Morgunblaðið - 26.07.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
SMUROLÍUR OG SMUREFNI
MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN
IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands-
bankans, boðar að leiðréttingu á
endurútreikningum á gengislánum
verði því sem næst lokið fyrir áramót.
„Við reynum að
vinna þetta eins
hratt og hægt er.
Vel á annað þús-
und viðskiptavinir
með bílasamninga
eru væntanlega
þegar búnir að fá
tilkynningu um
leiðréttingu og
svo vinnst þetta
áfram í hverri
viku. Við höfum endurreiknað þessi
lán áður og nú er verið að leiðrétta þá
í samræmi við nýjustu dóma.“
– Nú ræðir hér um 30.000 gengis-
lán til einstaklinga og lögaðila. Hve-
nær má ætla að leiðréttingu á endur-
útreikningi lána hjá bankanum ljúki?
„Það þarf að skoða að nýju um
30.000 lán. Það er þó ekki þar með
sagt að þetta eigi við um alla. Það
kemur í ljós við skoðun. Þetta mun
taka einhverja mánuði. Þetta er mikil
vinna og það þarf að gera þetta vel.
Margir viðskiptavina okkar hafa
breytt og skuldbreytt lánum og það
flækir alla þessa vinnu. Við stefnum
að því að ljúka henni fyrir áramót.“
Erfitt að meta hlutfallið
– Þú nefnir að endurútreikningur á
annað þúsund gengislána af um
30.000 hafi þegar verið leiðréttur. Má
af því skilja að þú teljir að aðeins
hluti lánanna verði leiðréttur?
„Það er erfitt að segja nákvæm-
lega til um það hversu stór hluti
þeirra verður endurreiknaður upp á
nýtt. Einhverjir munu ekki fá leið-
réttingu á fyrri endurútreikningi.
Það kemur til af því hvernig dómsorð
hafa verið. Það þurfa að vera ákveðin
skilyrði fyrir hendi.“
– Viðskiptavinur bankans hitti
blaðamann í vikunni og sýndi gögn
sem hann taldi færa sönnur á að
bankinn sendi reikninga vegna
gengisláns án þess að leggja fram
skýringar á afborgunarferlinu.
Hvernig bregst þú við slíkri gagn-
rýni?
„Það hefur komið í ljós að þeir sem
hafa staðið í skilum eru í betri stöðu
en hinir sem hafa hætt að borga af
lánum. Við höfum á hinn bóginn boð-
ið viðskiptavinum upp á að lækka
greiðslubyrðina verulega með því að
greiða aðeins vexti tímabundið.“
– Nú heldur þessi viðskiptavinur
því fram að það sé ekki tilgreint
hvort umræddir reikningar séu fyrir
vöxtum. Getur verið að þetta sé
vegna mistaka hjá bankanum?
„Nei. Ég tel að þetta séu sömu
seðlarnir og hafa verið sendir út til
viðskiptavina frá upphafi.“
Íbúðalánin í forgangi
– Fleiri viðskiptavinir Landsbank-
ans hafa haft samband við blaðamann
og bent á að viðskiptavinir Íslands-
banka hafi fengið uppgjör vegna
gengislána en það dragist hjá ykkur?
„Leiðrétting á endurútreikningi
íbúðalána var í forgangi hjá okkur.
Þar vorum að framfylgja gengis-
dómum Hæstaréttar og höfum leið-
rétt höfuðstól til lækkunar um 7,5
milljarða á undanförnum mánuðum.
Þarna er um að ræða ólögleg gengis-
tryggð lán sem við endurreiknuðum
áður á sínum tíma eftir að svonefnd
Árna Páls-lög voru samþykkt í des-
ember 2010. Samkvæmt þeim bar, ef
óvissa var um vexti, að miða við
lægstu vexti í Seðlabanka.
