Morgunblaðið - 10.07.2013, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 10.07.2013, Qupperneq 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 Söngur Kristján Jóhannsson tók upp myndband við lagið The Spanish Eyes við Sólfarið í gær. Hann naut aðstoðar Geirs Ólafssonar söngvara við upptökurnar. Eggert Samkvæmt frétt RÚV frá 6. júlí sl. hef- ur borgarstjórn Reykjavíkur samþykkt deiliskipulag, sem ger- ir ráð fyrir mosku með níu metra háum turni, austast í Sogamýrinni. Samkvæmt fréttinni mun slík moska, ef af verður, verða mjög áberandi í borg- armyndinni og blasa við vegfar- endum, sem aka niður Ártúnsbrekk- una. Samkvæmt heimildum sem ég hef innan úr borgarstjórn er hér um dýra og eftirsótta lóð að ræða, sem ætlunin er að láta fáeinna hundraða manna söfnuð múslíma í Reykjavík fá til ráðstöfunar án endurgjalds. Engu að síður mun það kosta músl- ímasöfnuðinn á Íslandi hundruð milljóna króna að reisa mosku í sam- ræmi við deiliskipulagið. Það er áhyggjuefni að enginn vandi mun vera fyrir múslíma hér á landi að fjármagna slíka mosku með fé frá útbreiðslusamtökum múslíma er- lendis frá. Þar geta komið við sögu samtök, sem vilja auka áhrif ísl- amstrúar á Íslandi, sem í öðrum löndum. Það getur verið vara- samt fyrir þjóðmenn- ingu okkar og öryggi. Samfylkingarflokk- arnir fara offari Það eru samfylking- arflokkarnir tveir í borgarstjórn, Æ-listi og S-listi, sem hafa haft frumkvæði í þessu máli, undir for- ystu Jóns Gunnars Kristinssonar borgarstjóra, Dags B. Eggerts- sonar, formanns borgarráðs, og Páls Hjalta Hjaltasonar, formanns skipu- lagsráðs. Þessir aðilar hafa sýnt frekju og yfirgang í þessu máli, eins og öðrum skipulagsmálum, þar sem flugvallarmálið ber hæst. Samfylk- ingarflokkarnir, með níu borgarfull- trúa, hafa ekki mætt neinni and- stöðu af hálfu fimm borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í þessu máli. Deili- skipulagstillagan var samþykkt samhljóða í bæði skipulagsráði og borgarráði! Rétt eins og að- alskipulag án flugvallar var sam- þykkt samhljóða í borgarstjórn. Segi svo hver sem vill að flugvall- arsinnar eða borgaraleg og/eða kristin öfl, eigi sér málsvara í borg- arstjórn! Borgarstjórn öll eins og hún leggur sig er veruleikafirrt í skipulagsmálum, sem og í þessu al- varlega máli. Öðrum trúarsam- félögum mismunað Það gengur auðvitað ekki að lítill en fyrirferðarmikill trúarhópur sé tekinn fram fyrir alla aðra trúar- söfnuði hérlendis, innlenda sem er- lenda. Sama þó að sá trúarhópur eigi sér sterkari málsvara innan sam- fylkingarflokkanna en kristin rík- iskirkja og kristin eða heiðin sam- félög á Íslandi. Og hvers eiga hófsamir búddistar að gjalda, sem eru miklu fleiri hérlendis en múslím- ar? Ég hvet alla borgarbúa til að mótmæla áformum samfylking- armeirihlutans í borgarstjórn og deiliskipulaginu, sem þeim fylgir. Þetta deiliskipulag felur í sér frekju og yfirgang gagnvart þorra borg- arbúa og öllum öðrum trúar- samfélögum í borginni. Grípa þarf strax í taumana. Ekki er nóg að bíða til vors og úthýsa þá samfylking- arfrekjunni í skipulags- og flugvall- armálum, með því að fella hinn ógeð- fellda borgarstjórnarmeirihluta í kosningum. Og ekkert er hægt að treysta á liðónýtan borgarstjórn- arflokk Sjálfstæðisflokksins. Reisum heldur hof en mosku í Sogamýri Söfnuður íslenskra ásatrúar- manna telur í dag yfir 2.200 manns, eða hátt í 10 sinnum fleiri en