Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013
Matur og drykkir
L
ífið er ekki bara saltfiskur, en leikur gjarnan stórt
hlutverk á matmálstímum á heimili Ingu Vestmann
og Þórhalls Jónssonar á Akureyri þegar þau vilja
gera vel við sig í mat. Þórhallur er verkstjóri við
grillið og stendur þar mörg sumarkvöldin en við pönnuna
og ofninn yfir vetrartímann. Og aldrei bregst saltfiskurinn,
segir hann.
Saltfiskástin kviknaði fyrir um það bil áratug. „Við vor-
um ásamt nokkrum vinum í Barcelona og báðum gamla,
geðuga konu í gestamóttöku hótelsins að benda okkur á
góðan veitingastað. Hún lagði til að færum á stað í hlíð-
unum fyrir ofan borgina, þar sem heimamenn borðuðu að-
allega en ekki ferðalangar og þar pöntuðum við okkur
saltfisk. Vorum spennt að prófa ekta katalónska uppskrift
og það er ógleymanlegt, eftir að starfsfólk veitingahússins
komst að því hvaðan við værum, þegar kokkurinn kom
en nú er orðið algengt að fólk matreiði á þennan hátt.“
Þórhallur eldar saltfiskinn oftast á einfaldan og þægileg-
an máta yfir sumarið en notar aðrar uppskriftir að vetri.
„Vetraruppskriftirnar eru meira þannig að ég steiki fiskinn
á pönnu og baka í ofni; velti honum gjarnan upp úr hveiti
og steiki til að loka fisknum og hef svo í ofni í 15 til 20
mínútur, nota þá tómatkraft og tíni til margvísleg krydd
til að búa til þessa dásamlegu, rauðu katalónsku sósu.“
Svo því sé til haga haldið borðar fjölskyldan ekki salt-
fisk í öll mál! „Við borðum til dæmis mikinn kjúkling.
Kryddum hann gjarnan með pestói og grillum. Teryaki-
kjúklingur er líka mjög vinsæll á heimilinu; við útbúum þá
um það bil hálfan lítra af kryddlegi úr teryaki-sósu, soja-
sósu, miklum engifer, chili og hvítlauk, veltum kjúkling-
unum upp úr þessu og steikjum. Þetta þykir lostæti með
hrísgrjónum.“
fram, afskaplega stoltur, með umbúðir utan af íslenskum
saltfiski!“ segir Þórhallur.
Þetta var í fyrsta skipti sem hann kveðst hafa prófað
„alvöru útfærslu af saltfiski og verð að viðurkenna að ég
hef verið sjúkur í hann síðan. Saltfiskur er með því besta
sem ég fæ og við erum mjög oft með saltfisk þegar við
fáum gesti í mat. Þetta er svo einfalt og þægilegt að salt-
fiskur hefur bjargað mörgum veislum; það er lítið mál að
elda hann þótt maður sé með átta til tíu manns í mat.
Þessi matur klikkar aldrei og margir vinir mínir hafa tekið
þetta upp eftir mér,“ segir grillarinn stolti, Þórhallur Jóns-
son. „Ég fæ saltfisk hjá Elvari vini mínum í Ektafiski,
sem framleiðir afskaplega góða vöru sem hægt er að setja
beint á grillið eða á pönnuna. Fyrst þegar ég sagði Elvari
hvernig ég matreiddi hráefnið frá honum – að ég grillaði
saltfiskinn – varð hann steinhissa. Það var fyrir tíu árum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
KOMST Á BRAGÐIÐ Í KATALÓNÍU
Dásamlegt í einfaldleika sínum
ÞÓRHALLUR JÓNSSON OG INGA VESTMANN Á AKUREYRI GRILLA GJARNAN SALTFISK YFIR SUMARTÍMANN.
ÞAU KOMUST Á BRAGÐIÐ AÐ BORÐA DÝRÐINA BACALAO FYRIR RÚMUM ÁRATUG, EFTIR HEIMSÓKN
Á LÍTINN, HEIMILISLEGAN VEITINGASTAÐ Í HLÍÐUNUM OFAN VIÐ BARCELONA.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Uppskrift Þórhalls Jónssonar
að girnilegum saltfiskrétti, er
svo einföld að varla er hægt
að kalla hana uppskrift! Hann
notar hnakkastykkið af þorsk-
inum.
„Ég tek fiskinn úr frosti að
morgni og læt þiðna fram eftir
degi. Rétt áður en ég skelli
honum á grillið krydda ég fisk-
inn vel með svörtum pipar,
sker svo væna sneið af gráð-
osti og set ofan á. Aðalmálið
er að hafa grillið mjög heitt; ég
hita það í um það bil 300
gráður og grilla fiskinn í fimm
til sjö mínútur, eftir því hvað
stykkin eru þykk,“ segir Þór-
hallur.
Fiskinn er aðeins grillaður
öðrum megin, með roðið nið-
ur.
„Með þessu er gott að hafa
skornar kartöflur, annað hvort
bakaðar í ofni eða penslaðar
með olíu og grillaðar og síðan
stráð grófu salti yfir.“
Þórhallur og Inga bera fram
salat með saltfisknum. „Það er
einfalt, spínat og rucola og
gott er að hafa fetaost og jafn-
vel nokkur vínber.“ Ólyginn
sagði að Þórhallur hefði salatið
aðallega til skrauts!
Þórhallur mælir eindregið
með því að drukkið sé gott
rauðvín með saltfiski. „Ég vel
gjarnan vín frá Torres, Celeste
vín sem er frá Ribera del
Duero. Það hentar afskaplega
vel með saltfiski,“ segir hann.
Grillaður
saltfiskur