Morgunblaðið - 26.07.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
Styrmir Gunnarsson fjallar áEvrópuvaktinni um þann
mikla mun sem er orðinn á milli
suðurhluta og norðurhluta ESB:
Gjáin“ á millinorðurs og
suðurs í Evrópu er
að verða hættuleg.
Í nýrri könnun sem
euobserver, vef-
miðill, sem sérhæf-
ir sig í málefnum
Evrópusambands-
ins segir frá, kem-
ur fram að um 80% Svía og 77%
Þjóðverja hafi trú á efnahags-
stöðu þeirra ríkja. Það á hins
vegar einungis við um 1% Spán-
verja og 2% Grikkja og Kýpverja.
Þegar spurt var hvort viðkom-
andi teldi rödd sína heyrast innan
Evrópusambandsins svöruðu tveir
þriðju aðspurðra neitandi og það
átti við um 89% Grikkja og Kýp-
verja.“
Styrmir bendir einnig á efa-semdir sem fram hafa komið
um að skuldugu ríkin í suður-
hluta Evrópu muni hafa vilja til
að greiða áfram af lánum sínum
og heldur svo áfram:
Franskur fjárfestingarbankisegir að Portúgal og Kýpur
séu gjaldþrota og í Financial
Times birtist frétt þessa dagana,
þar sem dregið er í efa að Grikk-
ir muni nokkru sinni borga skuld-
ir sínar. Þeir gera sér hins vegar
hugmyndir um að þeir geti gert
það með því að innheimta frá
Þjóðverjum stríðsskaðabætur,
sem þeir hafi aldrei fallið frá að
ganga eftir en Þjóðverjar segjast
ekki skulda þeim neitt.
Það þarf meira en aðgerðir ípeningamálum til þess að
halda saman pólitísku sambandi
ríkja, sem virðast ekki lengur
eiga sameiginlegra hagsmuna að
gæta.“
Styrmir
Gunnarsson
Gjáin innan ESB
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 alskýjað
Bolungarvík 16 heiðskírt
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 10 skúrir
Þórshöfn 13 þoka
Ósló 25 þrumuveður
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 27 léttskýjað
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 16 skúrir
Glasgow 20 skýjað
London 25 léttskýjað
París 27 heiðskírt
Amsterdam 25 léttskýjað
Hamborg 27 heiðskírt
Berlín 28 léttskýjað
Vín 30 léttskýjað
Moskva 18 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 28 heiðskírt
Mallorca 31 heiðskírt
Róm 30 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 18 alskýjað
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:17 22:52
ÍSAFJÖRÐUR 3:56 23:24
SIGLUFJÖRÐUR 3:38 23:08
DJÚPIVOGUR 3:40 22:28
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra hefur fellt úr gildi
reglugerð Ögmundar Jónassonar,
fyrrverandi innanríkisráðherra, um
breytt skilyrði fyrir fasteignakaupum
útlendinga hér á landi. „Ég tel að sú
reglugerð sem tók gildi í apríl sam-
ræmist ekki þeim réttindum og skyld-
um sem við erum aðilar að í gegnum
EES-samninginn,“ sagði Hanna
Birna. „Reglugerðin var á gráu svæði,
enda njótum við Íslendingar þeirra
réttinda sem samningurinn veitir
okkur vegna fasteignakaupa í öðrum
löndum og getum þess vegna ekki
undanskilið okkur þeim skyldum
gagnvart íbúum annarra EES landa.“
Hanna Birna tilkynnti nýja reglugerð
á ríkisstjórnarfundi í gær þar sem
hún lagði fram minnisblað um rétt út-
lendinga til að öðlast eignarrétt yfir
fasteignum. Reglugerðin felur í sér að
íbúar landa á EES-svæðinu þurfa
ekki lengur sérstakt leyfi til að eign-
ast fasteign hér á landi, jafnvel þó að
þeir hafi ekki fasta búsetu eða stundi
atvinnu- eða þjónustustarfsemi hér á
landi. Þá hyggst innanríkisráðherra
endurskoða reglur um rétt útlend-
inga til að öðlast eignarétt og afnota-
rétt.
Hanna afnam reglugerð Ögmundar
Fyrri reglugerð á gráu svæði Ný
reglugerð kynnt á ríkisstjórnarfundi
Morgunblaðið/Eggert
Fasteignakaup útlendinga Hanna
Birna tilkynnti nýja reglugerð.
Borgarráð sam-
þykkti í gær nýtt
deiliskipulag fyrir
Landsímareitinn.
Fyrir fund borg-
arráðs tók Dagur
B. Eggertsson,
formaður borg-
arráðs, við áskor-
un BIN-hópsins
um að boða til
aukafundar í
borgarstjórn um deiliskipulag-
stillöguna og að láta fara fram íbúa-
kosningu um Landsímareitinn.
Fulltrúi Vinstri grænna í borgar-
ráði, Sóley Tómasdóttir, lagði til að
málið yrði tekið upp í borgarstjórn
og sett í íbúakosningu en þess má
geta að tæplega 18 þúsund manns
mómæltu fyrirhuguðum breytingum
á skipulaginu á vefsíðunni ekkihot-
el.is. Tillaga Sóleyjar var felld.
Dagur B. Eggertsson sagðist
hissa á tillögu Sóleyjar í samtali við
mbl.is og benti á að ef hið nýja
skipulag hefði ekki verið samþykkt
væri í gildi skipulag sem gerði ráð
fyrir hærri byggingum og meira
byggingarmagni.
Afgreiddu
nýtt deili-
skipulag
Samþykkt þrátt
fyrir mótmæli
Dagur B.
Eggertsson