músl- ímasöfnuðurinn. Ásatrúin nýtur vel- vildar þorra landsmanna. Hún er hluti af þjóðmenningu okkar og flest höfum við mætur á meðlimum ása- trúarsafnaðarins og ekki síður hin- um geðþekka leiðtoga hans, Hilmari Erni Hilmarssyni, allsherjargoða og tónlistarmanni. Ásatrúarmenn eru umburðarlyndir og ekki ágengir við boðskap eða iðkun trúar sinnar. Einnig eru þeir miklir náttúru- og menningarverndarsinnar. Ég legg til að þegar áformum samfylking- arflokkanna um mosku í Sogamýri verður hrundið, verði lögð drög að því að hof íslenskrar ásatrúar rísi á svæðinu. Slíkur menningargim- steinn yrði gleðigjafi fyrir þorra borgarbúa, sem annarra lands- manna, og myndi ekki stinga í aug- un, eins og moska myndi gera, þegar ekið væri niður Ártúnsbrekkuna, eða um Miklubrautina. Minnumst þess ávallt að okkar forna trú var á margan hátt heiðarlegri og meira í samræmi við skapgerð og sóma- tilfinningu okkar en hin innflutta kristna trú er. Þess vegna eigum við að hafa ásatrúna í heiðri og rækta hana sem arfleifð okkar, í góðri sátt við kristna þjóðmenningu okkar og fólkið í landinu, í nútíð og framtíð. Eftir Ólaf F. Magnússon »Ég legg til að þegar áformum samfylk- ingarflokkanna um mosku í Sogamýri verð- ur hrundið, verði lögð drög að því að hof ís- lenskrar ásatrúar rísi á svæðinu. Ólafur F. Magnússon Höfundur er læknir og fv. borgarstjóri. Samfylkingarflokkarnir og moska í Reykjavík Fyrir nákvæmlega ári féll dómur hjá Mannréttinda- dómstól Evrópu í málaferlum sem blaðamennirnir Björk Eiðsdóttir og Erla Hlynsdóttir höfðuðu gegn ís- lenska ríkinu. Ís- lenska ríkið tapaði málinu og var talið hafa brotið gegn 10. gr. Mannréttindasáttmála Evr- ópu (MSE). Dómurinn leggur þá kvöð á íslenska ríkið að bregðast við og bæta úr. Því miður verður ekki séð að svo hafi verið gert, áfram þurfa íslenskir blaða- og fréttamenn að leita til Mannréttindadómstólsins til að fá úrlausn sinna mála. Íslenskir dómstólar ætla í það minnsta ekki að breyta vinnubrögðum sínum. Fyrir þeim eru úrskurðir Mannréttinda- dómstólsins hljómið eitt. Ekki verður heldur séð að dómsmálaráðuneytið (sem kenndi sig við mannréttindi í viðaukaheiti) og nú innanríkisráðu- neytið hafi sýnt niðurstöðunni nokk- urn áhuga eða sjái ástæðu til að breyta vinnubrögðum sínum. Innan- ríkisráðuneytið hefur kosið að halda áfram að reka mál af sama meiði fyr- ir Mannréttindadómstólnum, rétt eins og það hafi ekkert ákvörð- unarvald þar um. Og stundum er eins og ekkert breytist. Mörgum finnst að niðurstaða Þorgeirsmálsins svokall- aða frá 1992 hafi ekki orðið íslensku réttarfari sú lexía sem í dómnum fólst. Í þeim dómi benti Mannrétt- indadómstóllinn íslenskum dómurum hæversklega á að málfrelsi væri ekki einungis til að tíunda almælt tíðindi heldur væri það einmitt lögfest til að tryggja fólki rétt til að segja það sem fáheyrt væri og sumum kynni jafnvel að þykja móðgandi. Niðurstaða og lærdómur þess máls var furðu fljót að hverfa úr minni íslenskra dóm- stóla. Gagnrýni Mannréttinda- dómstólsins á vinnubrögð íslenskra dómstóla var hörð en það var nið- urstaða dómsins að íslenskir dóm- stólar hafi virt að vettugi þau grund- vallarsjónarmið sem liggja að baki 10. gr. MSE. Í báðum þessum málum var komist að þeirri niðurstöðu fyrir innlendum dómstólum að grein- arskrif Erlu Hlynsdóttur í DV ann- ars vegar og Bjarkar Eiðsdóttur í Vikunni hins vegar hefðu falið í sér meiðandi ummæli. Viðkomandi um- mæli sem deilt var um í þessum mál- um voru að meginstefnu í tengslum við starfsemi nektardansstaða hér á landi. Í báðum málunum var sakfellt fyrir meiðandi aðdróttun sbr. 