Morgunblaðið - 10.07.2013, Side 20

Morgunblaðið - 10.07.2013, Side 20
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is U mhverfisstofnun telur að undirbúningur að stækkun friðlands Þjórsárvera hafi verið samkvæmt lögum og góðum stjórnsýsluháttum. Kemur það fram í ítarlegri greinargerð stofnunarinnar til umhverfis- og auð- lindaráðherra. Umhverfisráðherra frestaði á síðustu stundu undirritun frið- unarskilmála vegna stækkunar frið- lands Þjórsárvera vegna at- hugasemda Landsvirkjunar og bað Umhverfisstofnun að fara yfir at- hugasemdirnar. Á síðustu stundu komu einnig fram athugasemdir úr tveimur sveitarfélögum, um að ekki hefðu öll gögn verið lögð fyrir sveit- arstjórnirnar, áður en þær sam- þykktu friðlýsinguna. Þar mun vera átt við athugasemdir Landsvirkjunar. Stækkun friðlandsins suður fyrir núverandi friðlandsmörk og suður fyrir hin eiginlegu Þjórsárver veldur því að gömul áform Landsvirkjunar um Norðlingaölduveitu verða end- anlega úr sögunni. Veitu þessa hefur Landsvirkjun lengi undirbúið en hún er talin afar hagkvæmur virkj- anakostur þar sem vatni úr Þjórsá er veitt í gegnum þegar byggðar virkj- anir á Þjórsár-Tungnaársvæðinu. Landsvirkjun er augljóslega hagsmunaaðili vegna stækkunar frið- landsins vegna hagsmuna sem hún á að gæta á svæðinu. Taldi fyrirtækið að samkvæmt lögum ætti að semja við slíka hagsmunaaðila, áður en gengið yrði frá friðlýsingu. Fram kom það álit í athugasemd Lands- virkjunar að málmeðferðin hefði verið ólögmæt. Ekki leitað samþykkis Umhverfisstofnun rekur ítarlega hvernig samningar náðust við sveit- arfélögin átta og ríkið sem eiganda landsins um stækkun friðlandsins. Fram kemur að þáverandi umhverf- isráðherra undirritaði viljayfirlýsingu um að leggja 28 milljónir til stækk- unar friðlandsins og til að styrkja inn- viði á Þjórsárverasvæðinu. Umhverfisstofnun segir að Landsvirkjun hafi verið skilgreind sem hagsmunaaðili í ferlinu og frið- lýsingarskilmálar hafi í tvígang verið kynntir fyrir fyrirtækinu, auk al- mennra kynninga. Ekki hafi verið leitað eftir formlegu samþykki ann- arra hagsmunaaðila en landeigenda og sveitarstjórna. Bendir Umhverfisstofnun á að skylt sé samkvæmt lögum að vinna að friðlýsingu virkjanakosta sem flokkaðir voru í verndarflokk í þings- ályktun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Telur Umhverfisstofnun að Alþingi hafi tekið bindandi ákvörð- un um stöðu viðkomandi svæða og landnýtingu til framtíðar. Því hafi ekki þurft að koma til sérstakt mat fagstofnana eða annarra á því hvort friðlýsa ætti svæðin. Flokkunin hefur augljóslega breytt aðkomu Landsvirkjunar sem virkjunaðaraðila í því langa ferli sem stækkun friðlands Þjórsárvera hefur verið í. Landsvirkjun hefur lagt áherslu á að fá að breyta útfærslu Norðlingaölduveitu þannig að hún hafi minni áhrif á umhverfið. Um- hverfisstofnun hafnar þeim mögu- leika og bendir á að svæðið hafi verið valið til verndar, samkvæmt þings- ályktuninni, og má skilja greinargerð stofnunarinnar þannig að með því hafi fallið niður öll réttindi Lands- virkjunar til virkjunar á svæðinu. Stofnunin lýsir þeirri skoðun sinni að ef skilgreindur yrði nýr virkj- anakostur í stað Norðlingaölduveitu þyrfti að taka þá hugmynd fyrir á vettvangi verkefnisstjórnar áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða. Telja skylt að friða kosti í verndarflokki Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þjórsárver Áformað er að stækka friðland Þjórsárvera og Hofsjökuls þann- ig að það verði fjórfalt stærra en í dag. Ekki hefur verið gengið frá málinu. 