Morgunblaðið - 03.07.2013, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | Langholtsvegi 113 |
Turninn Höfðatorgi | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is
ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR!
LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR.
Efnalaug - Þvottahús
350 KR. SKYRTAN
hreinsuð og pressuð
-ef komið er með fleiri en 3 í einu
Fullt verð 580 kr. stk.
NÚ Á FIMM STÖÐUM
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
Langholtsvegi 113
Turninn Höfðatorgi
● Gullverð hefur undanfarna daga tek-
ið að hækka að nýju eftir að hafa náð
lægsta gildi sínu í 34 mánuði bara fyrir
örfáum dögum. Gullverð hefur nú
hækkað þrjá daga í röð. Það féll sam-
tals um 23% á öðrum ársfjórðungi
þessa árs, að því er fram kemur í morg-
unpósti IFS greiningar í gær.
Hækkun gullverðs undanfarna daga
er þó langt frá því að leiðrétta skarpa
lækkun gullsins að undanförnu því úns-
an kostaði um 1.600 dali í byrjun apríl
og var nálægt 1.300 dala markinu í
byrjun vikunnar.
Gullverð virðist vera
heldur að glæðast á ný
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Ný stjórn Skipta hf., sem er móð-
urfélag meðal annars Símans,
Skjásins og Mílu, var kjörin á hlut-
hafafundi félagsins í gær, þriðjudag.
Sigríður Hrólfsdóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Árvakurs, var
kjörin stjórnarformaður en eins og
fram kom í fréttaskýringu Morgun-
blaðsins í aðdraganda fundarins
naut hún stuðnings Arion banka,
stærsta hluthafa Skipta. Hún tekur
við af Benedikt Sveinssyni. Þá var
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri
Íslandspósts, kjörinn varaformaður
stjórnar Skipta en Arion banki
studdi hann einnig, eftir því sem
heimildir blaðsins herma. Önnur í
stjórn eru þau Stefán Árni Auðólfs-
son héraðsdómslögmaður, Heiðrún
Jónsdóttir og Helgi Magnússon.
Heiðrún er stjórnarformaður Gildis
lífeyrissjóðs og Helgi er varafor-
maður stjórnar Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna. Þau sóttust bæði eftir
endurkjöri.
Skipti er „eftirlitsskyldur aðili“
Samkvæmt upplýsingum frá
Skiptum er félagið það sem kallað
er eftirlitsskyldur aðili en félagið
hefur sérstakt leyfi til að innheimta
kröfur fyrir önnur félög, svo sem
Símann og Skjáinn. Aðilar sem
stunda leyfisskylda fjármálastarf-
semi lúta eftirliti Fjármálaeftirlits-
ins (FME) og eru kallaðir eftirlits-
skyldir aðilar. Á vefsíðu
Fjármálaeftirlitsins kemur meðal
annars fram að hlutverk eftirlitsins
sé að veita eftirlitsskyldum aðilum
markvisst aðhald og að „fylgjast
með að starfsemi þeirra sé í sam-
ræmi við lög, reglugerðir, reglur og
samþykktir sem um starfsemina
gilda“. Í lögum um opinbert eftirlit
með fjármálastarfsemi er kveðið á
um hvaða flokkar fyrirtækja í fjár-
mála- og vátryggingarstarfsemi lúta
eftirliti FME en FME birtir lista yf-
ir eftirlitsskylda aðila á vefsíðu
sinni.
Óheimilt að sitja í stjórn?
Í lögum nr. 129/1997 um skyldu-
tryggingu lífeyrisréttinda og starf-
semi lífeyrissjóða er fjallað um þær
reglur sem lúta að lífeyrissjóðum og
rekstri þeirra. 2. mgr. 31. gr. lag-
anna hljóðar svo: „Stjórnarmenn í
lífeyrissjóðum mega ekki eiga sæti í
stjórn annars eftirlitsskylds aðila
eða aðila í nánum tengslum við hann
né vera starfsmenn eða endurskoð-
endur annars eftirlitsskylds aðila
eða aðila í nánum tengslum við
hann.“ Þar sem Skipti er skilgreint
sem eftirlitsskyldur aðili er hægt að
túlka ofangreindan lagatexta sem
svo að stjórnarmenn lífeyrissjóða
megi ekki sitja í stjórn félagsins.
Um það eru hins vegar deildar
meiningar en heimildir blaðsins
herma að fráfarandi stjórn Skipta
hafi margoft farið yfir þessi atriði
með lögmönnum til að sjá til þess að
stjórnarsetan bryti ekki í bága við
nein lög. Aftur á móti hafa margir
bent á að lagatextinn sé skýr og að-
eins sé mögulegt að túlka hann á
einn hátt. Þá kalla nokkrir heimild-
armenn blaðsins eftir skýrari svör-
um frá FME.
Gerir ekki athugasemdir
Frá Fjármálaeftirlitinu bárust
þau svör að eftirlitið gæti ekki tjáð
sig um einstök mál. „Fjármálaeft-
irlitið bendir hins vegar á að við
beitingu ákvæða laga nr. 129/1997
um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða, um hæf-
isskilyrði stjórnarmanna, hefur
Fjármálaeftirlitið túlkað hugtakið
„eftirlitsskyldur aðili“ þannig að átt
sé við þá aðila sem heyra undir eft-
irlit Fjármálaeftirlitsins skv. 1. mgr.
