Morgunblaðið - 10.07.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, ákvað að staðfesta breytingar
á lögum um veiðigjald sem nýlega
voru samþykktar af Alþingi. Þetta
tilkynnti hann á Bessastöðum í gær
og tók því ekki tillit til þeirra undir-
skrifta sem hafði verið safnað gegn
breytingu gjaldsins.
„Með lögum um veiðigjald, sem
Alþingi hefur nú afgreitt, er ekki
verið að breyta skipan fiskveiða og
áfram verður greitt til þjóðarinnar
bæði almennt veiðigjald og sérstakt
veiðigjald; heildargreiðslur vegna
nýtingar auðlindarinnar á næsta ári
um tíu milljarðar króna,“ sagði for-
setinn í ræðu sinni. Jafnframt benti
Ólafur á að þegar hann hefði áður á
grundvelli 26. greinar stjórnar-
skrárinnar vísað lögum í þjóðarat-
kvæði hefðu þau varðað annaðhvort
grundvallaratriði í lýðræðisskipan
landsins eða efnahagslegt sjálfstæði
þess.
„Yrði afdrifaríkt fordæmi“
Þá sagði Ólafur lögin ekki fela í
sér grundvallarbreytingu á nýtingu
auðlindarinnar en þau kvæðu á um
tímabundnar breytingar á
greiðslum til ríkisins, þ.e. sköttum
vegna nýtingar. „Að vísa lögum af
því tagi í þjóðaratkvæðagreiðslu
væri svo afdrifaríkt fordæmi að víð-
tækar umræður og afar breiður
þjóðarvilji þyrfti að vera á bak við
slíka nýskipan í meðferð skattlagn-
ingar, þjóðaratkvæðagreiðslur um
hækkanir eða lækkanir á einstökum
tekjuliðum ríkisins,“ sagði Ólafur.
Auk þess áréttaði hann hvatningu
sína til stjórnvalda, Alþingis og rík-
isstjórnarinnar, um að kappkosta
við boðaða endurskoðun veiðigjald-
anna að ná varanlegri og víðtækri
sátt um skipan fiskveiða og arð-
greiðslna til þjóðarinnar, enda sýndi
fjöldi þeirra sem settu nafn sitt við
undirskriftasöfnunina að almenn-
ingur hefði ríkan vilja og réttlæt-
iskennd í þessum málum.
Á blaðamannafundinum svaraði
Ólafur einnig nokkrum spurningum
frá blaðamönnum sem þar voru
staddir. „Nei, ég er það ekki og það
gætir mikils misskilnings í umræðu
undanfarna daga og vikur að halda
að málskotsréttur forseta sé eins
konar sjálfvirkt tæki þar sem fjöldi
undirskrifta ræður úrslitum,“ sagði
Ólafur, spurður hvort hann væri
ekki með þessu að gerast ósam-
kvæmur sjálfum sér í ljósi þess að
árið 2004, er hann neitaði að skrifa
undir fjölmiðlalögin, bárust honum
færri undirskriftir en nú.
Morgunblaðið/Eggert
Veiðigjöldin staðfest Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, staðfesti í gær breytingar á lögum um veiðigjöld
sem Alþingi hafði áður samþykkt. Fjöldi blaðamanna var viðstaddur blaðamannafund á Bessastöðum í gær.
Staðfesti veiðigjaldið
Sagði lögin ekki grundvallarbreytingu á nýtingu auðlindar-
innar Hvatti stjórnvöld til að ná varanlegri sátt um málið
Staðfesting
» Ólafur sagði að afar breiður
þjóðarvilji þyrfti að vera á bak
við þá nýskipan í meðferð
skattlagningar að setja hækk-
anir eða lækkanir á einstökum
tekjuliðum ríkisins í þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
» Hann benti jafnframt á að
fjöldi undirskrifta sýndi að
þjóðin hefði ríkan vilja og rétt-
lætiskennd í þessum málum.
„Það er mik-
ilvægt að forset-
inn hafi sam-
þykkt lögin sem
gilda fyrir næsta
fiskveiðiár,“ seg-
ir Sigurður Ingi
Jóhannsson
atvinnuvega-
ráðherra. Hann
segir að nú sé
hægt að leggja á
sérstakt gjald til viðbótar við það
almenna og styrkja þannig góðan
starfsgrundvöll smærri fyrirtækja í
byggðum landsins. Sigurður segir
umræðuna um lækkun gjaldsins
villandi. Hún hafi aðeins miðast við
gjaldið sem lagt var á. Flestir hafi
verið sammála um að það hafi verið
óhóflegt og haft slæmt áhrif á út-
gerðirnar. agf@mbl.is
Mikilvægt fyrir
byggðir landsins
Sigurður Ingi
Jóhannsson
„Þetta er í sam-
ræmi við það sem
ég reiknaði með
að yrði niður-
staða forsetans.