Svo féll svonefndur Elviru-dómur
[sjá umfjöllun hér á eftir] og á grund-
velli hans erum við búin að leiðrétta
lánin aftur. Samkvæmt honum á ekki
að nota seðlabankavexti heldur vext-
ina sem voru tilgreindir á lánasamn-
ingnum. Sú leiðrétting hefur kallað
fram áðurnefnda 7,5 milljarða leið-
réttingu. Við biðum með að afgreiða
mál sem voru tekin til styttri tíma
vegna þess að við unnum mál fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra-
haust. Þar unnum við mál gegn Plast-
iðjunni og töldum rétt að bíða eftir
dómi Hæstaréttar í málinu. Það væri
svolítið skrítið að fara þvert gegn
dómum. Íslandsbanki ákvað í fyrra-
haust að byrja að endurreikna styttri
lán og láta fordæmi í máli Borgar-
byggðar ná yfir öll gengislán.
Staða Íslandsbanka er önnur en
okkar. Hann var til dæmis ekki með
íbúðalán til endurútreiknings en við
höfum á sama tíma lagt mikla vinnu í
að leiðrétta endurútreikning þeirra
lána. Íslandsbanki gat því farið í bíla-
samningana og ákvað að gera það.
Við ákváðum að bíða eftir dómi
Hæstaréttar 30. maí sl. [þar sem
Plastiðjan hafði sigur]. Um leið og sá
dómur lá fyrir fórum við af stað og
fyrstu viðskiptavinirnir fengu leið-
réttingu sinna mála í byrjun júlí.“
Til að gera langa sögu stutta vísar
Steinþór til þess að í máli Borgar-
byggðar gegn Arion banka var tekist
á um gengislán með 80 afborgunum
en hins vegar 30 ára gengislán í máli
Sigurðar H. Sigurðssonar og Elviru
Mendez gegn Frjálsa fjárfestingar-
bankanum. Hæstiréttur felldi dóm í
fyrrnefnda málinu í október 2012 og í
febrúar sama ár í máli hjónanna.
„Eftir dóminn í Plastiðjumálinu sáum
við að þetta náði til skemmri lána líka
og síðan höfum við verið að endur-
reikna þau.“
Fimmtán manns að reikna
– Hvað eru margir starfsmenn í
þessum nýja endurútreikningi?
„Þeir eru fimmtán talsins og við
höfum fjölgað aftur í þeim hópi eftir
að vinna við leiðréttingu á endur-
útreikningi hófst. Það voru tíu manns
í þessum verkefnum fyrir nokkrum
mánuðum og síðan höfum við fjölgað
í hópnum. Þar fyrir utan eru
lögfræðihópar og fleiri að rýna í þetta
og finna leiðir út úr ýmsum flækjum.
Íbúðalánin eru að mestu leyti búin en
bílasamningarnir eru viðfangsefnið
núna.
Þegar Elviru-dómurinn féll settum
við 40 milljarða til hliðar. Síðan hafa
fallið dómar fyrir Hæstarétti sem
gefa til kynna að við höfum kannski
tekið rúmlega fyrir þessu. Maður veit
það þó ekki fyrr en búið er að fara yf-
ir þetta allt saman,“ segir Steinþór
og bendir aðspurður á að það geti
seinkað úrvinnslu krafna ef fulln-
aðarkvittanir eru ekki fyrir hendi,
enda hafi verið kveðið á um mikil-
vægi þeirra í gengisdómum.
– Einn viðmælandi minn segir
starfsmenn bankans neita að senda
endurútreikninga í gegnum tölvupóst
heldur bjóða aðeins að skýra málið í
útibúi, af ótta við að með tölvupóst-
inum sé skapað fordæmi?
