Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 25
um. Með svona fyrirkomulagi sam-
hæfast vinna og skólaganga ágæt-
lega, skólaleiði nær ekki að þróast.
Sá merki málvísindamaður, dr.
Bjarni Einarsson, sagði eitt sinn
við okkur, nemendur sína í Vél-
skólanum: „Það hefir enga þýð-
ingu að kenna fleiri en eitt erlent
tungumál samtímis, ef þau eru
fleiri en eitt verða nemendurnir
bara ruglaðir.“ Hvert tungumál
hefur sitt hólf í heilanum, frá hólf-
inu sem er á „harða diskinum“
liggur leiðsla yfir í „vinnsluminn-
ið“ sem tengt er tali, heyrn og
sjón. Tungumálanám byggist á
þjálfun sem eykur flutningsgetu
leiðslunnar og bætir í minnið. Ef
mörg mál eru undir misfarast
tengingar og kerfið getur slegið
út. Svona eins og rafvirki sem
reynir að tengja einfasa rafmótor
þrífasa kapli, með spennuna á og
alla enda bera. Reynt er að bæta
heilaskaðann með tyrknesku tób-
aki, ef það gengur ekki er prófað
hvítt efni, það dugir skammt, og
endar oft með dánartilkynningu í
dagblaði. Fyrir nokkrum mán-
uðum átti ég erindi í bygging-
arvöruverslun, hitti fyrir Óla,
deildarstjóra lagnadeildar. Óli tók
mér með slíkum virktum, að ég
spurði hví hann væri svo glaður.
„Það er svo gaman að hitta þig,
Gestur, ég var 14 ár í skóla og
kveið fyrir öllum tímum nema hjá
þér, þá hlakkaði ég til.“ „Hvað var
svona skemmtilegt?“ „Sögurnar
maður, allar sögurnar.“ „Lærðir
þú þá nokkuð ef þetta voru bara
sögur?“ „Jú jú, heilmikið, því þess-
ar sögur tengdust efninu með ein-
hverjum dularfullum hætti, sem
festi fræðin í huganum.“
Þessi aðferð er ekki ný, hún var
m.a. notuð af M.E. Jessen, skóla-
stjóra Vélskólans, og Finnboga
Rúti Þorvaldssyni (föður Vigdís-
ar), kennara við Iðnskólann í
Reykjavík.
Skólameistarar: Hættið að út-
skrifa nemendur í líkkistum.
GESTUR GUNNARSSON,
Flókagötu 8, Reykjavík.
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Samfélagið hefur
samkvæmt lögum
ákveðnar skyldur
gagnvart íbúum og
einstaklingar hafa
einnig ákveðnar
skyldur samkvæmt
lögum. Ein-
staklingnum ber
þannig skylda til að
vera í húsi, þ.e. eiga
lögheimili á
ákveðnum stað, og ef
hann getur það ekki vegna m.a. fé-
lagslegrar stöðu (öryrkjar) er sveit-
arfélögum skylt að veita íbúum að-
stoð sem hentar þeim. Allt annað
eru mannréttindabrot og klárlega
brot á lögum um sveitarfélög.
Húsnæðismál eru í molum hér á
landi og nú svo komið að margar
fjölskyldur hafa misst húsnæði sitt
og leigusalar ekki þar undanskildir.
Þær stofnanir sem hafa tekið yfir
þessar eignir vilja fá bankaábyrgðir
og/eða tryggingarfé gegn leigu hús-
næðis. Mjög margir sem eru hús-
næðislausir hafa einnig svo slæma
stöðu að eiga ekki handbært fé né
heldur bankaábyrgðarkredit til að
leggja fram. Sveitarfélög hafa selt
félagslegt húsnæði og ekki keypt
annað í staðinn þ. á m. Reykjanes-
bær sem svo sannarlega virðist ekki
standa í stykkinu. Bjóða t.a.m. ung-
um einstaklingi sem á börn sem
hafa verið reglulega í dvöl hjá hon-
um, eitt 10 fm herb. með eldunar-
aðstöðu en enga geymslu undir bú-
slóðina sem innifelur dót dætra
einnig og finnst þeir bara assgoti
góðir að bjóða þetta fram! Hvað
eiga einstaklingar í svona stöðu að
gera? Veiðileyfagjaldið og auðlegð-
arskatturinn, lækkun skuldastöðu
heimila/húseigenda hefðu nú komist
langt í að bæta leigumarkaðinn en,
nei, stjórnvöld gæta fyrst og fremst
hagsmuna hinna ríku en aðrir mega
að manni virðist, ganga fram af ætt-
ernisstapa.
