Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 37
30.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Verð frá: 189.990.-
Smáralind | Sími 512 1330
Opið í dag frá 13.00 - 18.00
Ný
MacBook Air
Allt að
12klst
Rafhlöðuending
ast þátttöku í mannlegum sam-
skiptum.
„Við ætlum ekki að segja nein-
um fyrir hvernig á að umgangast
tæki áður en farið er inn í að-
stæður sem geta krafist einhverrar
ákveðni, aðallega vegna þess að
enginn myndi hlusta eða gera neitt
í því,“ segir Maarten Bos við
Working Knowledge. „Hins vegar,
ef þú ert á fundi og áttar þig á því
að þú hefur ekki haft þig mikið í
frammi, þá ættirðu að hugleiða
hvort þú hefur verið að nota ein-
hver tæki skömmu áður.“
Fólk sem notar stóra tölvu á borð við iMac finnur til mestrar valdatilfinningar. Í rannsókninni sóttu þeir rannsakandann í
94% tilfella og biðu einungis í 341 sekúndu áður en hann var sóttur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þeir sem nota fartölvu finna til meiri valdatilfinningar en þeir sem nota snjallsíma og spjaldtölvur. Í rannsókninni sóttu
þeir rannsakandann í 88% tilfella og biðu einungis í 419 sekúndu áður en hann var sóttur.
Whatsapp forrit fyrir snjallsíma
gerir fólki kleift að senda sín á
milli smáskilaboð, myndir og
myndbönd, allt að kostn-
aðarlausu.
Forritið virkar fyrir iPhone,
Nokia, Blackberry, Android og
Windows síma.
Einnig er hægt að stofna
hópa á milli síma. Forritið er
sérstaklega vinsælt hjá ungu
fólki.
ÓKEYPIS SKILABOÐ
Whats-
app
Bump-
forritið
stendur fyr-
ir Back up
my phone
(afritaðu af
símanum
mínum) og
geta nú
snjall-
símanot-
endur
geymt upp-
lýsingar,
símanúmer
og myndir á
öruggum stöðum sem er nauðsyn-
legt til að tapa ekki dýrmætum
upplýsingum. Unga fólkið notar
forritið til að deila myndum og
skilaboðum sín á milli og er það
gert þannig að símarnir eru látnir
„bumpa“, eða snertast, og upplýs-
ingarnar flæða á milli. Forritið er
fólki að kostnaðarlausu.
GEYMSLUFORRIT
„Bumpa“
saman símum
Fyrir íþróttaunnendur er til
snjallsímaforrit sem gerir fólki
kleift að skoða úrslit íþróttaleikja
um allan heim. Það heitir Live-
Score og er hannað fyrir iPhone,
iPad og iPod Touch. Forritinu
hefur verið niðurhalað tveim
milljón sinnum og hafa notendur
um allan heim eytt samtals 3000
árum í að skoða þessar upplýs-
ingar sem það veitir. Forritið er
ókeypis.
Beint samband
við íþróttir
ÚRSLIT LEIKJA HEIMSINS