„Okkur þykir leitt að geta ekki
svarað öllum mjög skýrt strax en
þökkum þolinmæðina sem fólk sýnir
okkur. Við reynum að vinna okkur í
gegnum staflann þannig að meiri
hagsmunir séu látnir ganga fyrir
minni hagsmunum hjá viðskiptavin-
um. Við ákváðum þess vegna að klára
íbúðalánin af því að þar voru miklu
hærri fjárhæðir sem komu til leið-
réttingar en í bílasamningum. Vinna
við leiðréttingu endurútreiknings
bílalána er á hinn bóginn komin vel af
stað. Þegar leiðréttingu er lokið er
niðurstaðan send bréfleiðis með
formlegum hætti,“ segir Steinþór.
Ekki endurreiknað hjá öllum
Bankastjóri Landsbankans boðar að endurútreikningi gengislána verði nær lokið fyrir áramót
Bankinn hafi beðið eftir dómi í Plastiðjumálinu áður en ráðist var í að endurreikna bílalánin
Morgunblaðið/Kristinn
Í Austurstræti Við höfuðstöðvar Landsbankans í miðborg Reykjavíkur.
Steinþór Pálsson
Spurður hvort uppgjör krafna
vegna gengislána hafi áhrif á verð-
mæti hlutabréfa í Landsbankanum
sem starfsmenn fengu úthlutað úr
bankanum á dögunum segir Stein-
þór svo ekki vera.
„Nei. Það er engin tenging á milli
vinnu okkar við leiðrétt-
ingu á endurreikningi
gengislána og að
Landsbankinn verði
meira virði eftir þrjú
ár,“ segir Steinþór en
starfsmenn geta
gengið að bréfunum
árið 2016. Fari bankinn
hins vegar á markað
innan þess tíma losnar
um kvaðir á sem svarar
60% af bréfunum, sem
koma þó aldrei til útgreiðslu fyrr
en mánuði eftir útboð á hlutabréfa-
markaði. Skattalegt verðmæti
hlutabréfanna í dag er metið á um
4,7 milljarða kr., en eftir skatta og
gjöld fá starfsmenn hlutabréf að
verðmæti um 1,8 milljarða kr.
– Þannig að þú hafnar því að
reynt sé að hámarka verðmæti um-
ræddra krafna til að hámarka verð-
mæti hlutabréfanna?
„Já, algjörlega.“
– Hvernig svararðu gagnrýni á
að óeðlilegt sé að starfsmenn fái
greitt í formi hlutabréfa fyrir
endurreisn bankans frá hruni?
„Ég held að þeir þurfi fyrst og
fremst að svara fyrir það sem
sömdu um þetta á sínum tíma. Við
erum núna að efna samkomulag
frá árinu 2009 sem gamli Lands-
bankinn, íslenska ríkið og Lands-
bankinn gerðu um fjárhagsuppgjör
bankanna. Að frumkvæði gamla
bankans, kröfuhafanna,
var ákveðið að árangurs-
tengja endurheimtur á
lánasöfnum stærstu fyr-
irtækjanna og ríkið
gerði kröfu um að það
næði til allra starfs-
manna en ekki einungis
til valinna starfsmanna.
Það er einnig mikilvægt
að árétta að virðisauk-
inn er til kominn vegna
endurheimta á lána-
söfnum stærstu fyrirtækjanna.
Það er því misskilningur að hann
stafi af því að bankinn hafi gengið
hart fram gagnvart einstaklingum
og smáfyrirtækjum. Virðisaukinn,
sem er undirstaða fyrir skilyrta
skuldabréfinu [að baki umræddum
hlutabréfum] – er eingöngu til
kominn vegna stærstu fyrirtækj-
anna.“
– Til hvaða fordæma var horft?
„Þetta var væntanlega gert með
erlendar fyrirmyndir í huga. Ég skal
þó ekki segja. Ég var ekki í bank-
anum á þessum tíma.“
Hann rifjar upp að gengið hafi
verið frá uppgjörinu 15. des. 2009.
Græða ekki á skuldurum
BANKASTJÓRI RÆÐIR HLUTABRÉF TIL STARFSMANNA