Langar að benda fólki á eftirfar-
andi lagagreinar og benda á að fólk
þarf að taka sig saman og krefjast
aðgerða. Eins og áður kom fram eru
margir í þeirri aðstöðu að geta ekki
lagt fram peningatryggingar né
heldur bankaábyrgðir enda væru
margir ekki í svona stöðu ef ekki
hefði komið til þetta hrun sem hefur
lagt fjárhagslega stöðu margra í
rúst.
IV. kafli. Almenn ákvæði um rétt
til félagsþjónustu á vegum sveitar-
félaga.
12. gr. Sveitarfélag
skal sjá um að veita íbú-
um þjónustu og aðstoð
samkvæmt lögum þess-
um og jafnframt
tryggja að þeir geti séð
fyrir sér og sínum.
Aðstoð og þjónusta
skal jöfnum höndum
vera til þess fallin að
bæta úr vanda og koma
í veg fyrir að ein-
staklingar og fjöl-
skyldur komist í þá að-
stöðu að geta ekki ráðið
fram úr málum sínum sjálf.
XII. kafli. Húsnæðismál
[45. gr.]1) Sveitarstjórnir skulu,
eftir því sem kostur er og þörf er á,
tryggja framboð af leiguhúsnæði,
félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða
félagslegum eignaríbúðum handa
þeim fjölskyldum og einstaklingum
sem ekki eru á annan hátt færir um
að sjá sér fyrir húsnæði sökum
lágra launa, þungrar fram-
færslubyrðar eða annarra fé-
lagslegra aðstæðna.
1)L. 34/1997, 9. gr.
[46. gr.]1) Félagsmálanefndir
skulu sjá til þess að veita þeim fjöl-
skyldum og einstaklingum, sem
ekki eru færir um það sjálfir, úr-
lausn í húsnæðismálum til að leysa
úr bráðum vanda á meðan unnið er
að varanlegri lausn.
1)L. 34/1997, 9. gr.
Sveitarfélög sem ekki eiga nægi-
legt af félagslegu leiguhúsnæði
verða að semja við íb.lánasj. um að
leigja af þeim húsnæði og end-
urleigja sínum skjólstæðingum og
ríkið ætti þar að koma að málum
einnig. Það á að krefjast þess við
velferðarráðuneytið og innanrík-
isráðuneytið að sveitarfélögin verði
skikkuð til þess að standa undir
þessum lögum sem gilda. Ef ríkið
og sveitarfélög standa ekki undir
þessum lögum á að kæra ríkið og
stofnanir þær sem málið varða fyrir
mannréttindabrot og brot á stjórn-
arskrá.
Mannréttinda-
brot ríkis og
sveitarfélaga
Eftir Ragnhildi L.
Guðmundsdóttur
Ragnhildur L.
Guðmundsdóttir
» Sveitarfélög standa
ekki í stykkinu varð-
andi félagslegt húsnæði
eins og þeim ber sam-
kvæmt lögum um sveit-
arfélög. Ungt fólk er í
átthagafjötrum.
Höfundur er náms- og starfsráðgjafi
og kennari.
Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is
Erum með allt fyrir
Góður endir
á góðum degi
Nuddpottar
Hreinsiefni
Síur
Viðgerðarþjónusta
Varahlutir
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | avon@avon.is
Bylting frá Remington:
Fyrstir hártækjaframleiðenda
með Lithium rafhlöður í hártækjum
– hleðsla allt að 4 x lengri.
AQ7 – Remington Rotary
VATNSHELD herrarakvél
– 100% vatnsheld, má nota með
froðu og geli
BHT6250 – Wet-Tech
Body Hair Trimmer
– 100% vatnsheld
S6280
Stylist Perfect Waves
– Keramik húðaðar bylgju plötur.
-Hitnar á 30 sek
PG6060 – Lithium-Powered
Grooming Kit
– Lithium rafhlaða,
ending allt að 110 mín
MB4040 – Lithium
– Powered skeggsnirtir
– Lithium rafhlaða, notkun allt að 160 mín.
HC5780 Lithium-
Powered hárklippur
- – Lithium rafhlaða,
notkun allt að 150 mín.
Nýtt frá