Morgunblaðið - 26.07.2013, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. J Ú L Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 173. tölublað 101. árgangur
RENNDI SÉR Á
SNJÓBRETTI Í
SMÁRALINDINNI
FERÐAST HRATT OG VÍÐA LEITAÐ AÐ
RYAN GOSLING
Í GÚRKUTÍÐINNI
FERÐIR STEYPIREYÐAR KORTLAGÐAR 15 AF FRÆGUM 32NETÞÆTTIRNIR OG HVAÐ 10
Heimir Snær Guðmundsson
Kjartan Kjartansson
Einn stjórnenda lestarinnar sem fór út af sporinu í
Galisíuhéraði í norðvesturhluta Spánar á þriðju-
dagskvöld verður yfirheyrður nánar í dag. Að
minnsta kosti 80 manns létust og tugir særðust,
þar af 32 alvarlega, í slysinu sem er mannskæðasta
lestarslys á Spáni síðan 1944. Samgönguráðherra
Spánar, Rafael Catala, segir að vísbendingar séu
um að lestin hafi farið of geyst. Hinsvegar lagði
hann áherslu á að rannsókn myndi væntanlega
leiða orsakir slyssins í ljós.
Spænska blaðið El Pais hefur greint frá því að
lestarstjórinn hafi viðurkennt að lestin hafi ekið á
180 km/klst. Hámarkshraðinn þar sem slysið átti
sér stað er 80 km/klst. Lestarstjórinn hefur 30 ára
reynslu í faginu en skv. heimildum spænskra fjöl-
miðla hafði hann ekið þessa leið í u.þ.b. eitt ár.
Hræðileg aðkoma
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur
lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg á Spáni í kjölfar
slyssins sem varð í 3 km fjarlægð frá ferðamanna-
borginni Santiago de Campostela, heimborg
Rajoy.
„Í dag er erfiður dagur, við höfum upplifað
hræðilegan atburð sem ég óttast að muni fylgja
okkur lengi,“ sagði Rajoy sem skoðaði slysstað í
gær.
„Fyrir hönd spænsku ríkisstjórnarinnar vil ég
koma á framfæri samúðarkveðjum til aðstandenda
þeirra sem létust, sem því miður eru allt of marg-
ir,“ sagði Rajoy og tók fram að markmiðið væri að
komast að orsökum slyssins eins fljótt og auðið er.
Aðkoman á slysstað var hræðileg að sögn vitna,
en lík fórnarlambanna lágu eins og hráviðri um
brautarteinana þegar fyrstu hjálp dreif að. Íbúar í
nágrenninu aðstoðuðu við að hlúa að þeim slösuðu
í kjölfar slyssins.
AFP
Sorg Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar (2.t.v.), og Alberto Nunez Feijoo, héraðsstjóri Galisíu (3. t.h.), á slysstað við Santiago de Compostela í gær.
Þjóðarsorg á Spáni
Að minnsta kosti 80 manns létu lífið í versta lestarslysi á Spáni í áratugi Fjöl-
miðlar herma að lestarstjóri hafi viðurkennt að hafa verið á tvöföldum hámarkshraða
MÞeyttist af sporinu á ofsahraða »17
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Skortur er á gagnsæi í ákvörðunum
Seðlabanka Íslands við afgreiðslu
undanþága frá lögum um gjaldeyr-
ismál að mati Birgis Tjörva Péturs-
sonar lögmanns. Hann telur einnig
að hlutverk Seðlabankans hafi
breyst með tilkomu haftanna og
bankinn sinni nú eftirliti að hluta,
ólíkt því sem var fyrir tíð haftanna.
„Nú þarf leyfi hjá Seðlabankanum
til ráðstafana sem við eðlilegar að-
stæður væru frjálsar. Þessu verður
auðvitað ekki lýst öðruvísi en sem
ófremdarástandi,“ segir Birgir
Tjörvi. Telur hann að nauðsynlegt
sé að taka reglurnar og fram-
kvæmd þeirra til heildarendurskoð-
unar.