Ég hef áður sagt
að ég tel að þetta
mál, sem er
tekjuöflunareðlis
fyrir ríkissjóð,
henti ekki fyrir
þjóðaratkvæða-
greiðslu,“ segir Jón Gunnarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
formaður atvinnuveganefndar, um
staðfestingu forsetans.
„Við eigum að hlusta á þessar
undirskriftir sem skilaboð um það
að almenningur vill hafa hér veiði-
gjöld,“ segir Jón. baldura@mbl.is
Skilaboð um að fólk
vill hafa veiðigjöld
Jón
Gunnarsson
„Ég held að það
megi nú í fyrsta
lagi segja að þessi
ákvörðun forseta
skapar
ríkisstjórnar-
meirihlutanum
afar lítið svigrúm
til að lækka þetta
gjald með var-
anlegum hætti
þegar nýtt frum-
varp um veiðigjöld verður lagt fram
á næsta þingi,“ segir Árni Páll Árna-
son, formaður Samfylkingarinnar, í
tilefni af ákvörðun forsetans.
Vísaði Árni Páll til þess að forset-
inn tæki sérstaklega fram í rök-
stuðningi sínum að hér væri um
tímabundna löggjöf að ræða.
baldura@mbl.is
Sníður ríkisstjórn-
inni þröngan stakk
Árni Páll
Árnason
„Þetta eru
ákveðin von-
brigði. Ég átti
von á að hann
myndi taka
stöðu með þjóð
sinni í þessu
máli, en hann
gerði það ekki,“
sagði Ísak Jóns-
son, einn að-
standenda undir-
skriftasöfnunarinnar Óbreytt
veiðigjöld, við mbl.is í gær í kjölfar
ákvörðunar forsetans um að stað-
festa breytingar á lögum um veiði-
gjöld. Þá sagði Ísak jafnframt að
honum þætti röksemdir Ólafs
Ragnars veikar og honum fyndist
sem Ólaf hefði skort hugrekki í
þessu máli. bmo@mbl.is
Segir Ólaf Ragnar
skorta hugrekki
Ísak
Jónsson
„Ég hef ekki
bundið sérstakar
vonir við hann
áður í þessum
efnum, enda tel
ég hann ekki
vera þann örygg-
isventil sem hann
gefur í skyn að
hann sé,“ segir
Lilja Rafney
Magnúsdóttir,
þingmaður VG, um ákvörðun for-
setans í gær. Hún vill lítið gefa fyrir
röksemdafærslu forsetans fyrir
ákvörðun sinni. „Mér fannst hann
reyna að tína upp úr hattinum sín-
um þau rök sem hentuðu hans
ákvörðun, en mér fannst hann vera
í mótsögn við sjálfan sig.“
Einnig segir hún tal forsetans,
um að veiðigjöldin séu skattur, ekki
vera sannfærandi. bmo@mbl.is
Forsetinn ekki
öryggisventill
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
„Þetta er alveg
eins og ég bjóst
við eftir að við
Píratar fórum og
ræddum við
hann. Þá var
hann tilbúinn
með allar réttlæt-
ingarnar og spil-
aði þeim öllum
fram á blaða-
mannafund-
inum,“ segir Jón Þór Ólafsson,
þingmaður Pírata, um staðfestingu
forseta á lögum um veiðigjald.
Hann segir þó jákvætt að nið-
urstaðan undirbyggi að ef tillögur
berast um grundvallarbreytingar á
kvótakerfinu, og þjóðin verði ósátt,
muni vera auðveldara að þrýsta á
forseta í kjölfarið. agf@mbl.is
Lá fyrir á fundinum
Jón Þór
Ólafsson
ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS
- Hnappur semgetur bjargað
þínu lífi og þinna nánustu.
Skannaðu kóðann
til að sjá mynd-
skeið frá fundi
forsetans.
Hitabylgja var norðan- og austanlands í gær, þar sem hitamælar sýndu víð-
ar vel yfir 22 stig. Á Ráðhústorginu á Akureyri fór mælirinn hæst í 24
gráður og kældu margir sig niður í Lystigarðinum, m.a. þessar stelpur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Heitt fyrir norðan og austan
Nokkurt tjón varð í Mjólkurbúi MS
á Selfossi um miðjan dag í gær þeg-
ar eldur kom upp hjá iðnaðarmönn-
um sem voru þar að setja upp rör.
Þeir reyndu að slökkva eldinn með
slökkvitækjum, en hringdu á
slökkvilið þegar útséð var um að
það tækist. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi var eldurinn nokkuð stað-
bundinn og náði ekki að breiða úr
sér.
Eldur í mjólkurbúi
MS á Selfossi
Eldur kom upp í litlum fiskibát sem
staddur var á veiðum norðvestur af
Garðskaga í gærmorgun. Einn
maður var í bátnum og sakaði hann
ekki. Var honum bjargað um borð í
nærstaddan fiskibát sem flutti hann
að landi. Um hálftíma síðar var bát-
urinn brunninn til kaldra kola og
sokkinn til botns.
Mannbjörg er bátur
brann og sökk