Morgunblaðið - 26.07.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
TISSOT, LEADER IN TACTILE WATCH
TECHNOLOGY SINCE 1999
Experience more at www.t-touch.com
TACTILE TECHNOLOGY
IN TOUCH WITH YOUR TIME
compassmeteo altimeter
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum, greiðir hæstu
skattana í ár, eða rúmlega 189,6 millj-
ónir króna. Kemur þetta fram í yfir-
liti ríkisskattstjóra um hæstu gjald-
endur í álagningu einstaklinga fyrir
árið 2013 sem birt
var í gær.
Næstur á eftir
Magnúsi er Krist-
ján V. Vilhelms-
son, útgerðar-
maður á Akur-
eyri, en hann
greiðir rúmlega
152 milljónir
króna í skatt. Eig-
inkona hans, Kol-
brún Ingólfs-
dóttir, er einnig nokkuð ofarlega á
lista, en hún greiðir tæplega 67,6
milljónir í ár. Í þriðja sæti á listans
yfir gjaldahæstu Íslendingana er
Guðbjörg M. Matthíasdóttir, útgerð-
armaður í Vestmannaeyjum. Hún
greiðir ríflega 135,6 milljónir króna.
Talsverðar breytingar í ár
Á lista ríkisskattstjóra yfir þá 30
einstaklinga sem hæst greiða í skatt
á þessu ári eru alls níu konur, en
þessir 30 einstaklingar greiða sam-
tals tæplega 2,4 milljarða króna í op-
inber gjöld.
Listi ríkisskattstjóra yfir þá ein-
staklinga, sem greiða hæstu opinberu
gjöldin í ár, er nokkuð breyttur frá
því í fyrra.
Þorsteinn Hjaltested, fjárfestir frá
Vatnsenda í Kópavogi, var skatta-
kóngur Íslands árið 2012 og einnig
árið 2011. Í fyrra greiddi Þorsteinn
185.366.305 krónur í skatt og um 162
milljónir árið á undan.
Í ár kemst Þorsteinn hins vegar
ekki á lista ríkisskattstjóra yfir 30
hæstu gjaldendur samkvæmt álagn-
ingarskrá.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, for-
stjóri Actavis á Íslandi, er í fjórða
sæti listans í ár með tæplega 115,4
milljónir, en í fyrra var hún í 46. sæti
þess lista þegar hún greiddi ríflega
38,8 milljónir króna í opinber gjöld.
Össur Kristinsson, stoðtækjafræð-
ingur og stofnandi Össurar hf.,
vermdi 17. sæti listans í fyrra þegar
hann greiddi rúmlega 64 milljónir
króna. Í ár er Össur í 7. sæti og greið-
ir hann um 100,6 milljónir króna í op-
inber gjöld.
Sigurður Örn Eiríksson tann-
læknir er í 5. sæti á lista ríkisskatt-
stjóra yfir gjaldahæstu Íslendingana
í ár með tæplega 109,6 milljónir, en í
fyrra hafnaði hann í 21. sæti lista
þess árs þegar hann greiddi um 58,6
milljónir króna til skatts.
Það hækka hins vegar ekki allir á
milli ára. Á meðal þeirra sem lækka í
ár eru t.a.m. Ívar Daníelsson lyfsali
sem í fyrra greiddi um 80,6 milljónir
króna en greiðir nú rétt tæpar 68
milljónir og Skúli Mogensen, fjár-
festir og eigandi WOW Air, sem í ár
greiðir um 60,2 milljónir króna í op-
inber gjöld en greiddi tæplega 85
milljónir í fyrra.
Rösklega 4,77%
skiluðu ekki skattskýrslu
Á skattgrunnskrá voru 264.193
framteljendur, en það er fjölgun um
2.429 frá fyrra ári, eða 0,9%. Sættu að
þessu sinni 12.510 einstaklingar áætl-
unum opinberra gjalda sökum þess
að þeir skiluðu ekki skattskýrslu. Er
þetta rösklega 4,77% af framtelj-
endum, en í fyrra var þetta hlutfall
rösklega 5%.
Samkvæmt upplýsingum frá rík-
isskattstjóra hafa aldrei fyrr jafn-
margir framteljendur einungis þurft
að yfirfara fyrirliggjandi upplýsingar
og staðfesta að þær séu réttar.
Af skiluðum framtölum að þessu
sinni voru einungis 1,91% framtala
pappírsframtöl. Jafngildir það fram-
tölum frá 4.810 einstaklingum. Raf-
ræn framtöl voru hins vegar 98,09%
framtala. Í undirbúningi er að hætta
notkun pappírsframtala.
