Morgunblaðið - 10.07.2013, Side 10

Morgunblaðið - 10.07.2013, Side 10
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Þeir kynntust í grunnskólaog leiðir þeirra hafa legiðþétt saman undanfarin ár.Guðjón Geir Geirsson og Róbert Ómar Elmarsson eru báðir í Flensborg, vinna hvor hjá sinni tískufataversluninni og hafa nú sett á fót sína eigin fatalínu, Inklaw Clot- hing. „Við höfum alltaf haft þvílíkan áhuga á fötum og reynum að fylgja tískunni. Þetta ævintýri okkar byrj- aði síðan fyrir svona sjö mánuðum en þá fórum við að velta fyrir okkur hvað við gætum gert til að búa til okkar eigin fatalínu,“ segir Róbert. Vinirnir létu ungan aldur ekki stöðva sig og lögðu höfuðið í bleyti yfir framkvæmdahliðinni. Eftir mikla leit að vörum sem uppfylltu gæðakröfur þeirra pöntuðu þeir hlýraboli frá Bandaríkjunum. Hlýrabolir og húðflúr „Þegar við ætluðum að koma þessu út var komið sumar þannig að það var ekkert hægt að fara út í að koma með peysur. Hlýrabolir eru svo mikið inn núna þannig að við ákváðum að byrja á þeim. Við- brögðin hafa verið framar okkar björtustu vonum og fyrstu vikuna seldum við helminginn af bolunum okkar,“ segir Guðjón en hann teikn- aði vörumerkið þeirra sem er blanda af I og L sem stendur fyrir Ink (blek) og Law (lög) og saman mynda stafirnir X. „Húðflúr er þvílíkt mikið í tísku og við ákváðum að vinna svo- lítið með það. Við ákváðum líka að sauma tatted í húfurnar en það þýðir inkaður eða blekaður,“ segir Róbert. Strákarnir lögðu mikið upp úr því að merkið þeirra yrði saumað í húf- urnar en ekki prentað á þær. „Þetta eru svokallaðar snapbacks-húfur. Við erum með þeim fyrstu hér á landi að láta sauma í svoleiðis húfur, segir Guðjón en þeir vinir kunna fyr- irtækinu Margt smátt góðar þakkir fyrir að bregðast vel við bónum þeirra og vel unnin störf við merk- ingar. Fjármagna allt sjálfir Þegar þessir athafnasömu drengir eru inntir eftir því hvernig þeir fjármagni þetta segja þeir mikla vinnu liggja að baki. „Við er- um bara rétt að verða tvítugir og báðir í skóla þannig að þetta er svo- lítið mikið fyrir okkur. Þetta er samt búið að vera svo geðveikt skemmti- legt. Við fjármögnum allt sjálfir og höfum eytt miklum tíma utan skóla og vinnu til þess að láta verða af þessu. Við unnum mikið og notuðum okkar eigin peninga til að borga fyr- ir bolina. Síðan fengum við pening fyrir þá og þá gátum við keypt húf- urnar. Núna erum við komnir með enn meiri pening og ætlum að kaupa öðruvísi tegund af húfum, svona uni- sex-húfur. Þannig að við vinnum okkur smám saman áfram og erum hægt og rólega að byggja okkur upp lager til að geta tekið þetta skrefinu lengra,“ segir Guðjón. Strákarnir leggja mikla áherslu á að fara ekki út í neinar fjárfest- ingar nema eiga fyrir þeim og hafa þeir fengið móðursystur Guðjóns til liðs við sig til að halda utan um bók- haldið. „Sumir sögðu að við værum klikkaðir að gera þetta en við ætlum okkur að ná langt og höfum trú á þessu,“ segir Guðjón. Kröfur um að vera töff Innblásturinn fá þeir frá bretta- heiminum og bandarískum tónlist- „Við ætlum okkur að ná langt“ Vinirnir Guðjón Geir Geirsson og Róbert Ómar Elmarsson hafa unnið hörðum höndum við að koma á fót sinni eigin fatalínu undafarna mánuði. Aðeins 19 ára gamlir sjá þeir um að finna réttu fötin og flytja til landsins, hanna merki til að setja á þau og selja síðan. Allt þetta fjármagna þeir sjálfir og eiga þeir sér stóra drauma um framtíð götutískumerkisins Inklaw Clothing. Æskuvinir Þeir Róbert og Guðjón kynntust í Áslandsskóla og æfðu lengi saman knattspyrnu með Haukum. Þetta er fyrsta myndin af þeim saman. