Morgunblaðið - 26.07.2013, Qupperneq 2
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Þórir Guðmundsson missti tví-
burasystur sína, Þóreyju, í bílslysi
á Hnífsdalsvegi fyrir sjö árum þeg-
ar hún var að keyra til vinnu, en
gögn sýna að líklega hefur farsími
truflað hana við akstur. Nú stend-
ur yfir átak Samgöngustofu og
Símans, Höldum fókus, þar sem
ökumenn eru hvattir til þess að
nota ekki síma. „Við vorum mjög
náin og samhent systkin og gerð-
um svo til allt saman. Við spiluðum
til að mynda bæði körfubolta og
vorum alltaf samferða á æfingar,“
segir Þórir. „Þórey var róleg og
ljúf stelpa sem vildi allt fyrir alla
gera. Missirinn var því ekki bara
minn heldur alls samfélagsins á
Ísafirði.“
SMS talið trufla aksturinn
Slysið átti sér stað á föstudegi,
það hafði snjóað dagana áður og
færðin var því erfið. „Það voru að-
eins tveir mánuðir í átján ára af-
mælið og þó svo að það séu komin
nokkur ár síðan þetta slys átti sér
stað þá er það eins og það hafi
gerst í gær. Fyrr um daginn vor-
um við í skólanum en ég fór til
vinnu klukkan tvö þann dag en
hún átti að mæta til vinnu klukkan
fjögur. Á leið minni heim úr vinnu
sá ég langa bílaröð eftir Hnífsdals-
veginum. Vinkona Þóreyjar hafði
verið að spyrja um hana og prest-
urinn hringdi í mig og var að leita
að mömmu. Mig
var því farið að
gruna að ekki
væri allt með
felldu. Þegar ég
kom loks á vett-
vang sá ég bíl
foreldra minna á
hvolfi og þegar á
sjúkrahús var
komið var systir
mín látin. Gögn sýna fram á að hún
hafi fengið smáskilaboð á þeim
tíma sem slysið átti sér stað og ég
held að það hafi truflað hana við
aksturinn. Það þarf svo lítið til.“
Símanotkun vaxandi vandamál
Símanotkun á meðan á akstri
stendur er vaxandi vandamál og
orðið eitt af helstu áhyggjuefn-
um þeirra sem vinna að um-
ferðaröryggismálum í dag.
Víða um heim hefur verið skor-
in upp herör gegn þessari hegð-
un og er herferð Símans og Sam-
göngustofu dæmi um það.
Aðeins eitt SMS – það þarf svo lítið til
Missti tvíburasystur sína í bílslysi árið 2006 Gögn sýndu að farsíminn truflaði hana við aksturinn
Átak Samgöngustofu og Símans vekur mikla athygli Ökumenn hvattir til þess að nota ekki síma
Saman Þórey og Þórir saman á jólunum árið 1990 tæplega þriggja ára.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Óánægju hefur gætt vegna endurgreiðslu frá Ís-
landsbanka þar sem vaxtabætur koma til með að
skerðast sem endurgreiðslunni nemur, en bankinn
endurgreiddi fyrr á árinu 20.000 skilvísum við-
skiptavinum sínum 30% vaxta af húsnæðis- og
skuldabréfalánum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist
líta þessi mál alvarlegum augum. „Ég mun skoða
þetta í samvinnu við ríkisskattstjóra. Í ljósi þess
að vaxtabætur eru ætlaðar til að bæta fólki upp
vaxtakostnað er ekki óeðlilegt að embættið hafi
litið svo á að með þessum greiðslum bankans væri
Óánægja með endurgreiðslur
Endurgreiðslur Íslandsbanka misstu marks í vissum tilfellum Fjármálaráð-
herra skoðar málið í samvinnu við ríkisskattstjóra Hefðu getað gert ráðstafanir
kostnaðurinn sem bæturnar
grundvallast á ekki lengur fyrir
hendi. Ætlun bankans var aftur
á móti að umbuna viðskiptavin-
um sínum fyrir skilvísi en í
ákveðnum tilvikum ná greiðsl-
urnar ekki því markmiði. Við
þurfum að skoða hvernig er
eðlilegt að höndla slíka umbun,
án þess að missa sjónar á að
þessar greiðslur hljóta að
reiknast fólki til tekna með ein-
hverjum hætti,“ segir Bjarni.
„Þetta sýnir að það var enginn raunverulegur
vilji til þess að slá skjaldborg um heimilin,“ segir
Gréta Ingþórsdóttir, einn hinna skilvísu viðskipta-
vina Íslandsbanka, en hún gagnrýnir fyrri ríkis-
stjórn fyrir að hafa ekki á sínum tíma gert ráðstaf-
anir til þess að endurgreiðsla þessi kæmi
lántakendum til góða en ekki ríkissjóði.
Léttir undir með ríkissjóði
„Það er fráleitt að Íslandsbanki sé að létta ríkis-
sjóði útgjöldin og getur ekki hafa verið markmið
bankans,“ segir Gréta. „Bankinn sendi fjármála-
ráðuneytinu upplýsingar um hverjir hlutu þessa
endurgreiðslu og þá hefði ráðuneytið getað gert
viðeigandi ráðstafanir, til dæmis með því að skil-
greina greiðslurnar með öðrum hætti eða mæla
með því að þær færu beint inn á höfuðstólinn.“
Bjarni
Benediktsson
Ríkisstjórn Íslands samþykkti í gær að veita Anítu Hin-
riksdóttur, Evrópu- og heimsmeistara í 800 m hlaupi,
tveggja milljóna króna árlegan styrk fram að Ólympíu-
leikunum sem haldnir verða í Rio de Janeiro árið 2016.