20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Skýrsla Rann-sókn-arnefndar Alþingis var ekki- gallalaus. En þegar hún birtist var henni hampað eins og hún hefði bibl- íulegt eðli (og biskupinn lét kirkjurnar kaupa hana!). En fjölmiðlamenn og „umræðu- stjórar“ gerðu nefndarmönnum óleik, því þeir tóku henni grunn- múraðir eigin fordómum og yf- irgripsmiklu þekkingarleysi, sem er afleit blanda. Þessir réðu mestu um þá mynd sem almenn- ingur fékk fyrsta kastið af því sem í skýrslunni fólst. Það liggur fyrir að fulltrúar fréttamiðla Baugs áttu aðeins eitt erindi við skýrsluna og þeir brugðust ekki sínum málstað. Þeir sem höfðu sig í frammi af hálfu RÚV réðu ekki við verk- efnið eða voru vanhæfir vegna þekktra tengsla við Kaupþing og Exista. Hugmyndin að því að setja niður rannsóknarnefnd af því tagi var þó alls ekki fráleit. Ákvörðun um víðtækt vald slíkr- ar nefndar var einnig skyn- samleg. Tengdafaðir aðallög- fræðings Fjármálaeftirlitsins hefði sem slíkur aldrei átt að taka sæti í nefndinni og kom fleira til. Þegar á þetta var bent við starfslok nefnd- arinnar gátu nefnd- armenn ekki við- urkennt hið augljósa, því þá hefði tveggja ára puð lent í ruslaföt- unni. Forskriftin sem nefndinni var gefin og nefndarmenn höfðu áhrif á var einnig meingölluð. Sú framúrstefnulega hugmynd að lögfesta að hægt væri að áfellast einstaklinga fyrir að hafa gert eitthvað sem stangaðist á við lög um nefndina sjálfa var tilrauna- starfsemi í lögfræði sem gæti átt heima í Norður-Kóreu en ekki annars staðar. Og svo hitt að lokað var fyrir með tvöföldum lás að nefnd- arniðurstöðuna mætti bera und- ir nokkurn annan. Það var for- kastanlegt og leiddi því miður nefndarmenn í freistni. En samt er skýrsla RA hátíð hjá hrákasmíðinni um Íbúða- lánasjóð. Ráðuneyti og þingið geta ekki verið þekkt fyrir að láta þá skýrslu standa. Fela verður hæfu fólki að fara yfir hana og hreinsa mesta ruglið úr. Ekki má fást um þótt bindum skýrslunnar fækki mjög. Upp- ljóstrun nefndarinnar um að Guðmundur Bjarnason hafi ver- ið varaformaður Framsókn- arflokksins getur þó fengið að standa. Vont er ef helstu dæmin um fúsk í stjórnsýslu koma fram í störfum rannsóknarnefnda } Órannsakaðar rannsóknir Mörgum þykireltingarleik- urinn við upp- ljóstrarann Snow- den heldur ógeðfelldur. Obama forseti hafði haft orð á því opinberlega að hann hefði sem forseti annað við sinn tíma að gera en að eltast við 29 ára gamlan brotthlaupara. En hvað sem þeim orðum forsetans líð- ur verður ekki betur séð en að því sé fylgt eftir með of- urþunga að hafa hendur í hári viðkomandi. Ríkjum, sem hugsanlega myndu veita Snowden skjól, er gefið til kynna að slíkt „góð- verk“ fengju þau ekki að vinna frítt. ESB-ríki sýnast vera full hneykslunar yfir því að hin umfangsmikla njósnastarfsemi hafi beinst bæði að þeirra rík- isborgurum og komisserum og búrókrötum í Brussel. Þau mótmæla og krefjast skýringa og byggja þá á uppljóstrunum Snowdens. En í sömu andrá taka þau þátt í því að knýja flugvél forseta Bólívíu til lend- ingar í Evrópu vegna grun- semda um að sá hafi haft upp- ljóstrarann með sér í farteskinu frá Moskvu. En þeir, sem hafa samúð með Snowden þar sem hann húkir á Moskvuflugvelli með hramm Bandaríkja- stjórnar yfir höfði sér, ættu að vita að þessi mikla aðgerð snýst ekki endilega um þennan einstaka uppljóstrara persónulega. Það er aðallega verið að senda skýr skilaboð til þeirra sem enn sinna sínum störfum við hlustun og hnýsni tugþúsundum saman: „Þið munuð hvergi fá skjól ef þið fetið í fótspor Snowdens og haldið að ykkar bíði frægð og frami. Þið verðið hundelt út á hjara veraldar og smáríki, líka þau sem þykjast búa yfir ríkari réttlætiskennd en hin, munu ekki veita ykkur skjól, því það yrði þeim of dýrkeypt.