2. gr. laga um opinbert eftirlit með
fjármálastarfsemi nr. 87/1998,“ seg-
ir í svari FME við fyrirspurn blaðs-
ins. „Þar sem innheimtuaðilar skv.
lögum nr. 95/2008 eru ekki taldir
upp í 1. mgr. 2. gr. laga nr. 87/1998
hefur Fjármálaeftirlitið ekki gert
athugasemd við að stjórnarmenn í
lífeyrissjóðum sitji í stjórnum inn-
heimtuaðila.“
Endurskipulagningu lokið
Skipti hóf fjárhagslega endur-
skipulagningu í lok janúarmánaðar
á þessu ári og var kosið til stjórnar
samhliða því. Benedikt Sveinsson
var kjörinn stjórnarformaður en
þau Heiðrún Jónsdóttir og Helgi
Magnússon voru einnig kjörin í
stjórn Skipta, Heiðrún sem varafor-
maður stjórnar. Í kjölfar endur-
skipulagningarinnar lækkuðu vaxta-
berandi skuldir félagsins úr 62
milljörðum kr. í 27 milljarða kr.
Eftir endurskipulagninguna er
Arion banki stærsti hluthafi Skipta,
með 38% hlut, en Lífeyrissjóður
verzlunarmanna sá næststærsti,
með 13% hlut. Áður hafði Skipti ver-
ið í fullri eigu Klakka. Á hluthafa-
fundinum var því kjörin ný stjórn
þar sem nýir eigendur tóku við fé-
laginu en auk Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna og Arion banka eiga
nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum
landsins nú hlut í Skiptum.
Ákvæði um jöfn kynjahlutföll
Fyrir hluthafafundinum lágu
nokkrar tillögur um breytingar á
samþykktum Skipta og voru þær
samþykktar einum rómi, samkvæmt
heimildum blaðsins. Meðal annars
var samþykkt að fella úr gildi
ákvæði um að stjórn félagsins hafi
heimild til að veita áskriftarréttindi
fyrir hlutafé fyrir allt að 5% af
hlutafé félagsins.
Að auki var nýtt ákvæði um jöfn
kynjahlutföll við stjórnarkjör sam-
þykkt en ákvæðið tekur mið af lög-
um um kynjakvóta í stjórnun fyr-
irtækja, sem kveður á um að hlutfall
hvors kyns í stjórn skuli aldrei vera
lægra en 40%.
Sigríður stjórnarformaður Skipta
Morgunblaðið/Eggert
Skipti Lengi hefur verið stefnt að skráningu Skipta á markað. Búist er við að skráningin geti orðið á næsta ári.
Deildar meiningar eru um hvort stjórnarmenn í lífeyrissjóðum megi sitja í stjórn Skipta FME
hefur ekki gert neinar athugasemdir Nýir eigendur hafa tekið við félaginu eftir endurskipulagningu
Stjórnarseta
» Sigríður Hrólfsdóttir var
kjörin stjórnarformaður Skipta
á hluthafafundi félagsins í gær.
» Hún tekur við af Benedikt
Sveinssyni.
» Í lögum um starfsemi líf-
eyrissjóða er kveðið á um að
stjórnarmenn í lífeyrissjóðum
megi ekki sitja í stjórn annars
eftirlitsskylds aðila.
» FME túlkar innheimtuaðila
hins vegar ekki sem eftirlits-
skylda aðila.
» Um þetta eru deildar mein-
ingar.
Ingimundur
Sigurpálsson
Sigríður
Hrólfsdóttir
● Velta á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu það sem af er ári er tæp-
lega 90 milljarðar króna. Á sama tíma í
fyrra var veltan 73,3 milljarðar.
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höf-
uðborgarsvæðinu 21. júní til og með 27.
júní 2013 var 133. Þar af voru 105 samn-
ingar um eignir í fjölbýli, 20 samningar
um sérbýli og átta samningar um annars
konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heild-
arveltan var 5.042 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 37,9 milljónir
króna.Nánar á mbl.is.
Veltan aukist talsvert
● Icelandic Water Holding, sem flytur
út íslenskt vatn undir merkjum Ice-
landic Glacial, hefur samið við
drykkjarvörufyrirtækið Evo-Sapiens
S.A.C. í Perú um að dreifa vatninu og
mun samstarfið hefjast strax, sam-
kvæmt því sem fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Icelandic Water.
Í tilkynningu segir Jón Ólafsson,
stjórnarformaður fyrirtækisins, að
hann sé mjög ánægður með að hafa
náð samningi við einn af stærri dreif-
ingaraðilum drykkjarvara í Suður-
Ameríku.
Jón Ólafsson stofnaði fyrirtækið ár-
ið 2005 ásamt Kristjáni syni sínum.
Jón er stjórnarformaður fyrirtækisins.
Íslenskt vatn til Perú
STUTTAR FRÉTTIR
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+12.32
++2.01
,+.414
,5.-5,
+1.4
+-5.02
+.,-3
+14.4,
+/+.54
+,-.30
+11.0-
++2.1,
,+./01
,5.-/,
+1.440
+-5.1-
+.,0,/
+1/.52
+/+.4
,+2.4522
+,0.,0
+11.13
++1.+/
,+.2++
,5.0,,
+1./51
+-+.+3
+.,0/,
+1/./,
+/+.34
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á