Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 8

Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri ÚTSALA 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG! Umræður um lýðræðishalla íESB eru greinilega farnar að hafa áhrif á forkólfa sambandsins. Framkvæmdastjóri þings ESB, Klaus Welle, telur að sókn sé besta vörnin og heldur því nú fram að í ESB sé „lýðræðisafgangur“ (e. de- mocratic surplus).    Þessa ályktundregur hann af því að þingmenn á Evrópuþinginu séu undir minni áhrifum frá eigin flokkum og taki sjálfstæðari ákvarðanir en tíðk- ist á þjóðþingunum. Þar þurfi þeir að hugsa um að ríkisstjórn haldi velli en ekkert slíkt trufli þingmenn á Evrópuþinginu.    Þetta er óneitanlega sérkennilegkenning og gæti varla orðið til annars staðar en í innsta hring ESB þar sem tengslin við almenning í aðildarríkjunum hafa algerlega rofnað.    Utan múra forystu Evrópusam-bandsins telst það kostur að ríkisstjórn styðjist við meirihluta þingmanna sem hafi lýðræðislegt umboð frá kjósendum. Þessi teng- ing er ekki fyrir hendi hjá ESB og hluti lýðræðishalla þess.    Welle viðurkennir þó að ákveð-in vandamál séu uppi, enda ekki annað hægt með sífellt minnk- andi kosningaþátttöku og aukinni miðstýringu. En þessi forystumað- ur kann ráð við því: ESB efni til kosningakvölds í annars dauflegum Evrópuþingskosningum til að auka áhugann.    Grundvallarbreytingar í lýðræð-isátt eða á stöðu aðildarríkj- anna gagnvart sambandinu koma hins vegar ekki til álita. Klaus Welle Öfugsnúinn „lýð- ræðisafgangur“ STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.7., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 9 alskýjað Nuuk 1 þoka Þórshöfn 10 alskýjað Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 23 léttskýjað Brussel 17 heiðskírt Dublin 17 léttskýjað Glasgow 18 heiðskírt London 13 skýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 22 skýjað Vín 21 léttskýjað Moskva 22 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 17 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 11 léttskýjað Montreal 12 súld New York 14 skýjað Chicago 10 léttskýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:11 23:54 ÍSAFJÖRÐUR 2:05 25:10 SIGLUFJÖRÐUR 1:41 24:59 DJÚPIVOGUR 2:28 23:36 Komandi helgi, sú fyrsta í júlí, hef- ur að jafnaði verið ein mesta ferða- helgi sumarsins meðal Íslendinga. Einar Magnús Magnússon, upp- lýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir ferðahelgarnar vera orðnar fleiri en áður var og umferðina því dreifast á jafnari hátt yfir sumarið. Hins vegar segir hann álíka mikla umferð vera um fyrstu helgi júlímánaðar og sé um versl- unarmannahelgina. Hann segir óhætt að fullyrða að þetta sé ein mesta ferðahelgi sumarsins. 34% fleiri bílar en á meðaldegi Til samanburðar má nefna að yf- ir sumarmánuðina árið 2012 fóru 6.906 bifreiðar daglega í gegnum Hvalfjarðargöngin að meðaltali. Á föstudegi fyrstu helgarinnar í júlí voru bifreiðarnar hins vegar 10.488 talsins. Um þá helgi voru því um 34% fleiri bifreiðar á ferð en á með- aldegi. Á sama tíma fór 10.501 bifreið yf- ir Hellisheiði, en dagsmeðaltalið þar er 7.761 bifreið. Ljóst er því að töluvert fleiri leggja land undir fót um þessa helgi en aðrar. Tölurnar hafa verið svipaðar síð- astliðin ár, en 2011 fóru 6.729 bif- reiðar að meðaltali í gegnum Hval- fjarðargöngin á sumarmánuðum, en á föstudegi fyrstu helgarinnar í júlí óku þar 10.455 bifreiðar í gegn. Ein mesta ferðahelgin er framundan  Ferðahelgarnar eru þó orðnar fleiri og umferðin dreifist á jafnari hátt Morgunblaðið/Árni Sæberg Umferð Allir fara í ferðalag. Héraðsdómur Reykjavíkur hef- ur sýknað Krist- ján Arason af öll- um kröfum Kaupþings og gert slitastjórn- inni að greiða honum 2,5 millj- ónir króna í máls- kostnað. Slitastjórnin fór fram á að Krist- ján greiddi rúman hálfan milljarð króna, en það var lán til kaupa á hlutafé í Kaupþingi banka. Kristján færði hlutabréfin og lán- in sem þeim fylgdu yfir í einkahluta- félag, 7 hægri ehf., 12. mars 2008 og þannig var hann leystur undan per- sónulegri ábyrgð á lánunum. Félagið varð gjaldþrota 2010. Slitastjórn Kaupþings krafðist skaðabóta en þeirri kröfu hafnaði héraðsdómur, m.a. vegna þess að ekki hafi verið ólögmætt eða ámælis- vert hjá Kristjáni að óska eftir yfir- færslunni, enda hafi ekkert komið fram um að hann hafi á þessum tíma haft réttmæta ástæðu til að ætla að bankinn færi í þrot. Kristján Arason sýknaður  Slitastjórn gert að greiða 2,5 millj. Kristján Arason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.