJÚFFENG Steikt fíflablóm að hætti grasalæknisins Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir og viðskiptafræðingur. 3 lúkur af fíflablómum með grænum bikarblöðum smjör sjávarsalt og svartur pipar Steikið fíflablómin í smjöri á vel heitri pönnu í nokkrar mínútur og kryddið eftir smekk. Steikt fíflablóm

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.