Magnús er nýr skattakóngur
Alls eru níu konur á lista ríkisskattstjóra yfir 30 hæstu gjaldendur Þeir sem hæsta skatta borga
greiða samtals tæplega 2,4 milljarða í opinber gjöld Framteljendum fjölgaði um 2.429 frá fyrra ári
Hæstu gjaldendur í álagningu einstaklinga 2013
Nafn Starf/menntun Heimili Sveitarfélag Samtals gjöld ´13 Samtals gjöld ´12
1 Magnús Kristinsson útgerðarmaður Búhamri Vestmannaeyjum 189.606.555 Ekki á lista í fyrra
2 Kristján VVilhelmsson útgerðarmaður Kolgerði Akureyri 152.301.324 98.648.747
3 Guðbjörg M Matthíasdóttir útgerðarmaður Birkihlíð Vestmannaeyjum 135.647.707 116.659.494
4 Guðbjörg Edda Eggertsdóttir forstjóri Næfurholti Hafnarfirði 115.385.776 38.828.535
5 Sigurður Örn Eiríksson tannlæknir Kornakri Garðabæ 109.592.774 58.669.867
6 Sveinlaugur Kristjánsson framkvæmdastjóri Hjallaseli Reykjavík 102.839.970 Ekki á lista í fyrra
7 Össur Kristinsson forstjóri Sæbólsbraut Kópavogi 100.647.419 64.221.733
8 Þorsteinn Már Baldvinsson útgerðarmaður Barðstúni Akureyri 85.525.210 68.248.066
9 Ólafur Björnsson framkvæmdastjóri Lækjarbergi Hafnarfirði 82.471.481 44.888.915
10 Sigurður Sigurgeirsson framkvæmdastjóri Breiðahvarfi Kópavogi 82.388.484 57.856.934
11 Arnór Víkingsson læknir Kársnesbraut Kópavogi 77.452.328 78.676.404
12 Finnur Reyr Stefánsson fjárfestir Mávanesi Garðabæ 69.487.059 48.728.172
13 Sigurbergur Sveinsson kaupmaður Miðvangi Hafnarfirði 67.890.768 50.555.185
14 Ívar Daníelsson lyfsali Árskógum Reykjavík 67.860.489 80.572.758
15 Kolbrún Ingólfsdóttir athafnamaður Kolgerði Akureyri 67.579.095 Ekki á lista í fyrra
16 Gunnar I Hafsteinsson lögfræðingur Skildinganesi Reykjavík 62.859.869 53.662.715
17 Steinunn Margrét Tómasdóttir ferðafræðingur Flókagötu Reykjavík 62.209.121 Ekki á lista í fyrra
18 Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir lyfjafræðingur Dalakri Garðabæ 62.057.738 55.393.494
19 Katrín Þorvaldsdóttir fjárfestir Háuhlíð Reykjavík 61.979.825 46.355.347
20 Helgi Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Skjólvangi Hafnarfirði 61.711.741 44.796.441
21 Skúli Mogensen fjárfestir Skeljatanga Reykjavík 60.163.730 84.724.998
22 Ingunn GyðaWernersdóttir fjárfestir Bjarmalandi Reykjavík 60.056.209 60.471.240
23 Guðmundur Ásgeirsson fyrrv. framkvæmdastj. Bollagörðum Seltjarnarnesi 59.777.412 62.996.238
24 Bjarni Ármannsson fjárfestir Bakkavör Seltjarnarnesi 59.770.643 47.518.766
25 Ingi Guðjónsson lyfjafræðingur Bakkasmára Kópavogi 58.228.644 41.995.959
26 Helga S Guðmundsdóttir fjárfestir Laufásvegi Reykjavík 57.251.241 48.185.046
27 Kristín Einarsdóttir athafnamaður Bröttuhlíð Akureyri 57.194.889 Ekki á lista í fyrra
28 Jón A Ágústsson athafnamaður Hrefnugötu Reykjavík 57.135.381 Ekki á lista í fyrra
29 Ágúst Sigurðsson útgerðarmaður Birkihvammi Hafnarfirði 54.973.186 38.763.511
30 Páll Lárus Sigurjónsson framkvæmdastjóri Þingvallastræti Akureyri 54.931.501 Ekki á lista í fyrra
Magnús
Kristinsson.
Símon Símonarson
framkvæmdastjóri lést
á hjartadeild Landspít-
alans í gær, 25. júlí, 79
ára að aldri. Símon var
lengi vel einn af
fremstu og sigursæl-
ustu bridgespilurum
landsins.
Símon fæddist í
Reykjavík 24. septem-
ber 1933. Hann ólst
upp á Vesturgötu 34 og
lauk námi frá
Verslunarskóla Ís-
lands. Foreldrar hans
voru hjónin Ingibjörg
Sigurást Hallsdóttir tannsmiður og
Símon Sveinbjörnsson skipstjóri.
Eftir nám starfaði Símon við banka-
störf hjá Iðnaðarbanka Íslands og
stofnaði síðar Vélaleigu Símonar
sem hann rak til margra ára.
Tólf sinnum varð Símon Íslands-
meistari í sveitakeppni í bridge og
þá varð hann sex sinn-
um Íslandsmeistari í
tvímenningi.
Símon hóf að keppa
í bridge sautján ára
gamall og varð síðast
Íslandsmeistari 2008,
þá 75 ára að aldri. Þá
keppti Símon marg-
sinnis erlendis fyrir
Íslands hönd, bæði á
Evrópu- og Ólympíu-
mótum. Sögnin Jón og
Símon sem er vel
þekkt í bridds er
nefnd eftir Símoni og
fyrrverandi makker
hans, Jóni Ásbjörnssyni.
Símon kvæntist eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Kristínu Magnús-
dóttur, 13. september 1973. Þau
eignuðust þrjá syni. Fyrir átti
Kristín tvo syni sem Símon gekk í
föðurstað. Fyrir átti Símon fjögur
börn.
Andlát
Símon Símonarson
Veðurspáin fyrir helgina er þokka-
leg en búast má við að kólni í veðri,
að sögn Einars Magnúsar Einars-
sonar, veðurfræðings hjá Veður-
stofu Íslands. Hann mælir með því
að menn búi sig undir skúrir, sé
ætlunin að halda í útilegu.
Hann segir að í dag sé búist við
hægri breytilegri átt eða hafgolu.
Áfram verður nokkuð heitt og mun
hitinn fara yfir 20 stig þar sem sól-
ar gætir í innsveitum. Á morgun
verður svo áfram hæg austlæg átt
eða hafgola en heldur svalara loft
yfir landinu. Á sunnudaginn verður
heldur ákveðnari norðaustlæg átt.
Kaldara veður og rigning um helgina