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Það þótti sérstaklega hart aðgöngu að dæma blaðamenn fyrir ummæli er sannarlega voru höfð eftir öðrum. Ekki er síður alvarlegt að þegar nið- urstaða Mannréttindadómstólsins er lesin sést að málsmeðferð í þessum tveimur málum var mjög ábótavant og meira að segja áhöld um að um sanngjarna málsmeðferð hafi verið að ræða. Og það gagnvart tveimur blaðakonum hjá fjárvana fjölmiðlum sem voru að reyna að varpa ljósi á jafn alvarleg vandamál og vændi og mansal. Ekki verður annað séð en að Hæstiréttur Íslands hafi í dómnum verið sérstaklega átalinn fyrir máls- meðferðina sjálfa og því getur dóm- urinn ekki skýlt sér á bak við að hann hafi aðeins verið að dæma að lögum. En nú skyldu flestir halda að svo alvarleg skilaboð frá Mannréttinda- dómstólnum hefðu einhver áhrif í ís- lenska réttarríkinu. Jafnvel valda skjálfta, kalla á fundi og umræður í réttarkerfinu. Svo virðist hins vegar ekki vera og blaðamenn eru dæmdir sem áður og verða að halda áfram að sækja tjáningarfrelsi sitt til útlanda. Blaðamannafélag Íslands hefur séð sig knúið til að koma að mörgum þessara mála þrátt fyrir þröngan fjárhag. Þannig eru tvö önnur mál er tengjast Erlu Hlynsdóttur komin fyrir Mannréttindadómstólinn. Þrátt fyrir að þau séu mjög keimlík því máli sem Erla vann þar fyrir ári hef- ur innanríkisráðuneytið ekki séð sóma sinn í að taka sátt í málunum og sætta sig við fordæmi dómstólsins frá því á síðasta ári. Ráðuneytið hef- ur kosið að eyða skattfé borgaranna í, að því er virðist tilgangslítinn mála- rekstur, aðeins til þess að fá end- urtekna flengingu fyrir Mannrétt- indadómstólnum. Hafa verður í huga að íslenska ríkinu var gert að greiða Björk 37.790 evrur, rúmar sex millj- ónir króna, og Erlu 21.500 evrur, 3,5 milljónir króna auk þess að bera sinn kostnað af málinu sjálft. Síðan þetta var hefur það gerst að dagblaðið DV hefur séð sig knúið til að skjóta tveimur málum er varða blaðamenn þess til Mannréttinda- dómstólsins, að hluta til með aðstoð Blaðamannafélagsins. Í síðasta mán- uði var síðan greint frá því að Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamað- ur, og Ríkisútvarpið hefðu sameig- inlega ákveðið að una ekki dómi Hæstaréttar í máli Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar gegn Svavari, sem féll í nóvember síðastliðnum. Kæran byggðist á því að með dómi Hæsta- réttar hinn 15. nóvember 2012 í máli nr. 69/2012 hefði verið brotið gegn rétti Svavars skv. 10. gr. Mannrétt- indasáttmála Evrópu um tjáning- arfrelsi. Því eru nú fimm mál blaða- manna á leiðinni fyrir Mannréttindadómstólinn. Í öllum til- vikum mun íslenska ríkið hafa mik- inn kostnað af þessum málum en lít- inn sóma. Er ekki mál að linni þessari aðför að tjáningarfrelsinu og íslenska réttarkerfið fari að meðtaka skilaboð Mannréttindadómstólsins? Mannréttindi og blaðamenn Eftir Hjálmar Jónsson og Sigurð Má Jónsson Hjálmar Jónsson » Fyrir nákvæmlega ári féll dómur hjá Mannréttindadómstól Evrópu í málaferlum sem tveir blaðamenn höfðuðu gegn íslenska ríkinu. Fleiri mál bíða. Höfundar eru formaður og varafor- maður Blaðamannafélags Íslands. Sigurður Már Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.