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 Tónlistarhátíðin Eistnaflug hefst í dag og mun hún enda í lok vikunnar. Fyrir þá sem ekki vita er hátíðin hald- in ár hvert í Neskaupstað en um er að ræða eina allsherjar rokk- og listahá- tíð. Í kvöld munu sveitirnar Dimma, Sólstafir og Skálmöld opna hátíðina og byrja tónleikarnir klukkan 19. Auk þeirra munu sveitir á borð við banda- rísku sveitina Red Fang, dönsku sveitina The Psyke Project, færeysku rokkarana í Hamferð og Þjóðverjana í Contradiction koma fram í ár og halda tónleikagestum á tánum. Flest- ir tónleikarnir verða haldnir í Eg- ilsbúð en þar að auki verður margt listrænt um að vera í svokölluðu May- hemisphere en báðir staðirnir eru eins og áður segir í Neskaupstað. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni eistnaflug.is en þar er einnig hægt að kaupa miða á hátíð- ina. Vefsíðan www.eistnaflug.is Morgunblaðið/Eggert Rokkhátíð Sólstafir munu koma fram í kvöld á Eistnaflugi í Neskaupstað. Rokkhátíð í Neskaupstað Í tilefni af fyrstu breiðskífu sveit- arinnar Grísalappalísu, Ali, mun verða efnt til allsherjar útgáfuveislu á hostelinu Kex við Skúlagötu klukk- an 20. Frítt verður inn og margt í boði en ýmis skemmtiatriði munu eflaust vekja kátínu gesta auk þess sem tón- list sveitarinnar mun fá að óma í eyr- um viðstaddra. Nýtt tónlistar- myndband við lag sveitarinnar, Hver er ég?, mun einnig verða frumsýnt í veislunni en það er einmitt trommari sveitarinnar, Sigurður Möller Sívert- sen, sem leikstýrir því en hann nam kvikmyndaleikstjórn í Prag síðastlið- inn vetur. Endilega … … fagnið með Grísalappalísu Stilla Myndband lagsins Hver er ég? „Það má segja að þetta verði eins- konar trúbadora-hátíð í Hrísey.Yfir hátíðina er ýmislegt á dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Óvissuferðir fyrir börn, unglinga og fullorðna. Ratleikur um eyjuna og traktorferðir yfir alla helgina. Fjöruferð með Skralla trúð, prammahlaup, hjólbörurall, sand- kastalakeppni. Heimir Ingimarsson verður með söngsmiðju fyrir börnin. Komið er fyrir sápu-rennibraut og svæði fyrir sápu fótbolta, á þessum stöðum mun fólk renna á hausinn,“ segir leikstjórinn og framkvæmda- stjóri hátíðarinnar Jón Gunnar Th. Veitingahúsið Brekka verður með grill á hátíðarsvæðinu. Þar verður meðal annars boðið upp á sushi úr hráefninu úr eyjunni og hvannaplokk- fisk. „Í ár verður mikil áhersla lögð á tónlist. Margir ungir trúbadorar spila í eyjunni og markmiðið er að hvert sem gestirnir fara verði hugguleg tónlist í boði. Það verður tónlist um borð í ferjunni, fiðluleikari á höfninni og plötusnúður í sundlauginni. Tón- listarmennirnir sem eiga eftir að spretta upp hér og þar yfir helgina eru Sister Sister, trúbadorarnir Brynja og Ósk, Aron Óskarsson, söngkonan Vala Eiríksdóttir, Sölvi Árnason, Haraldur Örn Haraldsson og Heimir Ingimarsson. Á kvöldvökunni koma þau fram og að lokum meistari KK en hann syngur fyrir gesti á hátíð- arsviðinu,“ segir Jón Gunnar. Um miðnætti koma fram eldspúarar, varðeldur er tendraður í fjörunni og Eyþór Ingi Gunnlaugsson leiðir brekkusönginn. Hríseyjarhátíðin verður um helgina Tónlistarveisla í Hrísey Hríseyjarhátíðin Eyþór Ingi mun leiða brekkusönginn um næstu helgi. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Fallegir toppar peysur og bolir fyrir konur á öllum aldri Stærðir S-XXXL 20-70% afsláttur Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Útsala

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.