Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 44

Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 44
Mikill minnihluti göngu- og hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu er upphit- aður og því þarf að beita hefðbundnari meðulum í baráttu við hálkuna. Um stíga og gangstéttir fara sérútbúnar dráttarvélar og til hálkueyðingar er notaður sandur. Austan Sæbrautar og Reykjanesbrautar er sandurinn blandaður salti að um 15-20% og var byrjað að nota þessa aðferð í janúar 2013. Stofnstígar, svo sem göngu- og hjólastígar milli borgarhluta, eru í forgangi og síðan megingönguleiðir að strætóskýlum og skólum og eiga þær að vera greiðfærar fyrir kl. 8.00 virka daga. Saltblandaður sandur á stíga HEFÐBUNDNUM MEÐULUM BEITT Í BARÁTTU VIÐ HÁLKU MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Þurfti að víkja fyrir stjörnukokki 2. Bílflautið fældi ekki hestana 3. Mistök sem kosta tugi milljarða 4. Kristján Arason sýknaður »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Rósa Gísladóttir opnar í Hörpu á morgun sýningu á verkum sem hún sýndi á stórri einkasýningu á Traj- anusarmarkaði í Róm í fyrra og nefndist Come l’acqua come l’oro … eða Eins og vatn eins og gull … Rósa Gísladóttir sýnir Rómarverk í Hörpu  Í fjötrum fjalla blárra nefnist sýn- ing sem opn- uð verður í Slunkaríki í dag kl. 17. Á sýningunni eru verk unn- in í ýmsa miðla; ljósmyndir, teikn- ingar, textílskúlptúr. Verkin eiga ann- ars vegar rætur sínar í ferðum Rósu Sigrúnar um Vestfirði og hins vegar vinnustofudvöl í Tangagötu á Ísafirði í nóvember sl. Í fjötrum fjalla blárra opnuð í Slunkaríki  Málmsmíðafélagið spilar fyrir gesti og gangandi í Gamla Kaup- félaginu á Akranesi í kvöld en tónleikarnir verða forsmekkurinn af við- burðum og skemmtun sem verður á Írskum dögum um helgina. Tekin verða lög frá AC/DC, Deep Purple, Led Zeppelin o.fl. Tónleikarnir hefjast kl. 22. Klassískt rokk og ról í Gamla Kaupfélaginu Á fimmtudag Norðaustlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 um tíma suð- austanlands. Rigning austantil, en annars skýjað og stöku síð- degisskúrir. Léttir til nyrðra og eystra um kvöldið. Hiti 8-13 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað, en úrkomulítið. Birtir smám saman til norðvestanlands, en síðdegis- skúrir syðra. Þykknar upp austanlands í kvöld. Hiti víða 10-15 stig. VEÐUR „Ég var búinn að gera nýjan samning en síðan kom þetta spennandi tilboð inn á borð til mín frá ÍBV, og samhliða því að við eign- uðumst lítinn strák í síð- ustu viku og stelpan er að byrja í skóla fannst okkur þetta vera rétti tímapunkt- urinn að flytja heim,“ segir Gunnar Magnússon sem hefur sagt upp þjálfara- starfi hjá norska liðinu Kristiansund. »1 Barst spennandi tilboð frá ÍBV Gogga galvaska-mótið í frjálsum íþróttum var haldið á Varmárvelli undir stjórn frjálsíþróttadeildar Aft- ureldingar í 24. sinn um síðustu helgi. Rúmlega 150 krakkar tóku þátt í mótinu sem tókst afar vel og fór fram í flottu veðri í Mosfellsbænum. »4 Mikið stuð á Gogga galvaska-mótinu „Það er frábært að koma allar saman og maður fær hálfgerða gæsahúð við að tala um þetta því nú er virkilega farið að styttast í mótið. Það eru mjög spennandi og skemmtilegir tímar framundan,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, markadrottning ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu, í gær þegar síðasti hluti undirbúnings landsliðsins fyrir EM hófst. »2 Spennandi og skemmti- legir tímar framundan ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is „Ég er með þá hugmynd að nýta upplýsingarnar frá skynjurunum og setja á rafrænt form,“ segir Hrönn Karólína Scheving Hall- grímsdóttir, meistaranemi í um- ferðarskipulagi og umferðarverk- fræði í Danmarks Tekniske Universitet, en hún vinnur nú að meistaraverkefni sem fjallar um möguleika á að auka hjólreiðar yfir vetrartímann með aðstoð tækninn- ar. Hugmyndin er að koma skynj- urum fyrir á upphituðum hjólastíg- um þar sem skynjararnir nema ástand stíganna á rauntíma. Þess- um upplýsingum væri hægt að koma yfir á rafrænt/netvænt form, svo sem í app fyrir snjallsíma eða á heimasíðu, fyrir hjólreiðamenn sem geti þá nálgast upplýsingar um ástand stíganna hverju sinni beint í símann. Upphitað í Reykjavík Svo virðist sem sífellt fleiri kjósi að nýta hjólið sem samgöngumáta og verður umferð á hjóla- og göngustígum borgarinnar sífellt þéttari. Unnið er að lagfæringum og viðbótum á hjólreiðastígum í Reykjavík í sumar og er gert ráð fyrir að stígunum fjölgi og þeir lengist á næstu árum. Í Foss- vogsdal er til að mynda búið að út- búa sérstakan hjólreiðastíg, aðskil- inn frá göngustígnum og nú liggur einnig samfelldur hjólreiðastígur frá Hlemni niður í Elliðárdal. Ein- hverjir stíganna eru upphitaðir í dag. „Reykjavíkurborg er með þá hugmynd að hita upp hjólreiða- stíga í borginni,“ segir Hrönn. Þetta eru að sögn hennar skynj- arar sem stjórna hitakerfinu og skynja yfirborðið. Skynjararnir nema til að mynda hvort hálka eða ísing sé á stígunum og stjórna flæðinu til að lágmarka orkunotk- un. Hrönn vill nýta upplýsingarnar frá þessum skynjurum þannig að hægt sé að setja á rafrænt form, til dæmis í snjallsímaforrit, svokölluð öpp. Hún segir hugmyndina vissu- lega eiga sér fyrirmynd, heimasíðu Vegagerðarinnar, þar sem öku- menn geta kynnt sér færð á vegum. Hrönn lagði fram rafræna könn- un þar sem hún bað hjólreiðamenn í Reykjavík um að svara nokkrum spurningum um hjólreiðar þeirra. Í niðurstöðunum getur hún séð hversu margir hjóla og hversu margir myndu ef til vill bætast við ef stígarnir væru upphitaðir og hægt væri að fá þessar upplýsingar í símann. Margir hafa nú þegar tekið þátt. „Það kom mér helst á óvart að það hjóla mun fleiri en ég hafði gert mér í hugarlund,“ segir Hrönn. Reykjavíkurborg hefur útvegað henni upplýsingar um hjólreiðastíga og annað tengt efninu og mun hún kynna borginni niðurstöður meist- araverkefnisins í haust. Færð á reiðhjólastígum í app  Meistaranemi hyggst nýta sér tæknina Ljósmynd/Hrönn Karólína Meistaraverkefni Hrönn Karólína vill stuðla að auknum hjólreiðum á veturna með hjálp tækninnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.