Morgunblaðið - 10.07.2013, Page 14
SVIÐSLJÓS
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Fyrrverandi viðskiptavinur Frjálsa
fjárfestingabankans hefur kært
fjóra stjórnendur Dróma til sér-
staks saksóknara, m.a. vegna auðg-
unarbrots. Hann heldur því fram
að Drómi hafi rukkað hann um
dráttarvexti á láni þrátt fyrir að
hann væri kominn í greiðsluskjól.
„Við teljum að þegar menn
reyna að hámarka kröfur sínar
með því að fara á svig við lögin sé
það auðgunarbrot. Það er verið að
beita blekkingum. Þeir segjast hafa
heimild til að rukka dráttarvexti
þegar þeir hafa hana ekki. Þetta er
gert með ákveðnum ásetningi.
Þetta er verklag sem stjórn Dróma
ákveður og er gegnumgangandi í
mörgum málum,“ segir Sævar Þór
Jónsson, lögmaður Ásthildar B.
Guðlaugsdóttur, þriggja barna
móður í Hafnarfirði, sem kærði
Dróma.
Rukkuð í greiðsluskjóli
Ásthildur lenti í erfiðleikum með
tvö gengistryggð lán hjá Frjálsa í
kjölfar hrunsins sem námu samtals
um 28 milljónum króna. Hún samdi
um viðmiðunargreiðslur við Dróma
en slitastjórnin hafi svo neitað að
standa við samkomulagið þar sem
lánið væri löglegt. Síðan hafi verið
reynt að þvinga hana til að skrifa
undir nýtt skuldabréf í íslenskum
krónum. Það var áður en dómur
um lögmæti gengislána féll.
Í kjölfarið leitaði Ásthildur til
umboðsmanns skuldara og fékk
greiðsluskjól. Enn sé ekki búið að
leysa úr málum hennar en í milli-
tíðinni hafi Drómi rukkað hana um
dráttarvexti. Þeir nemi nú meira
en tuttugu milljónum króna.
„Þegar þér er í greiðsluskjóli
bannað að greiða af skuldum þín-
um þá gengur ekki upp að kröfu-
hafinn geti haldið áfram eins og
ekkert sé og geti haldið áfram að
rukka dráttavexti og hámarka
kröfu sína svona svakalega,“ segir
Sævar Þór.
Einar Gautur Steingrímsson,
lögmaður Dróma, segist gera ráð
fyrir að Sævar Þór verði kærður
fyrir rangar sakargiftir.
„Það er mjög alvarlegt mál að
bera fólk tilhæfulausum sökum.
Konan er í greiðsluskjóli og um-
bjóðandi minn hefur ekki gert
neina kröfu á hana, hvorki um höf-
uðstól né vexti,“ segir hann.
Það eina sem Einar getur
ímyndað sér að hafi verið túlkað
sem krafa hafi verið útprentun á
skuldastöðu konunnar sem hún hafi
beðið um. Ekki hafi verið átt neitt
við kröfuna í tilefni af greiðslu-
skjóli þar sem enginn viti fyrirfram
hvernig endanlegur samningur
verði. Einar segir ennfremur að
Sævar Þór eigi yfir höfði sér meið-
yrðamál biðjist hann ekki afsök-
unar.
Ekki saklaust yfirlit
Sævar segir að það megi ekki
leggja að jöfnu hann og umbjóð-
anda hans.„Þetta er fyrir neðan all-
ar hellur því að ég er ekki beinn
aðili að málinu. Það er greinilegt
að menn eru ekki alveg nægilega
vel að sér í lögunum. Það er ekki
ég sem er að kæra heldur hann. Ef
það á að kæra fyrir rangar sak-
argiftir þá er því ranglega beint að
mér,“ segir Sævar Þór um hugs-
anlega kæru gegn sér.
„Það er talað um að þetta hafi
verið saklaust yfirlit sem hafi verið
prentað út og hún fái í hendur.
Hún fær til sín bréf þar sem stend-
ur „Staða innheimtumáls“. Það er
ekki saklaust útprent á stöðu láns.
Þar er þetta allt tilgreint.“
Saka Dróma um auðgunarbrot
Kæra Dróma vegna rukkunar á dráttarvöxtum í greiðsluskjóli Sagðir nema meira en tuttugu
milljónum króna Slitastjórnin ætlar að kæra lögmann viðskiptavinarins vegna rangra sakargifta
Kæra Ásthildur ásamt lögmanni sínum, Sævari Þór Jónssyni, fyrir utan
skrifstofur sérstaks saksóknara þar sem þau skiluðu inn kæru í gær.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Fjármálaeftirlitið vinnur nú að
athugun á viðskiptaháttum
Dróma og hvort að þeir séu í
samræmi við það sem almennt
tíðkast hjá fjármálafyrirtækjum
eins og lög um fjármálafyrirtæki
í slitameðferð kveða á um.
Í skriflegu svari við fyrirspurn
Morgunblaðsins til Fjármálaeft-
irlitsins segir að lögð sé áhersla
á að ljúka athuguninni við fyrsta
tækifæri að teknu tilliti til
fresta til andmæla og yfirferðar
gagna.