“ Það er með öðrum orðum ekki verið að tala við Snowden persónulega. Hann er eins og blóraböggullinn sem dreginn er upp að töflunni öðrum hugs- anlegum syndurum til viðvör- unnar. Óneitanlega er hægt að hafa nokkurn skilning á slíkum aðgerðum bandarískra yf- irvalda. Og þær virðast vera að virka. Það fækkar ríkjum sem vilja hýsa Snowden eftir að verðmiði var settur á góðverkið} Gott er að hafa barn til blóra R íkisútvarpið er einkennileg stofn- un. Ég held að enginn viti ná- kvæmlega hvert hlutverk hennar er annað en að vera þrætuepli stjórnmálamanna og tilefni pistla- skrifa og bloggfærslna. Einstaka grínistar hafa haldið því fram að stofnunin hafi ákveðnu ör- yggishlutverki að gegna þegar og ef nátt- úruhamfarir verða eða ef erlendur her skyldi aulast til að ráðast inn í landið, óafvitandi um þau leiðindi og erfiði sem fylgir því að reyna að hafa stjórn á Íslendingum. Ég ræddi það einu sinni við breskan ofursta, sem var staddur hér á landi, hvað Íslendingar gætu gert til að tefja fyrir eða trufla innrás ef til hennar kæmi. Hann sagði að besta vörn Ís- lands væri að Íslendingar væru bara þeir sjálf- ir. Fátt hefði truflað breska „heimsveldið“ meira á tuttugustu og tuttugustu og fyrstu öldinni en yf- irgangur og ákveðni Íslendinga. Hvert sem hlutverk Ríkisútvarpsins er ætti að vera ljóst að ekki stoppar það erlent innrásarlið enda örugglega ekki hluti af starfsemi þess og ætti aldrei að vera það. Þá er flestum líka ljóst að aðrir fjölmiðlar geta sinnt „öryggis- hlutverkinu“ jafnvel eða betur en gamla risaeðlan í Efsta- leiti. Það þarf enga ríkisfréttastofu til að segja mér frá eld- gosi í Vatnajökli. Ríkisfréttastofur ólíkt einkafyrirtækjum þurfa aldrei að bera ábyrgð á sínum fréttaflutningi. Enginn neytandi get- ur sagt upp áskriftinni að Ríkisútvarpinu, sama hversu góður eða slæmur fréttaflutningur eða dag- skrá stofnunarinnar er. Það er því mikil kald- hæðni fólgin í því að Ríkisútvarpið skuli hafa auglýst það á rásum sínum hvernig neytendur gátu sagt upp áskrift af Morgunblaðinu þegar fyrrverandi forsætisráðherra Íslands var ráð- inn ritstjóri þess. Núna sitja hins vegar í stjórn Ríkisútvarps- ins Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi þing- maður Samfylkingarinnar og formaður Al- þýðubandalagsins, Björg Eva Erlendsdóttur, ritstjóri Smugunnar flokksmálgagns Vinstri grænna, og framsóknarmaðurinn Magnús Stefánsson, fyrrverandi ráðherra og alþing- ismaður flokksins. Reyndar situr líka Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhúss- ins, í stjórn Ríkisútvarpsins, eini maðurinn sem virðist hafa þá reynslu og þekkingu sem þarf til að sitja í stjórn stofnunarinnar, að mínu mati. Nú verður fróðlegt að sjá hvort menntamálaráðherra leggi fram frumvarp á næsta þingi sem hefst í haust sem gerir neytendum kleift að segja upp áskriftinni að Rík- isútvarpinu. Ég býst fastlega við því að einhver sem telur sig vita miklu betur en ég og aðrir neytendur um minn smekk og annarra muni skammast yfir þessum pistli. Hugsanlega hefur RÚV einhverju hlutverki að gegna sem ég geri mér ekki grein fyrir. það eina sem ég bið um er að fá að ráða því sjálfur hvaða fréttir og afþreyingu ég borga fyrir. vilhjalmur@mbl.is Hvernig væri að segja upp RÚV? Pistill Vilhjálmur A. Kjartansson STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Frágangi friðlýsingarskilmála vegna stækkunar friðlands Þjórsárvera hefur verið frestað fram yfir sumarfrí lykilstarfs- manna í umhverfisráðuneyti og Umhverfisstofnun. Þegar þráð- urinn verður tekinn upp aftur verður unnið á þeim grunni sem lagður hefur verið, að sögn Jóns Geirs Péturssonar, skrif- stofustjóra í ráðuneytinu. Fulltrúar Landsvirkjunar komu á fund í umhverfisráðu- neytinu í gær. Jón Geir segir að farið hafi verið yfir framkvæmd friðlýsingarinnar og samskiptin við Landsvirkjun. Í greinargerð Umhverfisstofnunar var lagt til að fundað yrði með Lands- virkjun og fyrirtækinu gefinn kostur á að skýra sjónarmið sín nánar. Jón Geir segir að farið verði betur yfir málið síðar í sumar, meðal annars svör Um- hverfisstofnunar. Hann segir ekki útilokað að fulltrúar Lands- virkjunar verði aftur kallaðir til. Undirritun frestað áfram FUNDAÐ MEÐ LV

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.