Styrkurinn á að renna til Íþróttasambands Íslands þar
sem hann verður eyrnamerktur Anítu. Samtals er
styrkurinn átta milljónir kr. og óskaði Lárus Blöndal,
forseti ÍSÍ, Anítu til hamingju við þetta tækifæri.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
segir afreksíþróttastarf vera kostnaðarsamt og mikil-
vægt sé því að styðja við bakið á Anítu. Þá segir hann
Anítu vera sérstaklega góða fyrirmynd og mikilvægi
þess fyrir íslenskt samfélag að eiga afreksmenn sem
hana yrði seint ofmetið. Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, segir styrkinn sýna hversu
stolt íslenska þjóðin er af Anítu og að bregðast þurfi við
þegar svona gerist þó svo að vandamál séu í rekstri
ríkisins. „Þegar upphæðin er sett í samhengi við önnur
mál má segja að þessum fjármunum sé einstaklega vel
varið.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Aníta fær átta milljóna króna styrk
Segir mikilvægi þess fyrir Ísland að eiga afreksfólk seint ofmetið
Búast má við góðri berjasprettu og að
hægt verði að hefja berjatínslu um
miðjan ágúst að sögn berjaáhuga-
mannsins Sveins Rúnars Haukssonar
sem kannað hefur berjalönd víða um
land að undanförnu. Hefur hann
kannað ástand í Borgarfirði, á
Ströndum, Tröllaskaga og Seyðisfirði
auk þess sem hann hefur fengið
fregnir víðar af landinu. ,,Á Seyðis-
firði var ég að tína krækiber upp í
mig. Þar er lyngið orðið svart þó að
berin séu smá og grænjaxlar innan
um,“ segir Sveinn.
Vætan gerir lynginu gott
Hann segir að berjasprettan líti
merkilega vel út ef miðað er við
hversu kalt var í veðri fram eftir
sumri. ,,Kalt var í maí og löngum hef-
ur verið sagt að meðalhiti í maí ráði
miklu, en útlitið núna á þeim stöðum
sem ég hef skoðað og miðað við sögur
af Vestfjörðum, er ótrúlega gott,“
segir Sveinn Rúnar. Hann segist litl-
ar fregnir hafa fengið af Suðurlandi,
en þær fréttir sem þó hafi borist gefi
góð fyrirheit. Hann telur að vætan í
júnímánuði hafi gert berjalynginu
gott og hlýindin upp á síðkastið hjálpi
til. ,,Það eru góðar berjafréttir af öllu
landinu og í fyrsta skipti í nokkur ár
er mjög gott útlit á Austfjörðum.“
Fyrir skömmu var Sveinn staddur
í Bjarnagili í Fljótum og þar mættu
honum albleikar brekkur sætukoppa.
„En þeir staðir sem ekki voru bleikir
voru farnir að blána,“ segir Sveinn og
því er von á góðri aðalbláberjatíð á
svæðinu. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Bláber Útlit er fyrir gott berja-
sumar samkvæmt Sveini Rúnari.
Koma vel
undan
kuldanum
Víðast hvar góð
berjatíð í vændum
Áhöfn rússnesku
flugvélarinnar
sem brotlenti á
Keflavíkur-
flugvelli á sunnu-
dag hugðist fara
í fráhvarfsflug
þegar hún missti
hæð og lenti á
flugbrautinni
með hjólin í upp-
réttri stöðu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
(RNSA) sem birtist í gærkvöldi.
Rannsókn slyssins er undir stjórn
RNSA en fulltrúi rússneskra yfir-
valda, ásamt ráðgjöfum sem komu
að hönnunarferli flugvélarinnar,
hafa aðstoðað við rannsóknina.
Í tilkynningunni segir að áhöfnin
hugðist fljúga lágflug yfir flug-
brautina og var lendingarbúnaður
settur niður í lágfluginu og virtist
aðflugið vera með eðlilegum hætti.
Er flugvélin var yfir brautinni var
hjólabúnaður settur upp að nýju og
áhöfnin ætlaði að fara í fráhvarfs-
flug. Að svo búnu missti flugvélin
hæð og lenti á maganum. Fimm
voru í áhöfn og slösuðust þeir ekki
fyrir utan einn sem hlaut minni-
háttar meiðsli. Rannsókn RNSA
beinist m.a. að því af hverju frá-
hvarfsflugið tókst ekki eins og lýst
var hér að ofan. heimirs@mbl.is
Ætlaði í fráhvarfs-
flug en missti hæð
Óhapp Rússnesku
vélinni hlekktist á.
„Þetta er virkilega áhrifaríkt og
flott átak. Ég vona að þetta veki
fólk til umhugsunar. Það þarf
svo lítið til þess að trufla fólk við
aksturinn.“ segir Þórir um átak
Samgöngustofu og Símans sem
vakið hefur mikla athygli síð-
ustu daga en snjallsímaforrit
sem nálgast má á heimasíðunni
holdumfokus.is hefur farið sem
eldur í sinu um netheima. Not-
andinn kemst í gagnvirkt sam-
band við ökumann sem
heitir Áróra Magnúsdóttir
og á símasamskipti við
hana á meðan fylgst er
með henni við
akstur. Sjón
er sögu
ríkari.
Vekur fólk til
umhugsunar
HÖLDUM FÓKUS
Þórir
Guðmundsson
Þórey
Guðmundsdóttir
Ljósmynd/ BB Ísafirði