Drómi hefur meðal annars
verið gagnrýndur fyrir að ganga
harðar fram í að innheimta
skuldir viðskiptavina SPRON og
Frjálsa en aðrar lánastofnanir
hafa gert gagnvart sínum við-
skiptavinum. Drómi hafi end-
urreiknað gengislán mun seinna
en aðrar fjármálastofnanir og
haft fyrirvara á endurútreikn-
ingum sínum.
Athugun lok-
ið sem fyrst
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
DEH-1500DEH-150 DEH-4500
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800
VERSLANIR UM LAND ALLT
www.ormsson.is
HEIMSKLASSA
HLJÓMFLUTNINGUR
4X50 W MOSFET magnari / Útvarp með 24
stöðva minni / Spilar MP3, WMA, WAV,
CD-R/RW / AUX og USB tengi á framhlið / Hægt
að tengja við fjarstýringu í stýri (tengi fylgir ekki)
/ EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið- og hátóna.
Verð: 22.900,- kr.
4X50 W MOSFET magnari / Útvarp með 24
stöðva minni / Spilar MP3, WMA, WAV,
CD-R/RW / AUX tengi á framhlið / Hægt að tengja
við fjarstýringu í stýri (tengi fylgir ekki) / EEQ,
Tónstillir fyrir bassa, mið– og hátóna.
Verð: 19.900,- kr.
4X50 W MOSFET magnari / Útvarp með 24
stöðva minni / Spilar MP3, WMA, WAV,
CD-R/RW / AUX og USB tengi á framhlið / iPod í
gegnum USB / Bluetooth, mic fylgir / EEQ,
Tónstillir fyrir bassa, mið– og hátóna.
Verð: 37.900,- kr.
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Trekking
(Petrol og Khaki)
Kuldaþol -20
Fyrir líkamsstærð 190 eða 175cm
Þyngd 190/1,70 kg og 175/1,65 kg
Verð kr. 13.995,-
Tjaldasalur - verið velkomin
Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngu
tjöld
Savana Junior
(blár og rauður)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 150 cm
Þyngd 0,95 kg
VERÐ 11.995,-
Savana
(blár)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 195cm
Þyngd 1,45 kg
Verð kr. 13.995,-
Micra
(grænn og blár)
Kuldaþol -14°C
Fyrir líkamsstærð 195 eða 185cm
Þyngd 195/1,0 kg og 185/0,95 kg
Verð kr. 16.995,-
Stakir stólar
kr. 5.995.-
Stök borð
kr. 5.995.-
FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS
15.000 til 20.000 kr.
afsláttur af hústjöldum+ kaupauki borð og stólar í settiað verðmæti 19.995 fylgja með.
FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
„Markmiðið er að vekja athygli á líf-
færagjöfum og hverju þær hafa
breytt fyrir fólk sem væri jafnvel
rúmfast eða látið, hefði það ekki
fengið líffæri,“ segir Kjartan Birg-
isson hjartaþegi en hann tekur þátt í
heimsleikum líffæraþega í Suður-
Afríku í lok júlí. Með í för verða einn-
ig Íslendingarnir Björn Magnússon
og Laufey Rún Ármannsdóttir
nýrnaþegar. Björn keppir í golfi,
Laufey í hlaupum og Kjartan í báð-
um greinunum. Hann er liðtækur
badmintonspilari og mun því einnig
spreyta sig á vellinum.
Þolpróf og læknisskoðun
Aðdragandi þátttökunnar á leik-
unum hefur verið nokkuð langur og
upphaflega stóð til að fleiri íslenskir
líffæraþegar færu með. „Þetta er
svolítið brothættur hópur, ekki
heilsuhraustasta fólkið á Íslandi,“
segir Kjartan og því verða þátttak-
endurnir aðeins þrír í ár. Ákveðnar
kröfur eru gerðar til þeirra sem taka
þátt og verður til að mynda að vera
liðið eitt ár frá líffæraskiptum.
Þá verða þátttakendur einnig að
gangast undir þolpróf og lækn-
isskoðun til staðfestingar um að þeir
séu nægilega heilsuhraustir til að
taka þátt. Um 1.000 líffæraþegar
taka þátt á leikunum.
Snýst um að vera þátttakendur
Kjartan segir þátttökuna ekki snú-
ast um að landa gulli í öllum greinum.
Hann muni þó að sjálfsögðu gera sitt
besta og vonast sérstaklega eftir
góðum árangri á badmintonvellinum.
„Sigurinn hjá mér er að taka þátt í
leikunum,“ segir Kjartan og bætir
við að fyrirhuguð ferð á leikana hafi
einnig verið þeim hvatning við æfing-
ar.
Ferðin á leikana kostar sitt og hafa
þegar borist nokkrir styrkir. Kjartan
tekur fram að enn sé opið fyrir stuðn-
ing og þeim verði tekið fagnandi.
Keppa til sigurs
Þrjú taka þátt á heimsleikum líf-
færaþega í Suður-Afríku í sumar
Tilbúin Kjartan Birgisson, Laufey
Rut og Björn Magnússon.