Hann telur að afgreiðslutími SÍ á
undanþágubeiðnum upp á átta vik-
ur í hið minnsta sé óeðlilega langur.
Þá skorti verulega á um hvaða sjón-
armið ráði niðurstöðu.
Bendir hann á að Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra hafi sagt
að gjaldeyrishöft muni líklegast
verða áfram á Íslandi næstu árin.
Nauðsynlegt sé því að huga betur
að framkvæmd haftanna samhliða
vinnu stjórnvalda að því að aflétta
þeim. ,,Fyrst við þurfum að búa við
höftin um lengri eða skemmri tíma,
þá er mjög brýnt að framkvæmdin
á reglunum sé eins og best verður á
kosið. Að farið sé að ýtrustu stjórn-
sýslureglum, að ferlið sé opið og
gagnsætt og að málsmeðferð drag-
ist ekki óþarflega á langinn þannig
að takmarkanir séu eins lítið
íþyngjandi og frekast er unnt, inn-
an ramma reglnanna,“ segir Birgir
Tjörvi. »6
Ógagnsæi í ákvörðunum
Bæta þarf framkvæmd laga um gjaldeyrismál að mati lögmanns Óljóst hvaða
sjónarmið ráða för hjá SÍ Höftin verði minna íþyngjandi Breytt hlutverk SÍ
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabanki Íslands Lögmaður tel-
ur hlutverk Seðlabanka breytt.
Tveir erlendir
verkamenn þáðu
í gær boð starfs-
greinafélagsins
Afls um aðstoð
við að innheimta
laun og orlof
sem þeir hafa
verið hlunn-
farnir um. Báðir
unnu þeir að
byggingu nýrrar hafnar á Djúpa-
vogi en verktakinn sem þeir unnu
fyrir sagði sig frá verkinu í gær.
Starfsgreinasambandið hefur
haft af því áhyggjur að í útboðum
sé ekki nógu greinilega tekið
fram að það sé skilyrði að fyrir-
tæki fari að kjarasamningum.
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri
sambandsins, segir að brotið sé á
fólki með ýmsum hætti en að er-
lent starfsfólk sé sérstaklega
varnarlaust gagnvart því að
svindlað sé á því.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir að athugað sé hvort fyrir-
tæki eru í skilum við hið opinbera
áður en gengið er til samninga
við þau en eftirlit með vinnu-
markaðsþáttum mætti vera betra.
»6
Verktakinn hefur
sagt sig frá verkinu
Drífa Snædal
Skipulags-
stofnun hefur
hafnað því að
leið B um Teigs-
skóg í Þorska-
firði fari í mat á
umhverfisáhrif-
um.
Hreinn Har-
aldsson vega-
málastjóri segir
að þessi afstaða
Skipulagsstofnunar hafi komið
Vegagerðinni nokkuð á óvart,
þótt þessi möguleiki hafi vissu-
lega verið inni í myndinni. Vega-
gerðin hyggst kanna hvort til
greina komi að endurskoða
ákvörðunina. Einnig er hægt að
kæra hana. »4
Skipulagsstofnun
hafnar Teigsskógi
Teigsskógur Um-
deilt vegarstæði.
„Það er eðli
tækninnar að
hún er alltaf á
undan lagabók-
stafnum. Hún er
brautryðjand-
inn og löggjaf-
inn getur ekki
sett umgjörð um
þá braut sem
tæknin ryður,“
segir Hörður
Helgi Helgason, settur forstjóri Per-
sónuverndar. Hann segir að stofn-
unin hafi engan sérstakan hug á því
að banna fyrirtækjum að safna upp-
lýsingum um notendur sína á netinu.
„Aðalatriðið hjá okkur er að not-
endur séu upplýstir um hvað er
raunverulega á seyði því að almenn-
ingur gerir sér litla sem enga grein
fyrir þessu.“ »18
Tæknin alltaf skref-
inu á undan lögum