Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 10

Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hef verið að kafa alveg frá þvíárið 1996, með hléum þó, því ég fóraðeins yfir í mótorhjól, snjósleða ogannað slíkt. En ég fór aftur að kafa á fullu fyrir fimm árum og fjárfesti þá í köfunarbúnaði og búnaði til að taka myndir neðansjávar,“ segir Gísli Arnar Guðmundsson kafari sem sendi nýlega frá sér ljósmyndabók- ina Undirdjúp Íslands, en eins og nafnið gefur til kynna eru myndirnar teknar neðansjávar við Íslandsstrendur. „Ég var duglegur að setja myndirnar mínar á Facebook og var með myndasíðu á Flickr og fékk fín viðbrögð og fólk hvatti mig til að gera eitthvað meira með þetta og úr varð þessi bók sem Forlagið gefur út,“ segir Gísli sem er sjálfmenntaður ljós- myndari. Kíkir á bak við og leitar Gísli þekkir orðið lífríkið neðansjávar vel Leyndardómar und- ir yfirborði sjávar Hann segir tilkomumikið að mæta þúsundum þorska í torfum í sjónum. En hann kann ekki síður að meta að rek- ast á örsmáar skepnur hafsins. Gísli Arnar Guðmundsson hefur kafað við Ísland með myndavél og gaf afraksturinn nýlega út á bók. Ljósmynd/Einar Hansen Í fullum skrúða Gísli með allar græjur á leið í köfun í Öskjuvatni. Smár humrungur Þeir fela sig oft í klettasprungum.Marfló Þær eru lítil krabbadýr og telja þúsundir tegunda. Hafin er hátíðin Vopnaskak á Vopna- firði og stendur hún yfir til sunnu- dagsins 7. júlí. Hátíðin hófst á lista- smiðju Arnars Inga Gíslasonar fjöllistamanns. Hugmynd lista- mannsins er að ungviðið máli mynd- verk sem fundinn verði staður að há- tíðinni lokinni. Börnin fá fullt sköpunarfrelsi. Á morgun, fimmtu- dag, mun Einherji bjóða til fjölskyldu- leika. Að leikunum loknum verður Vélasafn Vopnafjarðar opnað í Himnaríki. Um kvöldið klukkan 20 verður hátíðarkaffi í Miklagarði. Hátíðarhöldin halda svo áfram um helgina, en minnismerki bæjarins verður afhjúpað, gestir og gangandi geta gætt sér á súpu í boði Vopnfirð- inga. Það verða líka hoppukastalar, töframaður og tónleikar, svo eitthvað sé nefnt. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á Vopnafirði og því um að gera að skella sér á Vopnaskak. Vefsíðan www.vopnafjardarhreppur.is Morgunblaðið/Jakob Fannar Stuð Ingó og Veðurguðirnir verða með dansleik í Miklagarði á laugardaginn. Vopnaskak á Vopnafirði Í kvöld kl. 21 ætlar hljómsveitin Síð- asti bærinn að halda tónleika á Cafe Rósenberg. Hljómsveitarmeðlimir eru Valdimar Örn Flygenring, sem sér um söng og gítarspil, Arnviður Snorrason á trommur, Þorleifur Guðjónsson á bassa og Snorri Arnarson á gítar. Hljómsveitin Sól og mánar ætlar að hita upp en þar sér Snæfríður Sól Snorradóttir um söng, Bjarni Bragi Kjartansson spilar á bassa, Arnviður Snorrason á trommur og Snorri Arnarson á gítar. Alltaf ljúft að njóta lifandi tónlistar í notalegu umhverfi á sumarkvöldum. Endilega … … njótið Síð- asta bæjarins Ljósmynd/Ásta Magnúsdóttir Valdimar Örn Syngur og spilar. Goslokahátíðin í Vestmannaeyjum hefst á morgun en hátíðin er ætíð haldin fyrstu vikuna í júlí til að minnast goslokanna 3. júlí árið 1973. Hátíðin mun standa frá fjórða til sjöunda júlí og þar sem nákvæmlega fjörutíu ár eru síðan Heimaeyjargosinu lauk verður há- tíðin í ár einkar öflug. Meðal viðburða verða ljósmynda- sýningar, tónleikar, málverkasýn- ingar, gönguferðir og sögusýningar svo eitthvað sé nefnt. Inn í dag- skrána tvinnast síðan knattspyrnu- leikur meistaraflokks karla í ÍBV við Færeyingana í HB Tórshavn. Á morgun munu rithöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Árni Þór- arinsson lesa upp úr verkum sínum auk þess sem sýnd verður ný heim- ildarmynd Sighvats Jónssonar og Jóhönnu Ýrar Jónsdóttur, Útlend- ingur heima – uppgjör við eld- gosið. Hátíðinni mun svo ljúka á sunnu- daginn með tónleikum Gísla Helga- sonar og Bítladrengjanna blíðu í stríðu í Alþýðuhúsinu klukkan 21. Listsýningar, tónleikar og margt fleira Hátíð í tilefni af 40 árum frá goslokum í Eyjum Morgunblaðið/Eggert Tónlist Gísli Helgason og Bítladrengirnir halda tónleika á Goslokahátíðinni. Skannaðu kóðann til að nálgast dag- skrá helgarinnar. Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is AF BRIMRÁS STIGUM OG TRÖPPUM 25% AFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.